Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - Kristófer#99

Pages: 1 ... 5 6 [7] 8 9 ... 11
121
Alls konar röfl / Re: Saga Chevy small block vélarinar
« on: September 02, 2008, 21:35:09 »
já það kemur næst

122
Alls konar röfl / Saga Chevy small block vélarinar
« on: September 02, 2008, 21:18:40 »
Þegar Chevrolet hóf að smíða bíla þá voru þeir knúnir af sex strokka 4.9L (299 rúmtommu) vélum. Bílarnir gátu náð 105 km/klst hraða “án áreynslu” og hröðun var frá 0 km til 80 km/klst (0 til 50 mph) á 15 sekúndum sem þótti gífurlegt upptak á þeim tímum. Nú þykir þetta ekki merkilegt upptak en á þeim tímum (1912) voru Chevrolet bifreiðar með hraðskreiðustu götubifreiðum.

Á upphafsárum Chevrolet var mikið unnið að rannsóknum og þróun tileinkað því að framleiða aflmikla vél fyrir lítinn pening. Fyrsta V8 vél Chevy var kynnt til sögunnar 1917. Þessi 90° ventla í strokkloki hönnun var sett í D útgáfu Chevrolet bílanna sem var síðasta útgáfa af upphaflegu hönnun lengri gerða bílanna. Ekki er ólíklegt að í ´strokklokaloki´ þessa mótors hafi verið upphleypt Chevrolet vörumerki eins og þeirra vélar hafa verið þekktar fyrir.

Átta strokka vélin var einungis í framleiðslu í um 2 ár og hætti Chevrolet framleiðslu þeirra til að hanna fjögurra strokka vél. Það var síðan ekki fyrr en 1929 sem sex strokka vél sá dagsins ljós og V8 vél kom ekki til sögunnar á ný fyrr en hin goðsagnakennda Chevrolet small block var kynnt árið 1955 eða 36 árum seinna.

Eins og flestir Chevy áhugamenn vita þá hafði tilkoma Chevy ´55 mikil áhrif á bílaheiminn þegar hann birtist og að miklu leiti var það vegna hinnar nýju 265 rúmtommu (um 4.35 Ltr)vélar undir húddinu. Vélin var tæknilegur hornsteinn sem breytti ásýnd Chevy á einni nóttu. Nýja vélin var spræk, mjúk, sterk og tók lítið pláss og umfram keppinauta sýna þá var hún mjög létt. Vélin varð þekkt sem Músin (The Mouse motor) og henni jókst afl nokkuð hratt fyrstu árin. Í upprunalegu útgáfu sinni skilaði hún 180 hestöflum en það jókst strax næsta ár í 211 hestöfl í 1956.

Árið 1957 var vélin búinn að stækka að rúmtaki í 283 rúmtommur (um 4630 rúmsentimetra – 4.6 Ltr) og ekki nóg með það þá var vélin líka boðin með beina innspýtingu sem aukabúnað. Með þeim búnaði náði vélin því afreki sem svo margir framleiðendur höfðu reynt að ná en það var eitt hestafl á rúmtommu! Það tókst með 283 Fuel injected vélinni sem var 283 hestöfl.

Síðar komu útgáfur af Small block vélinni sem voru stærri að rúmtaki. Vélar eins og 302 vélin og hin öfluga 350 vél héldu á lofti merkjum Chevrolet með léttar og áreiðanlegar en öflugar vélar.

Um 1970 kom síðan á markað Big block (Rat engine) frá Chevy sem var 400 rúmtommur og síðar voru einnig small block vélar sem voru breyttar fyrir keppnisbíla smíðaðar af stærðum frá 365, 377, 383 og 406 Small block og einnig var 400 cid Small block í boði beint frá Chevy t.d. í Blazer og Suburban.

Árið 1976 kom á markaðinn 305 vél frá Chevrolet sem svar við kröfum markaðarins um eyðslu granna vél og kröfum yfirvalda og minni útblástur mengandi efna frá vélum. 305 vélin var boðinn í flestum útgáfum Chevrolet bíla með vissum undantekningum þó s.s. Corvette og Police Interceptor bílar sem voru með öflugum 350 vélum.

