Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - vollinn

Pages: [1] 2
1
BÍLAR til sölu. / Volvo S80-SELDUR
« on: August 11, 2011, 21:57:26 »
Bíltegund - Undirtegund : Volvo S80
Árgerð : 2000
Ekinn :163.000km
Skoðaður :2012 (okt)
Verðhugmynd er  : 1.290.000kr
Skipti :Já athuga á 4x4 bílum og jeppum upp að 2,5 milljónum.
Litur :Svartur
Bsk / ssk : Sjálfskiptur
Vél: 2,0L 179 hestöfl
Annað:  Loftkæling, hálfleðraður, radarvari, bakkskynjari, innbyggður sími, dráttarkrókur, er á 17".

Nýlega heilsprautaður á þessu ári, efri listar samlitaðir í leiðinni lakk er því mjög gott.  Nýbúinn í olíuskiptum og á sjálfskiptingu, ný skoðaður fram í október 2012 skipt um tímareim í ca. 142.þ (2009).  Ástand er mjög gott og hefur fengið gott viðhald síðustu árin í minni eigu.  

Myndir :













SELDUR

2
Varahlutir Til Sölu / 5mm spacer á Akureyri
« on: December 03, 2009, 17:24:10 »
Vantar endilega spacera 5 mm eitt par hérna á akureyri, þetta er fyrir 5x100 og þyrfti þetta fyrir sunnudaginn.

Ragnar 8652250

3
Á einhver ónotaðan Weber 34/36 blöndung með manual choke upp í hillu sem nýtist ekki lengur og væri til í að láta hann fyrir lítið ? 

Eða bara eitthvern 2-hólfa blöndung sem gæti verið svipaður, með manual choke þá ? 

Hægt að hafa samband í email : rabja86@hotmail.com - einkapóst eða í síma 8652250 Ragnar (ef ég er utan þjónustusvæðis er ég úti á sjó).


Bestu kveðjur

4
BÍLAR til sölu. / Volvo 240 1985 SELDUR
« on: October 28, 2009, 20:09:05 »
Jæja ég var að hugsa að því að selja einn af bílunum mínum hérna ef einhver hefði áhuga á að kaupa hann af mér.  En ég vill nú helst að hann fari í góðar hendur og það verði gert eitthvað af viti við hann og hann verði nú ekki eyðilagður enda mjög góður bíll fyrir utan ryðið.

En um bílinn:

Tegund: Volvo 244
Skráningarnúmer: R78694
Fastanúmer: HI366
Árgerð: 1985
Litur: Ljósblár
Slagrými: 2316 cm3
Afl: 81 kW
Orkugjafi: Bensín
Skipting: Sjálfskiptur

Hann er með rafmagni í öllum rúðum og allar virka vel, hann hefur eyðslumæli og voltmæli til auka við hina stöðluðu mæla. 

Hann er orðinn staðryðgaður á hinu vinsælu Volvo stöðum, en báðir sílsarnir á honum eru orðnir búnir alveg aftast og það alveg ónýtt að mínu mati og það þyrft að fá nýja til að gera það gott.
Hjólbogarnir orðnir slappir og búið að ryðga svolítil stykki úr þeim.  Einnig eru rasskinnarnar ónýtar í skottinu báðu megin, ég er að tala um þar sem varadekkin eru geymd.

Ég keypti þennan bíl fyrir um tveim árum síðan og var ég þá að bjarga honum frá því að fara í pressuna á sínum tíma.  En ég fékk hann af vinnufélaga mínum sem hafði átt hann og keyrt í 11 ár.
Hann tók upp heddið þarna fyrir .þrem árum og allt gert af Brimborg, svo hefur hann haldið honum í ágætis standi.

Ég hef nánast ekkert ekið þessum bíl, mesta lagi 20-30 km hérna í sveitinni og virkaði hann alveg ágætlega svona þannig lagað.

Engin rafgeymir er í honum.

En myndir eru hérna :

Hvítu blettirnir eru fuglaskítur.
































