Þetta var nú leiðinda keppnin....skítakuldi og ÖRFÁIR sem kunnu að spóla! Ég meina það var 3,5tonna jeppi sem Driftaði betur en flestir þarna! Segir það ekki eitthvað? Og einnig að næst kraftmesti bíllinn vann sem mér fannst ekki vera rétt niðurstaða en eins og Baldur sagði þá er ekki hægt að dæma nema með sem persónulegt álit...mér fannst fullt af bílum standa sig betur en þeir sem lentu í topp 3!
Vandamálið var bara að það er engin aðstaða til að æfa sig og mér fannst brautin of flókin! Menn vissu ekki alveg hvað snéri upp og hvað niður enda örugglega orðnir soldið ringlaðir eftir alla hringina OG í myrkri!
kv, Ásgeir
Þetta var ekki keppni í að spóla!
Ef þú veist ekki hvað drift er þá er lítið fyrir þig að þykkjast vita meira en aðrir um hverjir standa sig betur eða verr í svona keppni,
Þessi pickup driftaði ekki baun
Nú var þetta ekki keppni í að spóla? Þetta var allavega auglýst sem "DRIFTkeppni" og þú fékkst fleirri stig fyrir reyk og spól í hringi....það var ástæðan fyrir þessum "frjálsu svæðum" þar áttiru að spóla í hringi....ég veit alveg að það er ekki drift...en "keppnin" var í rauninni engin DRIFT keppni...það var ein beygja (þessi langa) sem var eini staðurinn á brautinni þar sem hægt var að Drifta.
Og svo væri líka betra fyrir þig að lesa það sem ég skrifaði...ég sagði að þetta væri allt persónulegt álit hvers og eins hver Driftaði best...að mínu mati var það BMW sem náði Besta Driftinu....man ekki hvort það var Turbo bimminn eða 325 bmwinn sem tók "að mínu mati" lang besta DRIFTIÐ. Ég get alveg haft skoðun á þessu eins og allir aðrir....ég sá það hvergi í mínum skrifum að ég þóttist vita meira um þetta en aðrir, mér finnst allt í lagi að fólk gefi sitt álit á "keppninni" þá geta stjórnendur kannski tekið þessi álit til greina og betrumbætt næstu keppni. Þeir læra ekkert á fólki eins og þér sem steinheldur kjafti og segir ekki neitt nema drulla yfir það sem annað fólk hefur að segja um þetta.
Svo ætlaði ég að skrifa að næst kraftminnsti bíllinn hafi unnið en ekki kraftmesti.
Þú sagði í quotinu að það væru örfáir sem kunnu að spóla
Þú augljóslega veist ekki hvernig drift keppni er
reykur og læti er verið að tala um þegar þú ert að drifta,
það er mikið erfiðara að hafa dekkin að aftann á 100kmh og þú á 30kmh og taka beygju heldur en að losa bílinn í fyrsta gír og drifta svoleiðis með aftur dekkin á 50kmh,
því meiri hraði á dekkjunum að aftann í drifitinu því meiri reykur og því fleiri stig vegna þess að það er mikið erfiðara,
ég var á kraftminnsta bílnum þarna og er nokkuð viss um að hafa staðið mig betur en margir, enda lenti ég í 4sæti..
Það var 325i ekki með turbo sem náði flottasta driftinu þarna, hann hefur bara ekki skorað nógu mörg stig í fyrri umferð og hinum svæðunum til að vinna.
Ég vona að þeir sem héldu keppnina munu draga úr frí svæðum til að þeir sem kunna ekkert að drifta heldur bara mökka fái síður stig.