já það er alltaf gaman að sjá þessa bíla. ég átti svipaða árgerð af 200 Audi með öllu sama krami og er í þessum, quattroinu, 2.2turbo og stórum front mount intercooler og það sem að hann tussuvirkaði þótt hann hafi bara verið alveg ósnertur og ekin tæp 400.000 kílómetra. var í sandi með hann '06 og var rétt á eftir flunkunýum STI WRX subaru. og vinurinn hvað þetta lág við malbikið. fór eitt sinn suður á honum í desember með ónelgda kerru og í svona líka skíðahálku. Einu sinni (sem oftar) gleymdi maður sér aðeins og var kominn svona "aðeins" yfir löglegu mörkin í myrkri og vildi ekki betur til en svo að það stökk í veg fyrir mig þessi líka fína 90 gráðu beigja, og viti menn, það var bara sem að hann væri á teinum, alveg hreint lék sér að þessu.
En aftur að topicinu, innilega til hamingju með flott verkefni, þetta finnst mér persónulega töluvert flottara verkefni en mörg á þessari síðu...