ATH !  bíllinn hefur ekki verið á götunni í um 3 ár og ég veit ekki betur en að núna sé búið að farga númerunum og þarf því að kaupa nýjar plötur.


Verðið er SELDUR og fer ekki lægra en það.

Bíllinn er á norðurlandi.

Ragnar SELDUR

5
Varahlutir Óskast Keyptir / Kasthjól í 850, S70 Volvo
« on: October 08, 2009, 22:20:40 »
Vantar swinghjól, kasthjól - (flywheel) úr volvo 850, S70 eða 960 bsk bíl  helst single disk kasthjól.

Ragnar 8652250 eða mail rabja86@hotmail.com

6
Er með ýmislegt til sölu úr skúrnum og er hér smá listi :

Sæti úr Volvo 240 árgerð 1987 Dökkgrátt/svart að lit ein rifa og gat í sessu :







Verð : 3þ

Heimasmíðað bassabox fyrir 15" keilu úr trefjaplasti sem passar í skott á Volvo 740 vinstra megin í skott, gæti þurft að betrumbæta þetta var ekki alveg fullklárað eiginlega bara mix :







Verð : 3þ

Vél og skipting í Volvo 240, kom úr bíl sem var árgerð 1987 vantar soggrein og blöndung á vél, einnig er swinghjólið farið úr, veit ekki hvaða týpa af skiptingu þetta er en vélin er B230K akstur man ég ekki á henni og hef ekki heldur prófað að snúa henni neitt.





Verð 10þ


Turbo grein fyrir T3/T4 túrbínur, þetta er svona af eBay eins og er alltaf verið að auglýsa þar, er minnir mig úr 304 ryðfríu efni.  Passar á B23 og B230 með 8V hedd ,svo fylgja með boltar og pakkningar.

VERÐ SELT

Volvo 244 árgerð 1982 sem er á uppgerðarstigi fæst til sölu, man ekki aksturinn minnir samt að það hafi verið öðru hvoru megin við 200þ km. Þyrfti sennilega að gera undirvinnuna aftur því að hann hefur staðið grunnaður svo lengi í húsi sem er raki í og því byrjað að hlaupa upp undir grunninum.

Hægt er að sjá myndir og fleira í linknum hérna :

http://volvochat.forumcircle.com/viewtopic.php?t=146&start=0&postdays=0&postorder=asc&highlight=

Verð 30þ

Best að senda mér email  rabja86@hotmail.com eða hafa samband hérna á síðunni í einkapóst því ég er oft á sjó og ekki í símasambandi.


Kv. Raggi

7
Varahlutir Óskast Keyptir / Ó/E í volvo 240 og 120
« on: September 08, 2009, 15:20:24 »
Mig vantar :

í Volvo Amazon framstykkið í 1966 bíl, alveg sama hvort þetta er trefjaplast eða stál, bara að það sé ekki ryðgað í drasl þá eða ónýtt.



Einnig vantar mig svart grill á Volvo 240 eins og þetta:




og ef einhver veit af svona á volvo 240 þá langar mig djéskoti mikið í svona :





Hafið samband hér í einkapóst eða í mail rabja86@hotmail.com eða símtækið 8652250

8
BÍLAR til sölu. / Subaru Legacy Station 1995
« on: September 03, 2009, 22:13:35 »
Subaru Legacy Station 4WD GL
Fyrsta skraning : 14.03.1995
Ekinn: 259þ
Næsta skoðun : 2010
Verð ásett : 250þ
Skipti: Já þá helst á jeppa en ekki neitt svaka dýrum
Litur : Grár
SSK
Aukabúnaður : Dráttarkrókur
Ný smurður, nýir kertaþræðir, ný kerti, nýlega skipt um tímareim um 5þ km síðan.  Fylgja með vetrardekk á felgum (nelgd dekk) en það eru bara 3 stk negld því eitt eyðilagðist og er því sumardekk á því.

netfang : rabja86@hotmail.com eða einkapóstur

Myndir:
















9
Evrópskt / Volvo 240 GLT [BRICK]
« on: September 03, 2009, 20:24:48 »
Fyrst að Volvo 240 er orðinn svona vinsæll á vefnum þá ákvað ég að smella inn mínum til að sýna öðrum :

Var svona :





Er núna svona :











Hann kemst ennþá neðar en hann er á myndum, eða um 7cm neðar að framan og 5cm neðar að framan.

