1961
This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.
Flokkur fyrir 4 cylindra bíla (númerplötur eða ekki? hvað finnst ykkur?)
MÁL OG STAÐLAR
1. VÉL
VÉL:
Skal vera bílvél og hafa 4 cylindra. Ótakmörkuð tjúnning leyfð, þar með talið nítró og túrbó.
ÚTBLÁSTURSKERFI:
Opnar flækjur leyfðar. Útblæstri skal beina frá vagni, dekkjum.
ELDSNEYTI:
Allt leyft þar með talið: bensín, alkóhól, nítró og nítrómetan.
ELDSNEYTISKERFI:
Sérframleiddir eldsneytistankar(sellur) æskilegir í öllum bílum. Staðlaðar bensín "sellur" eru skylda í öllum bílum sem fara niður í 9,99sek 140mílur 225km eða neðar í tíma og/eða endahraða. Sverleiki og fjöldi eldsneytisleiðsla er frjáls en þær verða allar að vera úr viðurkenndum málmrörum eða vírofnum eldsneytisslöngum. Sjá aðalreglur 1:5.
VÖKVAYFIRFALL:
Skylda er að hafa vökvayfirfall og söfnunarkút tengdan því við kælikerfi á öllum bílum. Minnsta stærð á söfnunarkút er ½ lítri.
FORÞJÖPPUR:
Kefla og/eða afgas forþjöppur eru leyfðar á öllum tegundum véla og eldsneytis í öllum bílum í þessum flokki.
INNGJÖF:
Inngjöf skal stjórnast eingöngu af ökumann og eru öll hjálpartæki við hana hvort sem það eru tölvur, rafmagn, vökvi, loft, osf. Stranglega bönnuð.
2. DRIFRÁS
TENGSLI, KASTHJÓL, KASTHJÓLSHLÍF.
Tengsli og kasthjól samkvæmt staðli SFI Spec 1.1. skylda nema að um upprunalega hluti eða sambærileg frá upprunalegum framleiðanda vélar sé að ræða. Sprengihellt kúplingshús samkvæmt staðli SFI Spec 6.1 eða 6.2 skylda í öllum bílum sem nota kúplingu. Sjá aðalreglur 2:3, 2:5, 2:6, 2:10.
DRIFSKAFT:
Baula utan um drifskaft skylda. Sjá aðalreglur 2:4.
AFTURÁS:
Nota má hvaða afturás sem er. Sérsmíðaðir öxlar æskilegir og skylda ef notaðar eru spólulæsingar. Öxulfestingar út við hjól æskilegar.
SJÁLFSKIPTING:
Frjálst val á sjálfskiptingum og vökvatengslum.
HLÍFÐARSKJÖLDUR FYRIR SJÁLFSKIFTINGAR
Sprengihlíf á sjálfskiptingu skylda einnig má nota sprengimottu. Sprengihlíf á "flexplötu" æskileg og skylda ef bíll er kominn niður í 9,99sek og/eða í 140mil 225km endahraða og/eða er með breyttan hvalbak.
3. BREMSUR OG FJÖÐRUN
BREMSUR:
Vökvabremsur á öllum hjólum skylda. Sjá aðalreglur 3:1.
STÝRI:
Aðeins venjuleg fjöldaframleidd stýri leyfð. Minnasta þvermál Stýrishjóls er 13"(33,02cm). Öll stýrishjólverða að standast skoðun hjá skoðunarstöð.
FJÖÐRUN:
Fjöðrun gerð fyrir bíla skylda. Minnst einn virkur höggdeyfir á hvert fjaðrandi hjól. Breyta má framfjöðrun frá orginal yfir í aftermarket SFI Proofed fyrir bifreiðina. Styrkingar á grind eru leyfðar.
SPYRNUBÚKKAR:
Allar tegundir af spyrnubúkkum leyfðar. Sjá aðalreglur 3:5.
PRJÓNGRINDUR:
Prjóngrindur eru leyfðar en mega þó ekki vera með málmhjólum. Sjá aðalreglur 3:6.
