ég þekki allavega 5 fyrri eigendur að bílnum, hann var málaður á akureyri í fyrra og í leiðinni lagað stórt tjón sem var á afturbrettinu hægra meginn eftir að hann rann stjórnlaus framan á vw rúgbrauð í hálku, annars held ég að þetta sé nú bara alveg ágætis eintak, veit að sá sem átti hann á ak og lét mála hann gerði helling fyrir hann en ég hinsvegar hef ekki heyrt neitt um að það hafi verið skipt um hreyfilinn í honum, nokkuð viss(ekki alveg samt) að það sé bara sama gamla 305 rellan í honum... en gaman að segja frá því að fyrsti skráði eigandinn á þessum bíl hér á landi, 1987, er ingó formaður..