Þá er ég að tala um spjallþráð varðandi umferðar mál og ökuhraða
![Question :?:](http://spjall.kvartmila.is/Smileys/phpbb/icon_question.gif)
Þennan
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=16753
Mér er alveg sama hversu illa þér er við menn og hversu slæmir þeir kunna að vera, það á ekki að vera með persónulegar árásir eða bögg hérna, þetta er bara ekki staðurinn. Reyndu frekar á röfl.is.
Með þessu tek ég enga afstöðu í málinu, ég má það alls ekki þó að ég vildi.
Með því að hreinsa út þræði á þennan hátt þá ert þú að taka afstöðu VINUR,ef að það má ekki tala um hluti eins og umferðar mál og hvernig þessir hlutir koma alltaf aftur og aftur í formi þess að við sem eigum bíla sé einum um að kenna þegar að slys verða þá ert þú annað hvort að taka pólitíska afsöðu í þessu máli eða hreinlega að stunda kinverska rit skoðun.
Mér er ekkert í nöp við mennina sem um var talað heldur hvað þeir standa fyrir og hvernig þeir koma fram við fólk með endalausu bulli og blekkingum og með því að linka inn þessu um um útekt EuroRap á umferðar mannvirkjun þá var ég að sýna fram á það að ég hafði rétt fyrir mér að einhverju leiti.
Það er nefnilega ekki bara hraðinn einn og sem veldur slysum heldur er gatnakerfið og vegir landsins fullir dauðgildrum.
Og ef það má ekki benda á það hér þar sem menn lifa fyrir það að komast hratt og ná betri tíma en næsti maður þá veit ég ekki hvar á að tala um svona hluti.
Svo að lokum þá ætla ég að benda þér á það Jón Gunnar svona hroki eins og þú ert tilbúinn að sýna mér með því að benda mér á það að fara á röfl.is er hvorki þér eða þessum klúbb til sóma reyndu frekar að vera málefna legur og í það minnsta að sýna þann þroska koma vel fram við fólk hér þótt að þér finnst greinilega sumir ekki vera þess virði eða þá vera það heimskir að þeir verskuldi ekki almennilega framkomu.
Linkur um útekt EuroRap á vegum landsins:
http://www.us.is/scripts/WebObjects.dll/US.woa/wa/dp?detail=2477&name=frett_ny
Bíddu nú aðeins og vertu rólegur, ef þú vilt tala við þessa menn sem þú varst að mynd og nafngreina þá ættirðu frekar að pósta inn á
http://www.lia.is nú eða byrja umræðuna aðeins öðruvísi heldur en með þeim hætti sem þú gerðir. Svo gætir þú líka skrifað undir nafni í stað þess að fela þig til þess að geta staðið fyrir máli þínu. Við höfum hreinsað út persónulegar árásir hingað til og munum gera það áfram. Það er líka hægt að skrifa í blöðin og senda bréf til hlutaðeigandi aðila.
Ég tek að sjálfsögðu ekki afstöðu í málinu en mér hefur verið falið að fylgjast með þessu spjalli hérna og það er yfirleitt auðvelt en stundum þarf maður að taka ákvarðanir sem ekki öllum líka.
Þér er velkomið að stofna spjallþráð um umferðaröryggi og íslenska vegi o.sv.frv. Bara ekki byrja á eða vera almennt með eitthvað persónulegt.
Að ég segi þér að fara inn á röfl.is er nú ekkert annað en léttvægt grín sem þú ert nú sennilega of pirraður í augnarblikinu til að taka vel.
Með kærri kveðju og von um nýjan spjallþráð með minni heift.