Ég hef átt Hilux, 4runner og Patrol. 4Runnerinn er ágætis bíll, en með V6 bensín mótornum, þá færðu hvorki afl né tog og alltof mikla eyðslu. Þar sem ég átti minn nú ekki lengi, þá veit ég svo sem ekki með bilanatíðni í þeim, en mér fannst þetta fínn bíll að ferðast á. Hiluxinn er náttúrulega mjög svipaður 4Runner, sama innrétting og svoleiðis, ég átti einn með 2,4 dísel mótor, ekki mikið afl, en á móti kemur að eyðslan var líka nánast engin. Hann bilaði nú ekki nú mikið hjá mér á meðan ég átti hann, em það er reyndar auðvelt að fá varahluti í þessa ennþá, þeir voru sem betur fer ekki allir fluttir úr landi. Svo komum við að Patrol, það eru bílar sem ég er mjög hrifin af, rosalega þægilegir bílar að ferðast á, endalaust pláss í þeim og þægilegir í akstri. Þessir sem ég hef átt, hafa nú ekki verið að eyða neinu svakalegu, verið með þá í kringum 13 á hundraði innanbæjar, sem mér finnst nú ekkert svakalega mikið fyrir þetta stóra bíla. Það fer nú ekkert svakalega mikið fyrir afli í Patrol, enda segi ég alltaf að hraðinn drepur, þess vegna fær maður sér Patrol og lifir að eilífu
en þeir reyndar toga fínt og og maður einhvern veginn kemst alltaf á áfangastað. Vonandi að þetta hjálpi eitthvað.
ps. Ef þig vantar jeppa, þá ég einn Patrol sem ég þarf að losna við, getur haft samband ef þú hefur áhuga.