Ég verð að viðurkenna mín mistök í þessu máli
Ég semsagt tók út allar þessar auglýsingar sem fyrir voru, og setti inn Shell auglýsinguna og Vodafone auglýsinguna. Vodafone er að hýsa síðuna okkar og Shell kaupa skiltið svo þeir eiga nú inni auglýsingar.
En svo í stað þess að hafa ekkert fyrir neðan smellti ég inn þessum link um laust pláss fyrir auglýsingar. Og taldi það að
kvartmila@kvartmila.is væri netfang sem einhver væri að lesa yfir þar sem þetta er jú uppgefið sem okkar aðal póstfang... En... Svo virðist vera sem það sé eitthvað lítið litið þar inn. Ég sendi Vodafone mönnum póst í dag um málið svo ég geti nú komist í þetta netfang.. En var hafnað um að fá uppgefið lykilorð, ég þarf bara að kíkja til þeirra í fyrramálið og redda þessu. Þetta netfang mun verða lesið yfir reglulega héðan í frá, þarf bara að fá lykilorðið fyrst
Ég hins vegar veit ekki hvernig þetta er með verð og fl.. Reyni að fá það á hreint sem fyrst...
Kv.
Valbjörn