Með þessu :



Í hann var sett núna nýlega nýjar spyrnur (klafar), allar fóðringar nýjar að sjálfsögðu, nýjar spindilkúlur báðu megin, nýjar bremsuslöngur, ný sverari ballansstöng að framan (25mm) og polyurethane fóðringar í hana, nýju strutarnir sem fylgdu coilover kerfinu.  Gormarnir að framan eru Eibach 300 in/lbs og að aftan eru þeir 250 in/lbs, ásamt þeim voru settir nýjir demparar (Bilstein Heavy Duty).  Einnig setti ég í dag GT style stífur í húddið frá strutturn og aftur í eldvegginn.

Það sem eftir er að gera við hann er að taka afturhásinguna í gegn, en í hana fer Dana 30 læsing sem ég á til í hillu hjá mér, einnig stillanlegar efri spyrnur, nýjar neðri spyrnur, stillanleg skástífa og sverari ballansstöng að aftan líka (allt til í hillu hjá mér ) \:D/

Þetta verður vonandi race einhvern daginn.

Afl af skornum skammti samt í þessu gleðivagni, er að huga að því núna hvar ég kræki mer í það.


Allir aukahlutir í svona bíla væru kærkomnir ef einhver vill losa sig við slíkt  :mrgreen:

KV. Raggi

10
BÍLAR til sölu. / Volvo Amazon 1966-SELDUR
« on: May 15, 2009, 22:52:55 »
[SELDUR

Var að fá fóðringar í framvagninn og stýrisenda og þetta fylgir með líka.

Volvo Amazon:
Árgerð 1966
4 dyra bíllinn
Akstur er óvitað því hann fer ekki hærra en 99.999 á mæli
Hann er bsk, þessi bíll er reyndar kominn með Volvo B230K vél úr 240 týpu með 5 gíra kassa (M47), ásamt því að það er komin Dana 30 hásing undir bílinn úr Volvo 240 líka.
Litur er svona blásægrænn.  Bíllinn er ekki í góðu standi og þarfnast uppgerðar að flestu leyti, en er sæmilega heill til þess.

Hægt er að sjá meira um bílinn hérna : http://volvochat.forumcircle.com/viewtopic.php?t=312

Engin 50þ. kr tilboð samt teknum og helst kaupendur sem hafa áhuga myndu hringja og sem hafa vit á hvað svona bílar þurfa mikla vinnu.

Skoða skipti helst á Volvo bifreiðum annars skoða ég allt nema eitthvað lánadæmi. 

Bíllinn er staðsettur út í sveit á norðurlandi og er ekki á númerum.  Með bílnum fylgja nýjir framluktarbotnar úr plasti, þéttigúmmí fyrir framstefnuljósin, nýtt bolta/ skrúfusett fyrir framendann.  Ný þéttigúmmí fyrir afturljós og bensíntanklok, nýjir krómaðir V-O-L-V-O stafir á húddið, gúmmíkubbar fyrir húddið til að drepa víbringinn.  Báðar orginal framhurðarnar sem eru reyndar soldið illa farnar af ryðmyndun.  Trefjaplast frambretti sem eru notuð, gömlu stálbrettin sem eru hálf ónýt, framendinn eða nefið sem er sandblásið og farið að falla á það að vísu og illa farið af ryði.  Ásamt ýmsu misnýtilegu Volvo Amazon gramsi í 3 kössum.  Það fylgir líka 0,25L af orginal litnum á bílinn og herðir í hann.

Myndir:





Allt nýtt í bremsum aftan eða upptekið og lakkað.



Hægra innra bretti.



Hægra afturbretti.



Vinstra afturbretti.



Vinstra innra brettið.





