30
« on: November 04, 2008, 13:08:24 »
Camaroinn er með 350 ci vél með flattopp stimplum, heitum knastás, Edelbrock álheddum, rúllu rockerörmum, Performer RPM milliheddi, 600 cfm Holley pumpu, 350TH skiptingu, B&M skipti, Álfelgur 15x7 að framan og 15x8 að aftan, Ný afturdekk 275/60/15. Bíllinn er á númerum og fellur undir fornbíl þannig að tryggingar eru innan við 20.000,- kr/ár. Bíllinn er gulur að lit og með þokkalegt lakk og ryðlaus. Verðmiðinn er 400.000,- kr. staðgreitt.
Á sama stað er til sölu 350 ci mótor nýuppgerður (er kominn saman að hluta) með nýjum sveifarás í standard málum (með heilli pakkdós á sveifarás), nýir ARP studdar á höfuðlegum, ný high volume olíudæla, nýr Crane knastás fyrir blásaramótor, nýjar undirliftur, nýr tvöfaldur tímagír, nýir þrykktir stimplar fyrir blásara í 030 yfirstærð, nýar unnar stimpilstangir með ARP boltum og notaður B&M 144 blásari (litli blásarinn með lágu milliheddi). Með mótornum fylgja upprunaleg hedd af mótornum (árgerð 1987) en það mætti gjarnan skipta þeim út fyrir betri hedd. Verðmiðinn er 250.000,- kr. staðgreitt.
Stefán
S:6900454