Ég hef ekki séð þessar tillögur um hækkun aldurs á prenti, en væri gaman að sjá þær ef þetta er ekki bara í "umræðunni" eina ferðina enn.
Persónulega finnst mér þetta frekar snúast um bætta kennslu eða öllu heldur bætta kennsluaðstæður og það virðast allir vera sammála um.
Samgönguráðuneytið er búið að vera vinna í þessum málum og má lesa um niðurstöðu starfshóps þeirra varðandi þetta hér
http://www.samgonguraduneyti.is/malaflokkar/umferdamal/frettir/nr/1743 Þetta er mikið baráttumál bæði fyrir KK og BA þar sem framtíðar brautarstæði þessa félaga koma til með að ráðast mikið á því hvað verður úr þessu máli, sér í lagi miðað við aðstæður í þjóðfélaginu í dag!
kv
Björgvin