8652250 Ragnar
eða email rabja86@hotmail.com (er oftast úti á sjó)

11
BÍLAR til sölu. / Volvo Amazon 1966
« on: February 19, 2009, 19:20:43 »
 Volvo Amazon:
Árgerð 1966
4 dyra bíllinn
Akstur er óvitað því hann fer ekki hærra en 99.999 á mæli
Hann er bsk, þessi bíll er reyndar kominn með Volvo B230K vél úr 240 týpu með 5 gíra kassa (M47), ásamt því að það er komin Dana 30 hásing undir bílinn úr Volvo 240 líka.
Litur er svona blásægrænn.  Bíllinn er ekki í góðu standi og þarfnast uppgerðar að flestu leyti, en er sæmilega heill til þess.

Hægt er að sjá meira um bílinn hérna : http://volvochat.forumcircle.com/viewtopic.php?t=312

Engin 50þ. kr tilboð samt teknum. Skoða skipti helst á Volvo bifreiðum annars skoða ég allt nema eitthvað lánadæmi.

Bíllinn er staðsettur út í sveit á norðurlandi og er ekki á númerum.

8652250 Ragnar
eða email rabja86@hotmail.com (er oftast úti á sjó)

12
Varahlutir Óskast Keyptir / Framstykki í Amazon
« on: January 04, 2009, 20:38:55 »
Vantar framstykki (eða hvað það á að kalla þetta) á Volvo Amazon árg 1966 bíl

Þetta hérna má vera járn/trefjaplast en þó verður það að vera það heillegt að hægt sé að nota það.



Kv. Ragnar

8652250

13
BÍLAR til sölu. / Toyota Corolla Gti ´88
« on: April 08, 2008, 22:04:29 »
Toyota Corolla Gti '88
Ekin 181þ.
Blá að lit.
Nýlega upptekin vél, búið að ryðbæta hana alla, 2 1/4" púst, flækjur, hiclone, stutt loftinntak, k&n sía, short shift, nýr altenator, nýlegar 15" álfelgur (fimm arma) á nýlegum sumardekkjum.

Að innan : 4 hátalarar, bassakeila, tveir magnarar, díóðuljós á 15 stöðum blá og hvít. Auka einangrun kominn inn í hann þar sem hægt var að setja.

Það sem er að : Lakkskemmdir á húddi og hægri hlið.  Bremsulaus hægra meginn að framann,  ýmislegt sem þyrfti að dytta að.  

Missti aðstöðuna og hefur ekki tíma til að klára þenan bíl.  
Ef vélin er stillt upp á nýtt verður hann þrælskemmtilegur og snöggur upp.











Skipt var um mælaborðið og er hann ekinn 181þ.




Verð: Tilboð

867 6382 Gísli

Ég á ekki bílinn hringið í Gísla

14
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar í Amazon ´66
« on: November 18, 2007, 22:00:50 »
Sælir, mig vantar framljósabotna í Volvo Amazon árg. 1966 tvo stykki má vera úr aftermarked plasti, ekki endilega úr stáli eins og orginal.  Mínir botnar hrundu í sundur þegar ég var að taka þá úr, það var bara ryðið sem hélt þeim saman :?


Sést á myndinni hvað mig vantar, það sem er innan rauðu strikanna:


15
Alls konar röfl / Ensku hjálp
« on: July 18, 2007, 20:32:35 »
Veit einhver hvernig maður segir sílsi á ensku ?

Ég er ekki að leita að sílsakiti svo að þið vitið, er að leita mér að boddý hlutnum sjálfum til ryðbætingar.



Ekki Side skirts sko....

16
Bílar Óskast Keyptir. / Afabíll... Volvo
« on: July 09, 2007, 22:31:43 »
Sælir, þar sem maður er að fara selja S40 þá fer mig að vanta snattara til að vera á þar til maður finnur einhvern annan til að vera á.

Vill helst 240 bíl ekki station samt, má vera hvaða árgerð sem er.
Vill ekki ssk bíla, skoða bara bsk bíla.

Má þarfnast lagfæringar að einhverju leyti, og verður að vera sem minnst ryðgaður, akstur skiptir engu.

Verð verður að vera í lægri kantinum.

