481
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Breytingatillögur í MC flokk
« on: March 18, 2007, 16:53:24 »
Nú sýnist mér sumir hafa tekið 180 gráðu beygju (sem er bannað í kvartmílu).
Í öllum geirum kappaksturs (IHRA, NHRA, NMCA, NASCAR, F.A.S.T o.s. frv.) er er ein höfuðhugsunin á bakvið flokkareglur að jafna keppni, gera hana meira spennandi og laða að keppendur, áhorfendur eða kostendur.
Í ofangreindum MC reglum er ástæða til að ætla að keppendum fækki enn frekar en verið hefur vegna þess að þróunin í flokknum undanfarin ár er í þá átt að bílar undir 11.99 verða normið. Þeir munu hætta sem ætla ekki setja veltigrind, fimm punkta belti og keppnisstóla í bíla sína til að elta þá betri í þessum flokki undir 11.99. Ofangreindar MC reglur leyfa drag radial dekk en hönnun þeirra er í það örri þróun að gæðabilið á milli þeirra og slikkanna minnkar stöðugt. SE og MS (verði hann notaður) eru ágætir valkostir fyrir keppendur MC bíla sem komnir eru undir 12. sek.
Sumir sem vilja ekki sjá veltigrind/keppnisstóla/5 punkta belti pakkann væru þó til í að keppa í heads up flokki. Það væri því skynsamlegt að KK ætti á lager reglur fyrir street entry plain radial tires only heads-up flokk, þegar MC flokkurinn (í þeirri mynd sem hann er hér að ofan) hefur runnið sitt skeið.
Sumir þeir keppendur sem núna eru komnir í sub. 10 sek e.t. voru í byrjun keppnisferils síns sinni að dóla á 14, 15 eða 16 sek. á sínum tryllitækjum. Slíkar ferðir kveiktu áhugann á að fara hraðar og hraðar og nýliðun varð meðal keppenda. Með ofangreindum reglum eru líkurnar á nýliðun í MC litlar því að það er lítill hvati, eða ánægja, fyrir þann sem er á 14-16 sek. tæki að stilla upp á jöfnu við sub. 12 sekúntna bíla.
Reynið ekki að halda því fram að tryllitækjaeigendur vilji ekki koma og keppa af því að vegurinn að brautinni er slæmur eða að þeir vilja bara bóna. Á DVD diski sem KK gaf út um vel heppnaðan Tryllitækjadag má sjá marga eigendur venjulegra tryllitækja spyrna hver við annan. Það hlýtur að vera verkefni KK að reyna að laða þetta fólk, sem sýndi þarna smá áhuga, til keppni. En þeir koma örugglega ekki ef að keppinautar þeirra verða allir á sub 12 sek. bílum.
Og komið ekki með þetta bull að drag radial dekk séu götudekk og lögleg á götu hér. DOT merking dugar ekki hér og framleiðendur þeirra hafa aldrei haldið fram að þau séu venjuleg götudekk.
Ragnar
PS: Hvaða reglur gilda í MC ef að ofangreindar reglur verða EKKI samþykktar?