Heyrðu Jakob, það má auvitað ekki vera þannig að enginn þori að segja neitt um neitt á þess að vera beðinn um að gera það hið sama þá og þegar. En segðu mér eitt, hvers vegna er það að svona margir eru til í að sjá það sem betur má fara og skammast jafnvel út í menn sem eru þó að reyna að gera eitthvað (þú varst reyndar ekkert að skammast, það var annar sem ég lenti í) ? Hvers vegna er það að þegar ég setti þennan póst
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=16382 fram að
enginn gaf sig fram til að hjálpa okkur ? Mér sýnist að það séu 150 búnir að skoða póstinn núna. Og hvers vegna er það að þegar ég hringi í menn sem eru búnir að bjóða fram aðstoð sína í vetur sem leið, þá geta þeir aldrei komið þegar maður hringir ? Hvers vegna hvílir þetta á svona fárra höndum ? Hvers vegna fæ ég ekki að þakka fleirum heldur en þessum örfáu sem voru þó svo almennilegir að hjálpa til við að halda keppnina ?
Í keppninni um daginn gleymdist að redda hljóðkerfi og það skrifast hreinlega á mig, núna hins vegar var búið að kaupa hljóðkerfi en enginn fékkst til að tala í það svo að keppnisstjórinn þurfti að gera það ásamt öllu öðru og finnst mér það ekkert merkilegt þó að hún hafi eitthvað stytt það sem hún þurfti að segja og gert það þegar hún gat.
Þakka þér fyrir ábendingarnar en ég held að þetta hafi verið ljóst og það vanti bara fleiri hendur til að gera þetta allt.