Já Einar, svo eru menn hissa á því að stjórnarmeðlimir síðustu stjórna hafi ekki viljað tjá sig á netinu. Þú getur séð að það er ekki auðvelt. Ég verð að segja að við hefðum svosem getað sagt að við myndum bæta úr þessu öllu fyrir næstu keppni og svo ekki getað staðið við neitt vegna þess hve við erum hlaðin verkefnum þessi fáu sem í þessu standa. Að benda á það að það vanti mannskap finnst mér vel viðeigandi finnst að þetta kemur upp.
Svona komment um að maður snúi sér að skautadansi er ekki beint uppörvandi fyrir þá sem í þessu standa. Það var ekki verið að ausa skít yfir neinn, mér sýndist aðeins verið að benda á vöntun á mannskap eins og þeir voru að benda á hitt.
Það sem ég er að tala um, er orðalagið hjá Agnari og Söru, frekar fráhrindandi og allt að því dónaleg framkoma við viðskiptavin Kvartmíluklúbbsins... ég veit alveg hvernig málin standa varðandi mannskap og annað, en það má koma því öðruvísi frá sér. Þessi klúbbur er rekinn sem fyrirtæki er það ekki? Það eru ákveðin útgjöld og ákveðin innkoma, innkoman þarf að vera meiri en útgjöldin, annars fer þetta á hausinn.
En ef svona er talað við viðskiptavininn þá hættir hann að versla við fyrirtækið (mæta og borga sig inná keppnir í þessu tilfelli). Er það ekki? OG einnig konan hans og börnin tvö, annað eldri en 14 og hitt yngra en 14 (ath þetta er bara dæmi út í loftið, þekki ekkert til þessa ágæta mans), því ekki nenna þau að versla við þetta fyriræki sem kemur svona fram við viðskiptavinina, Þarna fór 3000kr og hvað verður þá um innkomuna? 3000 kall er svosem ekkert mikið í sjálfum sér, en þegar þetta eru orðnir 10 X 3000 kall? Afþví að viðskiptavinunum er bara sýnd ókurteisi og frekja?
Ef þú kæri Nóni ferð á saabnum útá bensínstöð (í þessu tilfelli A-S bensín), og biður um að láta mæla olíuna, svo þegar þú sérð að nýráðinn dælumaðurinn getur ekki opnað húddið (því það opnast í öfuga átt á saab), bendir þú honum á í rólegheitum að opna það í hina áttina.
Nema hvað, hann brekst hinn versti við, urrar og hreitir á þig; EF ÞÚ HELDUR AÐ ÉG GETI ÞETTA EKKI SKALLTU BARA GERA ÞETTA SJÁLFUR!
Ferðu aftur á þessa bensínstöð
p.s. ég hef ekkert gaman að skautadansi
__
Yfir og út. Kveðja Einar Ásgeir
Það er SAABnum ef þú vissir það ekki
Nei annars, það hefði kannski átt að sleppa því að vera að tjá sig eða svara eins og ég sagði hér að framan, maður má aldrei segja neitt því þá er maður búinn að móðga hálfa þjóðina. Ég viðurkenni að þetta fer líka í pirrurnar á mér og mig langar stundum að segja "GAUR!!!!! ertu ekki að skilja þetta ??????" þegar menn koma með sömu ræðuna aftur og aftur sama hve oft er búið að svara þeim. Í stað þess að koma með lausnir tapa menn sér í vandamálunum.
Mér fannst sumir hérna vera að skíta út keppnina á okkar eigin vef og það finnst mér eiginlega dónaskapur.
Ég er líka búinn að biðja menn um að vera kynnar á keppnum en uppskorið lítið. Við verðum víst að halda áfram að vinna að þessu og halda í okkur pirringnum þegar athugasemdir berast en ekki hjálparhendur. En í alvöru, eru menn ekki að fatta það að við erum alveg meðvituð um hvað er ekki nógu gott, okkur vanti bara fólk ?