501
Bílarnir og Græjurnar / Annar frægur
« on: February 04, 2007, 16:28:03 »
Kryddaðar sögur eru góðar. Hér er ein upp úr grein í ævagömlu riti sem KK gaf út um umræddan Shelby. Viðkvæmum lesendum er bent á að textinn er tekinn orðréttur upp úr ritinu:
Beðinn um að segja góða sögu af sér og bílnum svarar Arthur Bogason orðrétt:
"Ég skal segja þér það drengur minn að það er stórt og rammgert járnhlið fyrir síldarplaninu frammi á Krossanesi. Og þetta hlið tel ég mig eiga. Eitt kvöldið fórum við frameftir til að spóla á planinu. Settum við fyrst olíu fyrir dekkin og spóluðum í henni. Þegar olíuna þraut gripum við til þess bragðs að setja grút fyrir dekkin og spóla í honum. Tókst það svo vel að allt planið huldist bókstaflega í reyk og held ég að við ættum að flytja grút út til Bandaríkjanna svo að kanarnir geti spólað í honum. Spólið gekk svo vel að ég eyddi upp nýjum dekkjum í tveimur grillum. Tveimur dögum síðar ætluðum við að fara og endurtaka leikinn en þá var heill vinnuflokkur mættur á staðinn með rafsuðutransara og voru þeir að smíða hliðið. Fengum við hjá þeim óblíðar kveðjur svo við flýttum okkur í burtu. Eftir það er ekki hægt að komast inn á planið til að spóla."