Í byrjun 1990 kynnti Chevrolet til sögunnar svokallaða aðra kynslóð Small block (Gen II) vélarinnar. Sú vél er þekkt sem LT1 og seinna LT4. Vélin var með vélahluta sem ollu minna viðnámi, bakrennslis kælingu og endurhönnuð strokklok ásamt öflugu kveikjukerfi. Þessi vél var fyrst kynnt í Corvette og afkastaði þá 300 hestöflum en var kynnt 1993 í Camaro Z28, Impala SS og Police Interceptor Caprice.

Chevrolet kynnti einnig til sögunnar nýja útgáfu af Chevrolet Corvette í 1990. Sú útgáfa hét Corvette ZR1 og var hönnuð sem samstarfsverkefni á milli General Motors og Lotus. Vélin hét LT5 og var með 4 yfirliggjandi knastása, 32 ventla og 16 kveikjukerti og framleiddi 375 hestöfl. Árið 1993 var vélin endurbætt og framleiddi þá ótrúleg 405 hestöfl.

Það var ekki litið framhjá pallbílum Chevy þó ekki væri eins tekið eftir því. En margir 1500 og 2500 bílar voru pantaðir með togmikilli 454 big block vél. Ein útgáfa bílanna var kynnt sem nokkurskonar sportbíls útgáfa (performance version) og var kallaður 454 SS.

Undir húddi 454 SS bílsins var 454 rúmtommu Mark V Big Block V-8 en þrátt fyrir glæsilegt útlit og stóra vél að rúmtaki þá voru hestafla tölurnar ekki í samræmi enda vélin hönnuð sem trukkamótor. Bíllin gerði samt keppinautana órólega og hann dugði mjög vel til þess að flytja rusl á haugana án þess að finna fyrir hlassinu.

Í dag eru Vortec og LS sería vélanna að sýna frábær afköst og mjög ásættanlega eldsneytiseyðslu sérstaklega þegar tekið er tillit til afkasta vélanna.

Öflugasta verksmiðju framleidda Chevy small bock vélin í dag er LS7, 427 rúmtommu (7.0 Ltr) vél sem er með stimpilstangir úr titanium, þurrpönnu olíukerfi, og blokk og heddi úr áli. Sú vél framleiðir 505 hestöfl af verksmiðjugólfinu og er í boði í 2006 Corvette Z06.

Vélin dugar til að skutla Corvettunni úr 0 til 100 km hraða á 3.5 sekúndum og fer kvartmíluna á 11.50 sekúndum og áfram í 315 km hámarkshraða sem gerir Corvettuna einn öflugasta sportbíl okkar tíma ef ekki þann öflugasta sérstaklega þegar litið er til verksmiðju fjölda-framleiddra bíla auk þess að Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA) hefur mælt eyðslu þessa bíls í þjóðvegaakstri sem 9.04 Ltr/100km sem verður að teljast frábært afrek fyrir vél sem býr yfir þessari orku að geta skilað af sér yfir 500 hestöflum með því einu að stíga aðeins fastar á bensíngjöfina.

Við enda árs 2005 höfðu um 90 milljón eintök af Chevy small block vélinni verið framleidd. Vélin á sér einstæða og frábæra sögu og virðist ekkert vera því til fyrirstöðu að hún komi til að eiga sér frábæra framtíð með stöðugri og þrotlausri þróunarvinnu GM sem vinnur stöðugt að nýrri tækni til að vera skrefi á undan keppinautunum með vél sem verður jafnvel knúinn af tilbúnu eldsneyti s.s. Methanól eða álíka.

