Sem keppandi vil nota tækifærið og þakka öllu starfsfólkinu sem starfaði við keppnirnar í sumar fyrir að sinna keppnismálum. Án ykkar framlags hefði verið ástæðulaust að halda lokahóf, og við sem þar fengum verðlaun hefðum ekki getað montað okkur af Íslandsmeistaratitlunum. Stjórn KK fær sömuleiðis hrós fyrir að sinna keppnismálum við mjög erfiðar og ósanngjarnar aðstæður.
Ég vona að þessu leyfisveitingarbulli sem viðgekkst í sumar, sem er skólabókardæmi um valdníðslu, sé lokið og keppnishaldið hjá ykkur verði fjölsótt og kraftmikið næsta sumar.
Ragnar