Kvartmílan > Muscle Car deildin og rúnturinn.

Krúsers hópurinn sýnir Mustang Mach-1 & Lincoln Capri.

(1/1)

Leon:
Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna bíla á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18. Næstkomandi fimmtudagskvöld 18.05´06 kl: 20:00 verða sýndir 1957 Lincoln Capri og 1969 Ford Mustang Mach-1. Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og Prins til að seðja hungrið. Að venju verður síðan farinn hóprúntur strax upp úr kl. 21:30 niður í miðbæ Reykjavíkur ef veður leyfir.

Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta! Hvar verður þú??  8)

Með kveðju,
Krúsers-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.

Leon:
Því miður þá forfallast eigandinn af Ford Mustang SALEEN en það kemur í hanns stað 1969 Ford Mustang Mach 1 sem er ekki slæmt :)

Navigation

[0] Message Index

Go to full version