Ég vona að lesendur hafi haft ánægju að lestri greinarinnar, ég geri mér grein fyrir að hún fjallar ekki beinlínis um kvartmílutæki en á þó við þar sem fjöldamargir bílar eru með þessa vél og þó að bílarnir heiti ford eða mopar eða hvað þetta heitir nú allt
þá eru þeir örugglega orðnir betri bílar við það að fá Chevy vél undir húddið ; )

123
Mótorhjól / Re: Bestu kaupin í hjálmum?
« on: August 24, 2008, 11:23:44 »
í jhm sport

124
Alls konar röfl / Fallegt eða hvað?
« on: August 24, 2008, 11:13:46 »

Hrikalega eru falleg hljóð í þessum chevrolett vélum

http://www.youtube.com/watch?v=IauqIQuOX0E&feature=related

125
Alls konar röfl / Re: Leikur
« on: August 19, 2008, 21:10:06 »
Viper


Porshe eða Ferrari

126
Alls konar röfl / Re: Leikur
« on: August 18, 2008, 10:47:44 »
Ferrari



Heitur pottur eða sundlaug

127
Alls konar röfl / Re: Leikur
« on: August 16, 2008, 19:30:57 »
Þvottavél


Mótorhjól eða Reiðhjól

128
Almennt Spjall / Re: Kvartmíluleikur!
« on: August 14, 2008, 15:09:18 »
Spilar einhver þennan leik enþá?

129
Alls konar röfl / Re: Leikur
« on: August 13, 2008, 13:20:53 »
wiskey


draggi eða orginal bíll í kvartmílu

130
Alls konar röfl / Re: Leikur
« on: August 12, 2008, 20:19:21 »
Borðtalva


Jeppi eða fólksbíll

131
Alls konar röfl / Re: áhugavert við myndina?
« on: May 10, 2008, 22:40:29 »
Sama númer á báðum bílunum

132
Almennt Spjall / Re: Sandur
« on: May 09, 2008, 17:20:45 »
ok eitthvað tjúnnuðu?

133
Almennt Spjall / Re: Sandur
« on: May 09, 2008, 16:15:10 »

Á hverju ætlaru að keppa

134
Almennt Spjall / Re: Sandur
« on: May 09, 2008, 14:31:39 »
hverjir eru skráðir í of flokk

135
Almennt Spjall / Re: Látum ljós okkar skína!!!
« on: April 21, 2008, 22:13:45 »
já sælir bræður
nú ríður á að standa saman!

þannig er mál með vexti að okkar helstu "bandamenn" í landsvæðabaráttu okkar
Akureyringa standa fyrir kosningu á heimasíðu sinni sem hljóðar svo
"Ætlar þú að mótmæla deiluskipulaginu á Glerárdal?" og að sjálfsögðu mun svar okkar allra
verða Nei og bið ég því sem flesta að taka sér tíma til að fara inn á www.lettir.is og kjósa

en einnig er önnur spurning þarna fyrir neðan sem hljóðar þannig
"Ert þú tilbúin(n) að sitja á hesti á meðan einhver þenur vélfák sinn við hliðina á þér?"
og að sjálfsögðu segjum við já við því, látum nú okkur hafa ýmislegt drengirnir!
svo sat maður nú á rugguhestinum í gamla daga, þónokkuð stöðugur með ZZtop á fóninum.

svo bendi ég ykkur á að hægt er að kjósa oftar en einu sinni með því eftir að kosningu er lokinni
að fara á upphafsíðuna og velja tools - internet options og delete coockies. og svo bara refresh og kjósa
aftur,
og fyrst þetta er komið í loftið ætlum við að byrja á nýrri keppni strákarnir, sá sem kýs oftast fær
frían aðgang á bílasýningu bílaklúbbs Akureyrar þann 17 Júní 2008.

kveðja KK


Koma svo kjósið eins og þið getið

136
Mótorhjól / Re: Spurning?
« on: April 20, 2008, 01:07:14 »
ok :mad:

137
Mótorhjól / Re: Spurning?
« on: April 19, 2008, 22:20:14 »
Vitið þið hvort að það séu insigli í terra moto 2007 árgerð og hvar þau eru ef það eru?????

138
Almennt Spjall / mótmæli
« on: March 28, 2008, 21:11:20 »
Stend svo mikið með þeim flott framtak

139
Mótorhjól / mitt hjól og breytingar þess á 1 ári tíhí
« on: March 13, 2008, 14:07:25 »
Mjög flott hjól

140
Alls konar röfl / The Ultimate YOUTUBE þráður!
« on: March 12, 2008, 21:17:00 »
http://www.youtube.com/watch?v=XraeBDMm2PM

þetta er helvíti öflugt

Pages: 1 ... 5 6 [7] 8 9 ... 11