4. GRIND
GRIND:
Verður að vera bílgrind og eiga við viðkomandi ökutæki. Breytingar eru aðeins leyfðar á aftur hluta grindar, nema styrkingar sem má setja hvar á grind sem er. Fyrir framan hvalbak má ekki breyta grind frá upprunalegu nema með styrkingum. Breyta má grind að aftan til að koma stærri dekkjum fyrir osf…..
STUÐARAR:
Stuðarar sem eru notaðir verða að hafa verið fáanlegir á viðkomandi ökutæki frá verksmiðju. Skipta má yfir í plast stuðara ef þeir hafa sama útlit og upprunalegir. Einnig leyfð aftermarket kit sem hönnuð hafa verið fyrir viðkomandi bíla?
HÆÐ YFIR JÖRÐU:
Minnsta hæð frá jörðu má ekki vera minni en 3"(7,62cm) frá framenda bíls að punkti 12"(30,48cm) aftan við miðlínu framhjóla. Síðan 2"(5,08cm) það sem eftir er. Undanskilið er pústkerfi og olíupanna.
VELTIGRIND OG BÚR:
Veltigrind er skylda í öllum bílum semfara 11,99sek og/eða 120mílum (195km) eða betur. Veltibúr er skylda þegar bíll er kominn í 10,99sek og/eða 140mílur (225km) eða undir. Sjá aðalreglur 4:9 og 4:10.
BIL MILLI HJÓLA:
Bili milli fram og afturhjóla skal halda upprunalegu fyrir viðkomandi bíl, frávik er leyft 2" (5,08cm).
5. HJÓLBARÐAR OG FELGUR
HJÓLBARÐAR:
Slikkar leyfðir.
FELGUR:
Allar gerðir af felgum fyrir bíla leyfðar, nema teina og mótorhjólafelgur. Minnsta felgustærð er 13" nema að bíllinn hafi komið upprunalega á minni felgum og sé með upprunalega vél.
6. INNRÉTTING
SÆTI:
Öll sæti skulu vera vel fest. Bílar sem fara 12,99sek og/eða 100míl (160km) eða betur verða að hafa sæti með háu baki. Bílar sem fara 10,99 og/eða 140mil (225km) eða betur verða að vera með keppnisstól. Æskilegt er að allir bílar séu með keppnisstóla.
BODDÝSTÁL:
Allur málmur í ökumanns og farþega klefa verður að vera ál eða stál (járn). Öll málmsmíði í ökumanns og farþegaklefa verður að vera upprunaleg eða eins og upprunaleg. Allar breytingar og endurbætur á ökumanns og farþegaklefa verða að vera úr upprunalegum efnum. Magnesíum bannað.
KLÆÐNING:
Skylda er að hafa eldvegg úr amk. 0,8mm stáli eða úr 1,2mm áli, milli farþega og farangursrýmis ef aftursæti hefur verið fjarlægt.
GLUGGANET:
Glugganet er æskilegt í alla bíla en skylda ef bíll er kominn niður í 10,99sek og/eða 140mil (225km) hraða eða betur. Sjá aðalreglur 6:3.
7. YFIRBYGGING
YFIRBYGGING:
Trefjaplast yfirbyggingar leyfðar. Nota má plast bretti, vélarhlíf, hurðir eða heilar samstæður. Rúðu upphalarar verða að virka í öllum hurðum.
BRETTI:
Öll bretti skulu vera til staðar. Nota má plast bretti eða samtæður. Innribrettum má breyta eða þau fjarlægja, þó ekki þar sem þau eru hluti fjöðrunarkerfis eða demparafestinga, nema að viðeigandi styrkingar komi í staðinn. Hjólskálum má breyta að vild ss. Til að koma undir stærri dekkjum.
HVALBAKUR:
Breyta má hvalbak vegna vélaskipta og verður það þá að vera gert úr sambærilegum efnum og upprunalega og skal hann líta út sem næst hinum upprunalega. Vél má þó ekki staðsetja aftar en svo að fremsta kerti sé í miðlínu spindla. Breyttur hvalbakur skal eftir sem áður uppfylla ofangreind skilyrði um efnisval.
