Sá sem á (eða átti) Mustanginn heitir Tommi og ef mig minnir rétt Guðmundsson. Allt mulighedmen og vann hjá Bigga í Bílverk BÁ um tíma amk. Ég man fyrst eftir þessum bíl ca 1982 á Selfossi og þá var hann rauður með eldtungur á hliðum, fugli á húddinu og kirkjugarðinum milli afturljósa. Var þá kallaður Red Killer og skemmtilega sprautaður. Síðan var hann sprautaður svartur en kirkjugarðurinn fékk að halda sér milli afturljósa. Umræddur Tommi átti bílinn bæði þegar hann var rauður og svartur og vænti þess að hann hafi átt hann öll þau ár sem hann stóð fyrir utan BÁ. Veit þó ekki hvar bíllinn er í dag.