8
« on: June 05, 2009, 01:06:44 »
Mig hefur lengi langað til að vita hvað varð af Chevelluni sem pabbi átti fyrr á árum. Þetta var
Chevelle 2dr hardtop, 300 de luxe, með 350 cu. in. V8 mótor, 4 hólfa tor,Q-Jet, beinskiptur, 3 gíra í gólfi.
Hann var keyptur í sölunefndinnin 1970 eða 1971, þá keyrður innan við 20 þús. mílur, ljósblár metall
Svona eftirá að hyggja var þessi bíll mjög sérkennilega útbúinn, ekkert vökvastýri og ekkert A/C, samt seldur nýr í Stillwater Oklahoma,(Merktur Stillwater Chevrolet hér og þar, á skottinu með málmmerki og með límmiðum í húddinu), enginn teppi, original tvöfalt púst o.fl. sem virtist til að létta bílinn. Það var ekki í honum læst drif, svo maður gat spólað með hægra afturhjólinu eins mikið og maður vildi, hvar sem var. Gegnum fyrsta og smá í öðrum, ef maður var fljótur að negla hann upp á gírstönginni.
Pabbi var alltaf með númerið R 1377 á sínum bílum, og lét þennan bíl uppí nýjan Mercury (name withheld)
hjá Sveini Egilss. hf, 1974.