13
« on: November 17, 2007, 20:55:19 »
Ég hef verið að rifja upp ýmislegt varðandi vélar og tækni sem ég hef séð á götunni sl. 35 árin (já, allt í lagi, ég var fermdur 1968) og hef komist að þeirri niðurstöðu að aflmesta small block Chevy vél sem ég hef séð og heyrt í á götu hafi verið sú sem Hjörleifur Hilmarsson setti saman til nota í vissan mjög skelfilegan grænan Willy´s jeppa sem Albert og fleiri i þeim hópi hrelldu menn á hér veturinn 1976 - 77. (Hlöðver G. gæti líka hafa átt eitthvað í þessari vél, svo ég vil ekki taka það af honum heldur) Allir eiga sitt í þesari sögu og síst ætla ég að slíta af mönnum þær fjaðrir sem þeir með rettu eiga. So ....
Af þessari ástæðu vil ég lýsa eftir drasli úr 327 ..... ef einhver á.
Ein eftirminnilegasta spyrna sem ég sá ..... var í Kúagerðinu haustið 1978. Þar tókust á Chevrolet Monza 327 með tvo fjögurra hóllfa og kraftmesti "full body" bíll sem þá var á götunni .... með ónefndan Gunnarsson við stýrið. Mopar 440 að sjálfsögðu..
Monzunni stýrði sjálfur Nestor allra Chevrolet áhugamanna á Íslandi fyrr og síðar, Páll V-Áttundi.
Þetta varð síðasta spyrna haustsins 1978 og síðasta götuspyrnan sem fram fór með ólöglegum eða löglegum hætti (já, sbr. Beach Boys lagið, ..... "the bad guys know us and they leave us alone, I get around, round, round round, I get around, I get around, round, oooho, oohoo) ....og síðasta alvöru spyrnan sem fram fór á götunni áður en blessuð brautin þarna sunnan við öskuhaugana var opnuð. (hún var tilbúin í ágústlok 1978)
Það var alveg ógleymanlegt að standa þarna við veginn og þegar þessir tveir kraftmestu bílar á götum landsins þeyttust framhjá á c.a. 220 km hraða þá trekkti fyrsta snjó haustsins upp í rauðan bjarmann af afturljósunum. Monsan var á slikkum sem ég lagði til. Menn litu hver á annan og allir vissu að þessi tími var liðinn ......
It was the end of an era, eins og vinir vorir á Hot Rod Magazie voru vanir að segja .... en ég hef alltaf velt þessu fyrir mér síðan með 327 - vélina .... Hún er með algerlega perfect hlutföll. So, þar sem vélarnar eru minn fókus í dag, þætti mér gaman ef einhver á slátur úr svona vél sem á ekki að nota til að sigra breska heimsveldið með á næstunni. Ég var svo heppinn að fá að fylgjast með þegar 327 vélin var gangsett og stillt með tasvert miklum búnaði áður en þessi keppni fór fram og fyrir liðlega tvítugan strákbjána var það algerlega ógleymanlegt.....
Bill Jenkins náði alveg ótrúlegum árangri með þessa mótora ....331 pro stock anno 1972 ....
Næst: 425 OLDSMOBILE ROCKET ..... vélin sem Tony Nancy notaði til að slátra Chrysler Hemi vélum í árdaga Top Fuel drag racing anno 1966 ...