Mælaborðsplatan og hvalbakurin voru mjög slæmir og þurfti að skipta um bæði stykkinn.
Þar sem þetta er sama efra stykki og er eins og á '69 Camaro þá þurfti ég að loka þessum tveim götum þar sem Novan gerir ekki ráð fyrir loftinntökum á þessum stað.
Gamla og nýja mælaborðsplatan, ég þurfti að smíða nýja brún þar sem coverið á mælaborðinu festist þar sem það er ekki gert ráð fyrir því á nýja.
Fékk nýja framrúðu og þurfti að máta hana í til að vera öruggur um að allt passar.
Eins og í sögu.
Frambrettið bílstjórameginn.
Ég ákvað að mini-tubba bílinn og fékk hjólskálar í hann frá Detroit Speed. Með þeim get ég farið í dekk sem eru allt að 325mm að breidd.
Þá var farið í að fjarlægja afturbrettin, ásamt ytri og innri hjólskálum.
Hér á eftir að skera 3" úr gólfinu og taka úr grindarbitanum.
Búið að sekra og þá er að loka grindinni, einnig þurfti ég að færa fjaðrirnar inn fyrir grind og smíðaði ég önnur fjaðrahengsli.
Allt mátað.
Keypti 15x10" afturfelgur frá Billett Specialties ásamt MT ET Street áður en öllu var lokað.
Allt eins og í sögu og þá er búið að festa innri og ytri hjólskálar, afturbrettið næst....
Bjó til flangs á gamla brettið og lét brettið falla ofan í hann.
Þessar panelklemmur koma sér mjög vel.
Smá föndur eftir inni í hjólskálinni þar sem skálinn frá Detroit Speed nær ekki alla leið niður eins og original skálin.
Eins og með allt aftermarket dót að þá passar það oft mjög illa, það þurfti á nokkrum stöðum að "láta" þetta passa, en allt gekk þetta vel á endaum.
Til sölu 4stk. 15" American Racing Torque Thust-D álfelgur. Þær eru með 5x4,75" felgudeilingu (passa á flesta GM bíla), eru 7" breiðar og með 3.75" í backspace, líta mjög vel út.
Dollaraverð er : 764$ og myndi nýtt sett flutt með ShopUSA hingað til lands vera 175 þúsund.
Held að þetta sé svona, eftir því sem ég best veit.
1967 Bragi Akureyri, kvartmílu/sandspyrnubíll. Hvítur Blæjubíll á Akureyri.
1968 Grænn Eiríkur í Blika Blár Rúdolf Grænn, Kristján fyrrv. formaður Bílaklúbbs Akureyrar. Boddy/bíll sem var blár, með skráningu af fyrrv. bíl Sævars Péturss (í uppgerð) Blár á Selfossi, X-1470 Vínrauður, keyptur ofan af Kjalarnesi 2012, þarfnast uppgerðar. '68 bíll, beige litaður í Eyjum, ekki verið á götunni í mörg ár. Svartur í eigu Einars í ET. Hvítur, innfluttur 2006-2007, ekki enn kominn á götuna. Vínrauður innfluttur 1999 í eigu Agga í Keflavík
1969 P-400, Rauður, búinn að vera hérlendis lengi. Flöskugrænn, innfluttur 2007. Grænn, innfluttur 2007, ekki kominn á götuna,
Þú borgar nú æfingagjöld í hvaða íþrótt sem er sem byrjandi. Það verður ekki fyrr en þú ert lengra kominn (atvinnumaður) þar sem allt er greitt fyrir þig og þú færð laun fyrir, það er ekkert öðruvísi með kvartmíluna.