Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - 1349

Pages: 1 2 [3]
41
Leit að bílum og eigendum þeirra. / Re: Grand torino
« on: September 01, 2009, 01:07:58 »
Pantaðu bara sjálfur  :wink:
no monny :-(

Heyrðu ég panta þá bara nokkur stykki , ertu með einhverjar óskir í huga? Já svona með litaval og vélastærðir? Endilega hafðu samband svo ég fari nú ekki að panta neina vitleysu.

42
Leit að bílum og eigendum þeirra. / Re: Grand torino
« on: August 31, 2009, 09:34:53 »
Pantaðu bara sjálfur  :wink:

43
Sæll vertu vinur , þú þarft ekki að ýta á annað en "Reply" til þess að skoða síðu númer 3. Þessi bíll stendur fyrir utan eitthvað viðgerðarverkstæði fyrir aftan Nings á Suðurlandsbraut. Hann er undir grænu plasti og er í sama , ef ekki verra ástandi og hann er á myndunum.

Það væri algjör draumur að sjá þennan bíl á götunni en til þess þarf mikinn tíma og þolinmæði. Ég vona innilega að þú fáir hann keyptann til uppgerðar svo að hann standi bara ekki þarna næstkomandi ár ;)

Kær kveðja ,

44
Almennt Spjall / Uppgerð á bíl
« on: August 16, 2009, 18:00:55 »
Komið þið sælir , ég hef lengi átt þann draum að gera upp gamlan bíl. Eftir miklar hugleiðingar og lestur hef ég ákveðið að kýla á það og tileinka næstu árum uppgerðinni. Kemur þá fyrst upp í hugann gamall amerískur átta gata bíll. Ég hef unnið að því síðustu vikur að gera aðstöðu tilbúna fyrir komandi verkefni , en það er einmitt upphitaður bílskúr. Þótt ég sé ungur að árum , þá er ég að öllu laus við þann eldmóð sem að einkennir menn á mínum aldri. Nú virðist ég vera kominn með allt sem þarf til að byrja , nema auðvitað lykilatriðið.. sjálfann bílinn. Svo virðist sem að mjög erfitt sé að finna bíla til uppgerðar. Stuttu eftir að áhuginn kviknaði fór ég lúmskt í það að leita að bílum til uppgerðar. Það sem kom mér mest á óvart var hve föstu taki sumir eigenda þessara bíla halda þeim. Bílarnir standa úti vetur eftir vetur og eigendurnir vilja ekki láta þá frá sér nema fyrir morðfjár. Eftir miklar keyrslur á hina ýmsu staði , til þess eins að fá sama neikvæða svarið , hef ég farið að efast um að það sé í rauninni tækifæri fyrir menn eins og mig að fá að kynnast þessu áhugamáli margra. Svo að með hálfa milljón í vösum , áhuga og þolinmæði vonast ég til þess að láta þennan draum rætast. Ég biðla til ykkur , að ef að þið hafið einhverjar hugmyndir/vísbendingar um ameríska átta gata bíla sem hæfir eru til uppgerðar , myndi ég af sjálfsögðu skoða það.
Af gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég hef bara 500.000 krónur hámark til þess að kaupa verkefnið. Myndi ég þá byrja á því að fara í boddíið og svo þegar að mér áskotnaðist meiri aur færu hjólin aðeins að snúast. Einnig vill ég undirstrika það að ég skoða allt , svo ekki vera feimin við að benda mér á hitt og þetta og láta mig keyra útum allt land ;)

45
Varahlutir Óskast Keyptir / Civic 96'
« on: August 10, 2009, 23:29:02 »
Vantar

Húdd
Framlukt
Framstuðara
Vatnskassa

Breytir engu hvernig þetta allt saman er á litinn.

Ef að þið eigið eitthvað af þessu hafið þá samband í gegnum PM.

Skoða allt.

46
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir Challenger
« on: May 09, 2009, 19:31:52 »
Óska eftir Challenger , skoða allt , allar týpur og ástand

Skiptir ekki máli hvort að hann er hræ eða glæsikerra.

Sendið mér einkapóst með tilboðum

Pages: 1 2 [3]