GÓLF:
Upprunalegt gólf eða úr sambærilegum efnum skylda. Bannað er að hækka gólf. Lækka má gólf svo framarlega sem ekki er farið niður fyrir lágmarks hæð (sjá Grind:4.) og útsýni ökumanns raskast ekki. Breyta má gólfi að aftan til að koma fyrir stærri dekkjum osf.
GÖTUBÚNAÐUR:
Öll ljós skulu vera virk. Götubúnaður skal vera til staðar og vera virkur. Sleppa má þurrkum miðstöð og loftkælingu.
VÆNGIR OG VINDKLJÚFAR.
Leyfðir svo framarlega að þeir brjóti ekki regluna um lágmarks hæð frá jörðu.
FRAMRÚÐA OG GLUGGAR:
Allar rúður verða að vera til staðar og úr upprunalegum efnum.
8. RAFKERFI
RAFGEYMAR:
Mest tveir rafgeymar leyfðir. Mega vera sýru og/eða þurrgeymar. Rafgeymar mega ekki vera staðsettir í ökumannsrými. Sjá aðalreglur 8:1, 8:4, 8:5.
TÖLVUR OG GAGNASÖFNUN:
Tölvur og önnur tæki sem afla gagna um viðkomandi ökutæki leyfð. Þau mega hins vegar ekki hafa nein áhrif á ræsingu, inngjöf, tengsli, "tranbrake" eða annað í bílnum sem hjálpar við stillingar eða ræsingu eða neitt það sem kann að hjálpa eða hindra ökumann eða vélbúnað ökutækis í ferð. Sjá aðalreglur 8:2.
BIÐBOX OG HJÁLPARTÆKI:
Leyfð.
KVEIKIKERFI
Öll kveikikerfi leyfileg nema tímastillt kveikibox (stutter box), magnetu kveikjur bannaðar.
HÖFUÐROFI:
Höfuðrofi er skylda í öllum bílum.
AFTURLJÓS:
Allir bílar verða að hafa afturljós sem virka.
9. STUÐNINGSFLOKKUR
DRÁTTARTÆKI:
Öll dráttartæki eru bönnuð.
10. ÖKUMAÐUR
ARMÓLAR:
Leyfðar, sjá aðalreglur 10:3.
RÉTTINDI:
Gillt allmennt ökuskýrteini skylda.
STAÐSETNING ÖKUMANNS:
Ökumaður skal staðsettur í ökumanns sæti sem fest er á þann stað sem gert var ráð fyrir frá framleiðanda viðkomandi ökutækis.
ÖRYGGISBELTI:
Þriggja punkta belti skylda í bílum að 13,00sek og/eða 100mil (160km). Bílar 12,99sek og/eða 100mil (160km) og undir, verða að hafa amk. Fjögurra punkta viðurkennd belti. Bílar 10,99sek og/eða 140mil (225km)og undir, verða að hafa viðurkennd og stöðluð fimm punkta öryggisbelti þriggja tommu breið.
HJÁLMUR:
Skylda sjá aðalreglur.
HLÍFÐARFATNAÐUR:
Í öllum keppnisbílum er tregbrennandi fatnaður skylda,(ekkert nælon eða flís).
Bílar 10,99sek og/eða 140mil (225km) og undir. Jakki og buxur, eða samfestingur samkvæmt staðli SFI Spec 3-2A/5, skylda.
UPPHITUN:
Sjá aðalreglur 9:10
Þú færð krómmassa á hvaða bensínstöð sem er, einnig í bílanaust
hvar verslar maður krómmassa
Quote from: "Gummari"Eg myndi skipta á slettu á sæmilegum svona KC og Transinum mínum á núll einniVá hvað þú hlítur að eiga ónýtan Trans
já eða bara komast í mark anþess að þetta bili
Djöfull er þessi á fyrstu myndinni fallegur..
bara minna fólk á þar sem ekki hafa verið margir opnir fundir og við þurfum að gera þá skemmtilega.ýmislegt sem hefur verið rætt hér og þar, jafnvel ekki við rétta aðilaQuote
Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 29. nóvember í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði, uppi í Álfafelli 2. hæð. kl. 20:30. Endilega fjölmenna í kaffi og spjall, vonandi verða einhverjar krassandi kjaftasögur á ferðinni. Stjórnin.
má ég koma