Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - skrugga

Pages: [1]
1
Leit að bílum og eigendum þeirra. / Re: Camaro BA629
« on: August 04, 2009, 09:16:48 »
ég rak augun í þessa fyrirspurn og varð að svara.
Veit ekki hvort bíllinn er á ,,lífi" í dag en ég átti hann ásamt eiginmani mínum Hreini Elliðasyni árið 1978 til 1979 þá var hann á númerinu G 11199 vínrauður (bjuggum í Garðabæ)  með hvítum viniltopp, engin topplúga og ekki upp að aftan. Þá var í tísku að vera með tvær pústgreinar og svoleiðis ófögnuður var settur á hann í maí 79. vélin var 8 cyl. hann var sjálfskiptur man ekki hvort gírstöngin var á stýrinu eða í gólfi, minnir að hún hafi verið  í gólfi.
Hann var svo lágur að pannan undir sjálfskiptingunni dældaðist endalaust, kom gat á hana og glussinn lak af. Vegirnir þá voru ekki eins og þeir eru núna. Við keyrðum einu sinni frá Hvítárbrú og niður í Borgarnes á honum svona með glussabrúsana í bílnum og bættum stanslaust á þar til Hreinn gat soðið í pönnuna. Annað sinn frá Skeiðará og alveg til Hafnar í Hornafirði. Sumarið 1979 eignuðumst við dóttur og hún fékk stóran amerískan barnavagn, þar með var Camaroinn orðinn ómögulegur tveggja dyra hurðir sem maður rak í alla bíla í mílu radíus. Ég skipti honum út fyrir Dodge Aspen station sem við áttum í mörg herrans ár og endaði sem pickup á Akureyri. Hreinn rak þá járnsmíðaverkstæði og ferðirnar sem farnar voru á Dodge að sækja járn í slippinn voru ótaldar.
Ég á einhvers staðar myndir af Camaronum eins og hann var þegar við áttum hann, skal grafa upp og setja hér inn síðar, er nýflutt svo það gæti tekið smá tíma.






Veit einhver hvort BA629 er enn á lífi?  Það eru tvær myndir hjá Mola:


Félagi minn keypti þennan 1988, þá 16 ára en seldi nokkrum dögum eftir 17 ára afmælisdaginn, þá viss um að tónlistaráhuginn ætti eftir að bera hann lengra en bíladellan.

Kaupd.   Nafn   Heimili   Kóði tr.fél.
15.03.1989   Egill Arnar Rossen   Furudalur 1   
02.03.1989   Ólafur Theódór Jónsson   Danmörk   
08.02.1988   Þórhallur Magnússon   Bretland   
30.12.1987   Sjóvátryggingarfélag Íslands hf   Suðurlandsbraut 4   
26.03.1985   Gunnar Sveinsson   Spóarimi 1   
02.10.1984   Ólafur Gíslason   Suðurgata 17   
07.10.1983   Sigurbjörn Á Ragnarsson   Hafnargata 49   
30.05.1981   Hulda Þórsdóttir   Gónhóll 19   
27.03.1981   Ólafur Frímann Sigurðsson   Jörundarholt 123   
10.02.1983   Böðvar Sigurðsson   Gerðavegur 4   
05.12.1981   Guðmundur Óskar Sigurðsson   Iðndalur 1   
10.07.1980   Jón Þórðarson   Gilsbakki 8   
06.09.1979   Guðjón Ágúst Sigurðsson   Hákotsvör 2   
17.07.1979   Guðrún Sigurðardóttir   Stekkjarhvammur 8   
15.06.1978   Hreinn Ómar Elliðason   Bjarnarst

Innlagnarferill:
Dags.   Skýring   Staðsetning
05.12.1992   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
05.12.1991   Úr umferð (innlögn)   Óþekkt skoðunarstöð
27.03.1991   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
18.12.1989   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
08.12.1989   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
27.11.1989   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
20.11.1989   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
26.10.1989   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
22.09.1989   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
31.05.1989   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
03.05.1989   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
26.01.1988   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
09.07.1987   Í umferð (úttekt)   Óþekkt skoðunarstöð
25.11.1986   Úr umferð (innlögn)   Óþekkt skoðunarstöð
13.03.1986   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
05.11.1985   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi
01.11.1984   Í umferð (úttekt)   Frumherji Njarðvík
03.10.1984   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Njarðvík
21.06.1984   Í umferð (úttekt)   Frumherji Njarðvík
21.06.1984   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Njarðvík
19.05.1983   Í umferð (úttekt)   Frumherji Hesthálsi
11.10.1982   Úr umferð (innlögn)   Frumherji Hesthálsi

Númeraferill:
Dags.   Skráningarnúmer   Skráningarflokkur
03.05.1989   BA629   Almenn merki
19.04.1985   G22110   Gamlar plötur
21.06.1984   Ö2587   Gamlar plötur
19.05.1983   Ö2587   Gamlar plötur
23.06.1981   R24956   Gamlar plötur
06.09.1979   Y8977   Gamlar plötur
15.06.1978   G11199   Gamlar plötur
17.12.1976   F610           Gamlar plötur

Hann var víst með 350, 4 bolta Blazer vél og 350 kassa, gardínu á afturrúðunni og mig minnir að vinurinn hafi smá dældað afturendann í of miklum kunningsskap við 87 Dodge Airies sem bjó í næsta húsi.

Allar upplýsingar vel þegnar,
Valdi

Pages: [1]