Ef þið rekist á eitthvað skrítið, látið mig vita um leið!
Ég uppfærði þá í GF og OF sem var búið að slá út.
Einhverjir stungu af þegar það rigndi. Við héldum áfram þó menn hefðu farið þar sem það var aldrei búið að blása af keppni.
Í GF eru úrslitaferðirnar sjálfar eftir. Þar keppa Þórður Tómasson og Gunnar Rúnarsson til úrslita. Þar er ekki búið að keyra neina ferð.
Í OF er Kristján Skjóldal kominn í úrslit þar sem keppinautar hans flúðu regnið.
Hinumegin eiga Leifur Rósinbergsson og Kristján Hafliðason eftir að keyra sína þriðju ferð. Sá sem vinnur þá ferð fer í Stíg í undanrúslitum. Svo Leifur, Krissi Hafliða eða Stígur mun keppa við Kristján Skjóldal um stærri dolluna.
Hitt er allt komið inn og er vonandi rétt. Ragnar S. Ragnarsson náði sér í íslandsmetið í þetta skiptið, hann og Harrý Þór Hólmgeirsson hafa verið að slá það til skiptis í sumar. BARA gaman að fylgjast með þeim
Nú bið ég hjólafólk um að hjálpa mér.
Íslandsmetin eru í rugli.
Nýjir flokkar en sumir eiga víst að halda gömlum metum er mér sagt. Hvaða flokkar halda metum og hver voru gömlu metin sem yfirfærast?
I flokkur heldur metum úr BLABLA flokk og þar var metið xx,xxx @ xxx,xx , slegið 01.01.01 af Jóni Jónssyni á Yamaha blabla '91
Getur einhver gert svona lista fyrir mig?
Stigin eru hér:
http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/2008_Stigog metin eru hér:
http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/%C3%8Dslandsmet