321
Leit að bílum og eigendum þeirra. / '71 Cuda
« on: October 20, 2007, 23:28:04 »
Well.... Í Bifreiðaskráningu er VIN númerið ekki rétt skráð. Það er 0223H1B150356. Fyrstu tveir stafirnir eiga að vera bókstafir en ekki tölustafir (BH fyrir Barracuda og BS fyrir 'Cuda). Sem betur fer fokkaði Bifreiðaskráning ekki öðru í þessu VIN númeri (annað en Hurst SKIPTINGARNAR sem voru greinilega til á öllum íslenskum bílasölum þarna '70ogstúrkál) en 23H1B þýðir á Mopörsku að þetta sé 340 'Cuda. Hún var framleidd í samsetningaverksmiðju Chrysler í Hamtramck, Michigan ásamt 2.999 öðrum 340 'Cudum það árið. Sá sem ók henni út úr verksmiðjunni hét líklega Cletus og var frímerkjasafnari af guðs náð og átti er þarna var komið sögu nokkuð feitt safn. Skaut á sig 12 dósum af Coors á vaktinni og var Lions fan.