veit ekkert hvort það sé mikill áhugi fyri þessum bílum hér en langaði bara að sýna nokkrar myndir af þessu projecti.
þessi bíll verður notaður í æfingarakstur á næsta ári.
en þetta er semsagt '81 árgerð af Volvo 244GL, algjer gullmoli sem er aðeins keyrður 193.011 km.
vélin í honum er B21A og er hann sjálfskiptur þriggja þrepa.
svo hef ég verið að spá í að skíra hann Tamland
komið eitthvað ryð í hann en það er ekkert mál að redda því
það er svona verið að spá í að halda honum original en ef maður myndi missa sig í breytingum yrði listinn einhvern veginn svona:
M47 skipting
lækkun
glær stefnuljós að framan
perragrind
felgur
og örugglega margt fleira gáfulegt....
en nóg af tali, hér koma myndir
bíllinn þegar við sóttum hann í Njarðvík á mánudaginn...
innréttingin er í ágætis standi
ætli maður verði ekki að koma með myndir af tækinu sem var notað til að draga volvo'inn:D
þarna er hann svo þegar hann er kominn fyrir utan skúrinn
B21A, heyrist vel í henni:D
svo var strax farið í hann daginn eftir og var framendinn settur á og hægra afturljós
pabbi minn hreynsaði miðjustokkinn, var byrjaður að mygla útaf einhverju klístri sem hafði ekki verið þrifið:roll:
og núna í dag var ryðbætt, handföng sett á og vinstra afturljósið
og hér koma nokkrar myndir af því...
við ætluðum að setja framstuðarann á en þar sem plattinn var boginn var það ekki hægt...
bíllinn hefur lent í tjóni:?
búið að fara í ryðið á bílnum, búið að loka öllum götum
handföngin komin í...
búið að setja læsinguna bílstjóramegin, nenni ekki að þurfa að brjótast inn í bílinn í hvert skipti sem ég vinn í honum:p
á morgun verður afturstuðarinn settur á og læsingin farþega megin.
svo þarf ég að klára að tengja afturljósin.