Jæja þá er enn ein pælingin... Ef ég sel ekki Transann fljótlega þá ætlaði ég að henda honum í geymslu. Það sem ég er að spá, ég er búinn að finna mér pláss sem mun ekki kosta mig krónu. Málið er það að skúrinn er ókyntur og það er músagangur í honum. Ég er ekkert alltof spenntur vegna litlu kvikindanna, og það sem ég ætlaði að forvitnast um er það, geta þessi litlu kvikindi á einhvern hátt skemmt bílinn?