Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - 440sixpack

Pages: [1] 2 3 ... 17
1
Til Sölu er nánast ónotaður Arashi hjálmur í XS 54 cm svartur á lit, með öndun að framan og á topp, mjög flottur hjálmur  verð 17.000,- Tóti 663-2966

2
Sandblásturskútur með tilheyrandi og sandpoki af glersandi fylgir verð 20.000 Tóti 663-2966

3
Til sölu er Fiac loftpressa 50 L kútur 420 l/min, 10 Bar, lítið notuð, juðari, slöngur og sprautukönnur og fl. dót fylgir
verð 80.000,- Tóti 663-2966

4
Kemppi migger 140 Amp einfasa 230V Með eignarkút Kolsýra, hjálmur fylgir, lítið notuð, keypt ný 2006.

Verð 125.000

Tóti 663-2966

5
Gopro Hero HD camera með aukahlutum til sölu, var keypt ný í des 2010, aðeins notuð í 2 klst. Verð 30 þús.

Tóti 663-2966

6
BÍLAR til sölu. / Mercedes Benz E-500 Sport Avant Garde
« on: February 10, 2011, 23:00:31 »
Til sölu Mercedes Benz E-500 sport Avant garde árg. 2003, bíllin er ekinn 130 þ. Svarfblár, svartur að innan, allur leðraður, rafmagn í öllu, Panorama roof, loftpúðafjöðrun, Dynamic seat, nýlegt lakk og fl.fl. Þetta er mjög fallegt gott eintak og í toppstandi. 306 hö. Og endalaust tog.
Verð 3,7 mills ekkert áhvílandi, skoða uppítöku á ódýrari skuldlausum bíl.  Uppl. Í síma 663-2966

7
Getur einhver hér sent mér á email myndir af Færeyja Barracudunni, það er sú rauða með Barracudu-fisknum á hliðinni.

toti62@internet.is

kv. Tóti

8
Bílarnir og Græjurnar / Re: 71 Pro-street Cuda-í vinnslu (UPDATE)
« on: October 09, 2010, 20:47:42 »
Herlufsen yeah that about covers it.

9
Bílarnir og Græjurnar / Re: 71 Pro-street Cuda-í vinnslu (UPDATE)
« on: October 07, 2010, 21:58:00 »
Æjæj voðalega eru þeir alltaf slappir þessir Mopar gúrúar ha ,alltaf gefist upp aldrei neitt klárað.Oft verið að spá í það hvort sortin fari svona með þá eða er bara ákveðin manngerð sem sækir í þessa sort hmmmmmm.

Í fyrsta lagi Auðunn, þá finnst mér nú þetta comment frá þér frekar dapurt, veit ekki betur en að ég hafi gert upp og klárað 1970 RT Challenger (Fjólu).
Í öðru lagi, verð ég að senda seinna commentið til föðurhúsanna, þar sem Hunts tómatsósucamarinn þinn er enn ókláraður eftir 25 ár.

Að lokum, eru kanski sumir bara að hanga á einhverju bílaprojekti sem þeim finnst sniðugt að eiga en hafa misst áhugan og koma ekki til með að gera neitt í því í framtíðinni, Ég vildi frekar að mitt projekt yrði klárað í góðum höndum, heldur en að láta jarða mig í bílnum.

10
Til sölu er Arashi hjálmur Fiberglas Kevlar í XS (54) svartur glans, notaður 3svar sinnum, sem nýr. Verð 25.000 Einnig til sölu Frank Thomas Goretex smekkbuxur og jakki í LS Kvenmannsstærð svart. Verð 35.000 leðurhanskar fylgja.(notað 3svar)

Tóti 663-2966

11
BÍLAR til sölu. / Til Sölu Oldsmobile Cutlass Supreme 1977
« on: March 23, 2010, 18:11:00 »
Alvöru Muscle car til sölu, Oldsmobile 455

