Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - Danni Málari

Pages: [1]
1
Ég er með þessa Kumho slikka til sölu. DOT merktir radial slikkar og því leyfðir í öllum keppnum.

Stærðin á dekkjunum er 265/45R16. Felgurnar eru 16" Compomotive rallyfelgur með gatadeilingu 5x114,3

Ein skemmd er í öðru dekkinu en það hefur ekki verið til neinna vandræða.

Nýtt myndi svona sett kosta í kringum 300þús.

Ég er tilbúinn að selja þetta á 35.000kr !



Mynd:



2
BÍLAR til sölu. / 2001 Ford Mustang til sölu
« on: July 04, 2011, 18:21:58 »
Mustang til sölu...

Árgerð: 2001
Ekinn: 63þ. mílur
Skipting: Beinskiptur
Vél: 3,8L V6
Litur: Rauður og svartur

Breytingar:
17" Bullit style felgur. (9" breiðar að framan, 10,5" að aftan)
Flækjur
Tvöfalt púst
Cold air loftinntak
Eibach lækkunargormar
Læst drif með lægri hlutföllum
Sérsmíðuð hliðarscoop
Filmur

Nýlegt lakk
Leðursæti
Ný dekk: 275/40 að aftan, 235/45 að framan. (verðmæti vel yfir 100þ samtals)
ATH. Skráður tjónabíll. Engir loftpúðar.
Nýskoðaður!

Verð: 1.390þ.
Skoða ýmis skipti, helst þó á ódýrari.
Góður staðgreiðsluafsláttur

Daníel
S: 662 6300


Myndir:



3
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar breið 17" dekk
« on: May 05, 2010, 18:10:28 »
Mig vantar tvö stykki 17" dekk. Breiddin þarf að vera á bilinu 275-315, prófíllinn 35-40. Mega vera eitthvað slitin en þurfa að vera skoðunarhæf.

Daníel
662 6300

4
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar mismunadrif í Ford
« on: April 26, 2010, 02:22:25 »
Sælir,

Mig vantar mismunadrif í 2001 V6 Mustang, skilst að þeir séu á 7.5" hásingu. Má vera hvort heldur sem er læst eða ólæst. Læst væri þó auðvitað kostur. Á ekki einhver svoleiðis fyrir mig á sanngjörnu verði? Í versta falli hlýtur einhver að vita hvar er líklegt að ég finni svona.

Kv.
Danni
S: 662 6300

5
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Hvenær verður aflýst?
« on: September 19, 2008, 00:55:52 »
Veðurspáin er ekki sú besta fyrir helgina þannig ég verð að kasta fram þessari spurningu. Hvenær verður síðustu keppninni aflýst? Þá meina ég ekki hvenær við fáum að vita hvort frestað verði keppni um helgina (þó það væri fínt að fá að vita það líka) heldur hversu lengi á að reyna að keyra þessa keppni. Það er nú kominn seinni hluti september og líkurnar á því að við náum að halda þessa keppni fara síminnkandi.

6
BÍLAR til sölu. / 2003 Nissan 350Z Supercharged
« on: June 28, 2008, 04:53:56 »
Jæja, þá er að prófa að auglýsa þetta tæki.

Tegund: Nissan 350Z
Árgerð: 2003
Vélarstærð: 3500cc
Skipting: 6 gíra beinskiptur
Drif: Afturdrif
Ekinn: 26þ mílur
Litur: Perluhvítur
Afl: 400+ hestöfl

Er með Vortech blásara kitti og á best 12.880 @ 109.22 á kvartmílunni enn sem komið er.

Ég vildi gjarnan eiga bara þennan bíl en það gæti verið erfitt þegar skólinn byrjar aftur í haust þar sem að ég er í erfiðu námi og vinn ekki með skóla.

Verð: 3.8m
Áhvílandi: 2.95m
Afborganir: 57þ
Skoða skipti á ódýrari.

Danni
S: 662 6300

Myndir...


Lenti á móti Trans-am í tímatökunum á bíladögum.


