Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - sako

Pages: [1]
1
Almennt Spjall / Re: Stjórnir Kvartmíluklúbbsins 1975 - 2016
« on: February 05, 2016, 20:48:39 »
Sælir félagar.

Ég er nokkuð viss um að ég hafi verið varaformaður 1977-´78

og alveg handviss um að Guðjón Árnason hafi verið gjaldkeri það sama ár.

Gjaldkerastarf hans var samfellt og mig minnir að ég hafi komið inn í stjórnina ári á eftir honum.

Jóhann A. Kristjánsson

2
Almennt Spjall / Re: Stjórnir Kvartmíluklúbbsins 1975 - 2016
« on: January 30, 2016, 17:46:58 »
Sæll Harrý Þór.

Það er alveg skýrt í mínum huga að við Örvar hættum í stjórn Kvartmíluklúbbsins 1982. Þetta vor, 1982 setti ég Corvettuna á götuna eftir þriggja ára upptekt og þessir tveir atburðir eru tengdir órjúfanlegum böndum í huga mér.

Hálfdán tók virkan þátt í starfi klúbbsins löngu áður en hann varð formaður 1982.  Ekki man ég hvernig hann kom að þessari sandspyrnukeppni sem þú nefnir en líkast til hefur hann verið keppnisstjóri hennar og því er eðlilegt að þú sért með skjal undirritað af honum.

Jóhann A. Kristjánsson

3
Almennt Spjall / Re: Stjórnir Kvartmíluklúbbsins 1975 - 2016
« on: January 24, 2016, 19:39:39 »
Sæll Harrý Þór

Örvar hætti sem formaður Kvartmíluklúbbsins á aðalfundi á vormánuðum 1982. Ég man að Hálfdán tók við af honum.

Ég hætti sama ár sem varaformaður en man því miður ekki eftir því hver tók við varaformannsembættinu.

Þetta var sama vorið og ég setti Corvettuna á götuna eftir þriggja ára upptektina og er því alveg skírt í huga mínum, þó svo að fennt hafi yfir ýmislegt á þessum árum. :D

JAK

Pages: [1]