Til Sölu Oldsmobile Cutlass Supreme 1977

Vél er ´69 455 nýlega upptekin frá grunni með Edelbrock álheddum, boruð 030, þjappa 10,2:1, MSD kveikja, MSD Digital6 kveikjumagnari, Nýr Holley Street Avenger 870 blöndungur, Lunati 318A2 knastur 272/276, Harland Sharp álrúllurokkerar, nýr startkrans, niðurgíraður startari, ný vatnsdæla, tímagír, damper, 7 lítra olíupanna, high pressure high volume dæla, mótorpúðar, AcDelco 100A rafall, 4ra raða vatnskassi omfl.

    Skipting er THD400, 2800 stall converter, djúp álpanna, shift kit

    Drif Original Olds 10 bolta, 2.70:1, læst.

    Felgur American racing TorgThrust II ÁLFELGUR , 15x8 framan, 15x10 aftan.

    Nær allt nýtt í bremsum, þ.e. höfuðdæla, diskar, skálar,

    Nýjir gormar og demparar hringinn

    Tvöfalt 2,5" Mandrel beygt pústkerfi með X-Pipe og Flowmaster kútum, Nýjar W-Z pústgreinar

    Nýr vinyltoppur, teppi, rallye pack mælar, fiberglas húdd.

Þessi bíll MÖKKVIRKAR, ekkert vesen, gengur hægagang, hitar sig ekki, getur rúntað í marga daga ef menn vilja án vandræða, getur kveikt í afturdekkjunum á gjöfinni fyrirhafnarlaust og hefur verið ekið á Akureyri frá Reykjavík á UNDIR 40 lítrum !!


    Verð 1.950.000 og uppítaka á bíl, jeppa eða mótorhjóli upp að 700þús er skoðað.

    Uppl í 772-7722 Bjarni

12
Almennt Spjall / Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
« on: March 06, 2010, 22:29:28 »
............og núna greiddur fyrir árið 2010, eftir ákvörðun stjórnar.

Þórður Ingvarsson

13
Almennt Spjall / Re: Spjall-Virkir skráðir meðlimir í KK
« on: March 04, 2010, 22:26:55 »
Greiddur frá 2003-2009  Ekki viss hvort ég vilji greiða 2010 eftir þessa ákvörðun stjórnar.
Þórður Ingvarsson

14
Almennt Spjall / Re: Verslun í US
« on: March 04, 2010, 17:39:53 »
Búinn að prófa þetta fyrirtæki og það lummu-virkar, ódýr og hröð þjónusta.
Bara gott mál.

Kv. Tóti

15
Bifhjól/Bifhjólahlutir Til Sölu/Óskast / Hjálmur til sölu
« on: March 03, 2010, 16:41:30 »
Til sölu er notaður Hjálmur Nitro N-800-V Svartur mattur í XL. Verð 15.000,-
S-663-2966

16
Sæll Harry.

Fyrir mér og svo mörgum öðrum er KK ekki eingöngu kvartmíluklúbbur, þó svo að nafngiftin bendi til þess. Þetta er staðreynd sem stjórn KK 2003-4 gerði sér grein fyrir á þeim tíma, vegna þess að kvartmílukeppni á vegum KK var að lognast útaf. (Ingó var formaður þá.)  Með því að skoða flokkana á spjallinu er Harðkjarnagengið einn daprasti spjallflokkurinn á kk spjallinu, það segir allt sem segja þarf, á spjallinu eru bíla og hjólaáhugamenn sem hafa gaman að skoða og tjá sig um þetta dót. Það má ekki gleyma því að margir aðrir en hardcore kvartmílukeppendur og greiddir meðlimir hafa veitt KK fjárhagslegan stuðning í gegnum tíðina í alls kyns formi, svo sem vinnuframlagi, gjöfum, lánað tæki á sýningar og fl. Vil ég benda á að þó ég segi sjálfur frá þá átti ég hugmyndina að Muscle-car deginum sem tókst frábærlega í fyrsta skipti og yfir 100 bílar mættu í blíðskaparveðri. Þetta framtak vonaðist ég til að yrði að árlegum viðburði enda mikil lyftistöng fyrir KK.