S: 865 2250 (Ragnar)

17
BÍLAR til sölu. / Volvo S40 til sölu
« on: July 02, 2007, 20:32:00 »
Eftirfarandi bíll er til sölu :

Tegund: Volvo S40

Orkugjafi: Bensín

árgerð: Nýskráður 8.11.96

skoðaður : Já fékk fulla skoðun í ágúst er með skoðun fram í ágúst ´07 (selst skoðaður ´08 )

Vélarstærð: 2L

Skipting: SSK

Ekinn: 192þ.

Drif: Framhjóladrifinn

Aukahlutir og búnaður:
*Leður  
*Topplúga,
*Viðarinnréttin,
*Rafmagn í öllu nema sætum,
*Premium Volvo hátalar,
*Geislaspilari
*Tölva sem segir manni eftirfarandi : Eyðsla núna, meðaleyðsla, meðalhraði, hvað er margir km eftir miðað við eldsneyti, hiti olíu, hiti vélar og hiti úti.
*Cruise control og ábyggilega eitthvað fleira sem ég er að gleyma.
 
Skipti?: Koma til greina já.

Verðhugmynd: 540Þ.

Myndir:











INFO :

Eftirfarandi var gert síðasta haust  :

*Ný tímareim með öllu tilheyrandi gert í um 177þ.
*Vatnsdæla
*Ný búið að taka heddið upp og plana og þrýstiprufa og allt tilheyrandi með því.
*Nýr vatnslás
*Nýr vatnskassi
*Nýlegir klossar að framan og diskar


Gallar:
*Framstuðari er brotinn og hefur verið það síðan ég eignaðist hann.
*Sprunga í afturstuðara (viðgerðarhæf).
*Reykingarlykt í bílnum og svolítil tjara í toppnum á honum
*Grjótbarinn

Ekkert breyst síðan síðast þegar ég auglýsti nema að hann er kominn með svart grill (orginal fylgir).







Gerið mér einhver gylliboð, tek hugsanlega skiptum á einhverjum bíl eða hlutum.

Gef upplýsingar hér og í PM einnig í síma 865 2250 (Ragnar)

BÍLLINN ER Á AKUREYRI

18
Varahlutir Óskast Keyptir / Aðalljós á Volvo S40
« on: May 29, 2007, 18:48:55 »
Mig vantar svört aðalljós og stefnuljós á Volvo S40 af Phase II bílunum, endilega að láta mig vita ef þú hefur svona undir höndunum. (Allt ljósafrontið eins og það leggur sig)


Svona ljós semsagt :






Ef einhver  veit um svona á landinu þá má hann láta mig vita líka, ég ætla ekki að panta þetta strax ef ég get fundið þetta hér á klakanum af einhverjum tjónabíl.

Ragnar 865 2250

19
Leit að bílum og eigendum þeirra. / amazon E804
« on: April 10, 2007, 00:35:30 »
Sælir spjallverjar, ég var að pæla hvort einhver ætti gamlar myndir af Volvo Amazon með númerið E804.


Kv. Raggi

20
BÍLAR til sölu. / Toyota Corolla Gti '88 til sölu
« on: February 04, 2007, 20:24:25 »
Toyota Corolla Gti '88
Ekin 171þ.
Blá að lit.
Nýupptekin vél, búið að ryðbæta hana alla, 2 1/4" púst, flækjur, hiclone, stutt loftinntak, k&n sía, short shift.

Að innan : 4 hátalarar, bassakeila, tveir magnarar, díóðuljós á 15 stöðum blá og hvít. Auka einangrun kominn inn í hann þar sem hægt var að setja.

Það sem er að : Lakkskemmdir á húddi og hægri hlið.
Það fylgir lakk og glæra með bílnum, það fylgir nýtt stýri í bílinn.
Önnur Corolla fylgir með og er gangfær og allt mjög gott í henni (Gti).

Ef menn vilja þá er hægt að fá nýjar 15" álfelgur (fimm arma) á nýjum sumardekkjum.

867 6382 Gísli

Pages: [1] 2