( ( drrring ) ) )
( ( ( ( ( ( ( ( ( drrring-g-g-g ) ) ) ) ) ) ) ) )
* * * svarað * * *
"Halló?"
"Hæ, elskan, þetta er pabbi, er mamma þarna?"
"Nei, pabbi, hún er uppi í svefnherbergi með Kalla frænda"
Eftir stutta stund segir pabbi: "En þú átt engan Kalla frænda, elskan!" "
Jú víst, og hann er uppi í herbergi með mömmu núna!"
"Hmm. allt í lagi, gerðu þetta fyrir pabba: Leggðu frá þér símann, bankaðu
á svefnherbergisdyrnar og kallaðu til mömmu og Kalla frænda að þú hafir
séð bílinn hans pabba koma heim? "Allt í lagi, pabbi!"
Nokkrum mínútum síðar kemur stúlkan aftur í símann:
"Ég gerði eins og þú sagðir, pabbi"
"Og hvað gerðist?" spyr hann.
"Mamma stökk allsber fram úr rúminu og hljóp öskrandi út úr herberginu en
hrasaði í mottunni og datt út um gluggann, hún liggur hreyfingarlaus úti í
garði núna. . . ." " Guð minn góður, hvað með Kalla frænda?"
Hann stökk allsber út úr rúminu og stökk út um gluggann og lenti í
sundlauginni. Verst að þú lést tæma hana um helgina til að láta þrífa
hana. Hann liggur þar steindauður!" * * * löng þögn * * *
* * * lengri þögn * * *
Svo segir pabbi,:
"Sundlaug . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . Er þetta ekki
555-2775??"