Eins og sjá má á þræðinum um lokunina þá eru menn mjög ósáttir við þessar væntanlegu breytingar, enda eru þær ekki rökstuddar af neinu viti. Hvernig er það betra spjall fyrir KK meðlimi að hafa þetta lokað til innskrifa öðrum en greiddum meðlimum. Ef veflögga KK er ósátt við skrif einhvers, þá er einfaldlega viðkomandi vísað af spjallinu.

Ef meðlimir KK eru eingöngu virkir kvartmíluáhugamenn, væru þeir innan við 50 talsins, og það vitum við báðir að KK lifir það ekki af.  Helsta áhyggjuefni mitt sem velunnara KK, er að með þessari framkvæmd fækkar nýliðun í kvartmílu, fækkar verulega umferð um vefin af almennum mótorsportsáhugamönnum, auglýsendur og styrktaraðilar fá minni athygli, erfiðara gæti reynst að fá menn til starfa fyrir KK, erfiðara að fá menn til að lána tæki til sýningshalds, og goodwill klúbbsins minnkar til muna.

Margir ógreiddir spjallverjar hafa póstað inn skemmtilegu og áhugaverðu efni um mótorsport á vefin. Mun sakna þess.

Kanski er þetta bara misskilningur í mér og KK bara fyrir hardcore Kvartmílukeppendur.

Þórður Ingvarsson


17
Hef verið að hugsa þetta lokunarmál á sjallinu ennfrekar.

Ekki verður þessi lokun á spjallinu til þess að auka nýliðun í sportinu svo mikið er víst, svo verður fróðlegt að vita hvernig stjórninni gengur að fá bíla á bílasýninguna í vor þegar helsta fjáröflun klúbbsins fer í gang, eftir svona framkomu. Þegar ég var í stjórn með Ingó 2003-4 að mig minnir, þá var aðalmarkmið KK að auka breidd og markmið klúbbsins og reyna að fjölga í honum með því að laða að unga fólkið á japönsku og evrópsku bílunum svo og Muscle-car eigendur.

Það tókst ágætlega enda verið uppgangur í klúbbnum frá ári til árs hingað til.

Ef að menn eru að reyna að losna við eitthvað óæskilegt bull af spjallinu með þessari lokun, þá er á hinn bóginn engin trygging í því að greiddir spjallverjar bulli ekki.

bara svona hugrenningar

Þórður Ingvarsson


18
Almennt Spjall / Re: Lokun á spjallinu
« on: March 01, 2010, 17:42:41 »
Þessi ákvörðun stjórnar var klárlega tekin í fljótfærni og ekki vandlega ígrunduð, þeir eiga eftir að hætta við þessa vitleysu, Ingó er nú betur gefinn en svo að hann sjái ekki að þetta séu mistök, enda er hann líka maður til að viðurkenna það.

Ef að rökin að baki lokunar sem þessarar eru þau að spjallverjar séu að skaða KK útávið, þá er hreinlegast að, eyða ummælum, víkja viðkomandi spjallverjum af spjallinu og loka á aðgang þeirra.

Svo ber að hafa í huga að þau fyrirtæki sem auglýsa á KK-vefnum eru að fá minni auglýsingu, þar sem aðilum sem heimsækja síðuna mun stórfækka.

Kk.
Þórður Ingvarsson

19
Ýmislegt Til Sölu/Óskast / Óska eftir steðja 25-50 kg.
« on: February 22, 2010, 17:30:52 »
Óska eftir steðja 25-50 kg.

S-663-2966

20
Er að leita að stólum úr nýlegum 2ja dyra tjónabíl, helst leðurklædda og með rafmagni.

toti62@internet.is

Pages: [1] 2 3 ... 17