1
Bílarnir og Græjurnar / Re: Tiltekt
« on: January 17, 2005, 23:41:06 »Quote
Það er engin að segja að þú megir ekki vera hérna inni, þetta er jú spjall áhugafólks um kvartmílu, þó að einstaka menn sjái bara amerískt og móðgist þegar 4cyl túrbó bíll hefur betur en V8 rokkurinn. Þér er velkomið að hafa þínar eigin skoðanir á hlutunum, öllu neikvæðu/móðgandi er best að halda fyrir sig, auk þess telst það óþarfi að rakka niður og móðga viðkomandi því best að sleppa því, ef ekki bendi ég þér á spjallsvæði www.live2cruize.com þar sem þú ættir að geta fundið þér eitthvað fyrir þitt hæfi.
Einnig er ágætt að benda á að það fyrsta sem þú skalt gera áður en þú leggur inn innleg á þetta spjallborð er að þú skalt kynna þér REGLUR þess! þar kemur eftirfarandi fram...Quote from: "69 Camaro"
Af gefnu tilefni þá skal það hér með ítrekað að með því að skrá sig inn á spjallrásir KK þá hefur þú samþykkt að senda ekki inn nein innlegg þar sem kemur fram móðgandi, særandi, dónaleg, hótanir, hatursfull, kynferðisleg eða annað efni sem getur verið bannað samkvæmt lögum. Ef slíkt kemur fyrir þá verður viðkomandi útilokaður frá öllum samskiptum á þessum spjallþráðum.
Vinsamlegast skrifið fullt nafn undir skrif ykkar hér á spjallið. Ef um nafnlausan leiðindarpóst er að ræða þá verður honum hent út.
Ekkert persónulegt rifrildi verður heldur liðið hér inn á spjallþráðunum. Hér eiga áhugamenn um Kvartmílu að geta átt góðar stundir án þess að lesa einhvern leiðindapóst í leiðinni.
kv.
Ari Jóhannsson
ritari KK
úps.....