Á slikkum. Gæti verið að ég láti þá með bílnum en felgurnar sem þeir eru á fylgja ekki.


Eitthvað af dótinu sem fór í hann...


P.S. Er ekki með filmur í fremri rúðum lengur.

7
Jæja, þá er víst komið að því að maður þurfi að selja bíl. Bíllinn er búinn að vera í minni eigu í rúm 6 ár núna og reynst ótrúlega vel. Undanfarið hefur hann orðið fyrir þónokkrum breytingum eins og sjá má. Mig langar voðalega lítið að selja bílinn en sökum skóla þá verð ég. Bíllinn getur selst á 14, 15 eða 16" felgum.



Þetta er semsagt...

Nissan 100NX
Árgerð: 1992
Slagrými: 2.0 L
Ekinn 216.000 (hljómar mikið en hann á nóg eftir, hefur fengið gott viðhald nær fullri þjöppu)

Og svo kemur listinn...

Nýmálaður svartsanseraður
Samlitaður
Framenda breytt
Framljósaþurrkur af og götum lokað
Afturrúðuþurrka af og gati lokað
Loftnet af og gati lokað (nýtt nett loftnet í framrúðu)
Lituð ljós
Filmur

Pipercross loftsía
Opið púst
Nismo bensínþrýstijafnari
Walbro 255 bensíndæla
Þverstífa milli framdemparaturna
Short-shifter
Eco-tec eitthvað dót

Isotta stýri
Isotta mottur
Foliatec gírhnúður

Sony geislaspilari 4x52W
6x9" Kenwood afturhátalarar
16cm DLS framhátalarar
10" keila og magnari

Semsagt, bíll sem lítur vel út, virkar fínt (15,3sek kvartmíluna) og er með ágætis græjum. Hvað meira þarf maður? Verðhugmyndin er um 480.000 með möguleika á uppítöku á einhverju hræódýru og eyðslugrönnu, t.d. Sunny, Justy eða Corolla. Ef þið hafið einhverjar spurningar endilegar hafið samband í e-mail, pm eða síma (eftir hádegi).

P.S. Fyrir þá sem ekki vita það þá er t-toppur á svona bílum sem er náttúrulega snilld á sumrin.

Danni
S: 660 6300
e-mail: dtp[at]internet.is

8
Aðstoð / Ryðbætingar, hver tekur að sér svoleiðis?
« on: September 26, 2006, 23:45:43 »
Sælir

Mig langaði aðeins að forvitnast um hvort einhver viti hver tekur að sér að ryðbæta bíla. Þá meina ég hluti eins og innri bretti og kannski botn.
Einnig væri fínt ef einhver hefur hugmynd um hvað menn eru að taka fyrir svonalagað.
Ég er semsagt með bíl sem stendur til að skipta um body á en var að velta fyrir mér möguleikanum á því að nota hann þangað til án þess að afturbrettin séu laus frá innri brettunum og svoleiðis... koma honum í skoðunarhæft ástand.
Ef einhver tekur að sér svonalagað eða veit hver gerir það má viðkomandi endilega láta mig vita.

9
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar iðnaðarhúsnæði
« on: February 08, 2005, 19:08:33 »
Jújú, mig vantar víst að leiga iðnaðarhúsnæði. Helst á bilinu 70-100 fermetrar. Þarf að vera á höfuðborgarsvæðinu og innkeyrsludyr að sjálfsögðu skilyrði. Ef einhver er með eitthvað í þessum dúr þá endilega hafið samband.

Daníel
Sími: 662-6300
E-mail: dtp@visir.is

10
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar loftpressu
« on: February 05, 2005, 15:31:38 »
Eins og fyrirsögnin kannski gefur til kynna þá vantar mig loftpressu. Má vel vera notuð en þarf að afkasta að minnsta kosti 500 lítrum (fyrir juðara, sprautukönnur og þess háttar). Það hlýtur einhverjum hérna að vanta að losa við svona, right? Ef svo er, endilega setjið inn upplýsingar og verð.

Danni
Sími: 662-6300
E-mail: dtp@visir.is

Pages: [1]