Hér koma loksins myndirnar frá mér síðan á opnunarmótinu. Áhvað að taka þátt í keppni á L2C og mátti því ekki setja myndirnar inn fyrr en keppni er lokið, og henni er lokið núna
Myndirnar eru mjög lítið unnar. Kann ekkert á photoshop svo það eina sem ég gerði var merking og smá contrast þar sem þess þurfti, sem voru ekki allar myndirnar.
hugsa að það gæti verið gaman að halda spyrnu þarna niðri, reyndar spurning hvort það væri hægt að gera bremsukaflann lengri/betri svo draggar geti keyrt líka
ég get einhverra hluta vegna ekki breytt fyrra innleggi svo ég set þetta bara í nýjann póst...
Það vantaði hvað er hvað á þessum myndum, kannski útskýrir það myndirnar betur, hver veit.
Bratta brekkan á myndum 1&5 er inngangur að brautinni, hún byrjar í ca 45° halla og verður svo þó svoldið brattari aflíðandi brekkan sem sést illa á myndum 2&3 er vegurinn til baka að rásmarki. Svo er mynd 4 af brautinni sjálfri.
Hafa verður í huga að það er verið að vinna í þessari braut núna og þetta verður vonandi komið í gott stand á morgun. Ennþá á eftir að taka meiri halla úr inngangnum, myndi persónulega halda að 45° halli væri nógu aflíðandi ?
Það á líka eftir að slétta úr veginum í gilinu að brautinni sjálfri.
En þetta kemur allt í ljós á eftir þegar ég fer með myndavélina og reyni að ná betri myndum af þessu.
hér eru myndir sem ég tók fyrir Gumma í gær. Er að fara á eftir að fara yfir staðsetningarmál hjá Svani (s.s hvar ég má vera að mynda) og smelli eflaust nokkrum myndum af brautinni eins og hún er núna.
Ég áhvað fyrst ég á heima rétt hjá Hellu að kíkja útí gryfjur að athuga hvernig þetta væri. Þetta lýtur mun betur út en maður býst fyrst við, það er verið að vinna að því að fjarlægja beygjuna. Það er maður að vinna á jarðýtu núna og það gengur að mér skilst mjög vel.
Svo skoðaði ég aðeins hvernig brautirnar eiga að vera og þessi helgi verður án efa MJÖG skemmtileg!
Það er búið að snúa þessu öllusaman þannig að áhorfendapallarnir verða öfugum megin miðað við fyrri ár.
held örugglega að það sé verið að tala um að halda þessa sandspyrnu í torfærugryfjunum á Hellu.
Mér finnst það persónulega vera BULL, en það getur vel verið að það geti verið gaman af þessu, ætla ekki að dæma þetta algerlega áður en ég sé hvernig þetta á að vera