1
Chrysler / Re: Guli ´71 "Indjána" Challenger-inn
« on: December 18, 2013, 00:55:56 »FlotturÉg stórlega efa það að þetta sé orginal Sixpack því þetta er ekki einu sinni orginal mótor í bílnum (upphaflega 318), en Bjarni sagði að þetta hafi aldrei virkað og var erfitt að stilla svo hann aftengdi þetta og notaði bara miðju tvo blöndungana.
Bara pæling, er þetta orginal sixpack? Er ekki synd að fjarlægja það eða verður þetta aldrei til friðs kannski.
Sælir félagar.
Af hverju í veröldini væri "RÁÐ" að láta mála yfir strípurnar?
Þær eru það sem gera bílinn sérstakann og nostalgían svifur yfir vötnum þar sem bíllinn er extra flottur svona.
Hann var á sínum tíma málaður eftir forsíðubíl á "Pppular Hot Rodding" tímaritinu, og sá bíll var margfaldur verðlaunabíll..
Bíllinn sker sig úr svona málaður og persónulega finnst mér að það væri sind að fá einn enn "original" Challenger-inn í flotann.
Ég var að bíða eftir því að hann Bjarni vinur minn myndi setja bílinn á göturnar til að ég gæti myndað hann fyrir forsíðuna á Mótor & Sport, og ég vona að Atli leyfi mér að mynda hann þegar hann verður tilbúinn.
Kv.
Hálfdán.
Eins og staðan er í dag þá er ég ákveðinn í að láta mála bílinn "einhverntíma í framtíðinni" en svo eru þó nokkrir sem ég er búinn að tala við + þeir sem hér hafa skrifað sem vilja bara "ALLS EKKI" að bíllinn verði málaður því nostalgían hér er algjör og mér finnst þetta líka fjandi flott.
En hvað sem tímanum líður þá mun þessi bíll "ALDREI" verða orginal og ég hef mína hugmyndir um hvernig ég vil hafa hann í framtíðinni
hér er linkur á það sem mig langar að gera, bæði hvað varðar lit, mótor (6.4L) og hæð á bílnum
http://www.carcraft.com/featuredvehicles/ccrp_0805_1973_dodge_challenger/
En ef þig langar að taka mynd af bílnum í sumar Hálfdán þá er það meira en velkomið, bara um leið og mínir hjálpar og meðreiðarsveinar eru búnir að gera það sem þarf að gera, því ekki get ég gert það frá Þýskalandi
Gaman væri ef þú gætir bent mér á myndir eða link af fyrirmyndinni í Ameríku hreppi