Eitt það versta sem við fáum í brautina og undir dekkin er frostlögur, tæki sem eru inni á veturna hafa ekkert með frostlög að gera nema þá sem tæringarvörn og að hækka suðustig vatnsins en það eru til önnur efni í það og þau fást hjá STÁL OG STÖNSUM frá Royal Purple og heitir PURPLE ICE og er mun ódýrara en frostlögur. Teddi hjá www.racebensin.com hefur líka átt sambærilegt efni.
Endilega skiptið frostlög út fyrir þessi efni ef það er nokkur kostur.
Við höfum flutt félagsfundina á þriðjudaga, stjórnin fundar á þriðjudögum núna þar sem hluti stjórnarmeðlima er mjög upptekinn á fimmtudögum og það er svoldið atriði að félagsmenn geti hitt stjórnarmeðlimi og fengið upplýsingar ofl finnst okkur.
Einnig eru fimmtudagar orðnir miklir bíladagar og margir að rúnta og slíkt á þeim dögum svo okkur langar að prufa þriðjudagana.
Stjórnin fundar 1-2 í mánuði yfirleitt og við munum tilkynna á hvaða fundum við verðum með stjórnarfundi, þeim líkur yfirleitt um 22:00 og þá erum við klárir í spjall.
Eins og vanalega fækkar fundum eitthvað yfir sumartímann en það verður allt tilkynnt hér á spjallinu hvort það eru fundir eða ekki.
Það var hamast á traktornum í allan dag með nýjum HOOSIER slikkum sem BJB Pústþjónusta styrkir okkur með og ekki stóð á Krók að senda og sækja traktorinn góða.
Töluverður árangur náðist í að leggja niður gúmmí í dag og það safnast í reynslubankann jafnt og þétt, ég hef trú á því að það gæti orðið hörku grip á morgun fyrir bíla á soft compound dekkjum ef veðrið verður þokkalegt.
Við erum búnir að skafa 60fetin og brautin var hreinsuð í dag svo það verður dregið nýtt gúmmí í brautina um helgina, endilega mætið og hjálpið til við að klára að koma svæðinu í stand, það á eftir að tæma pittgámin og fara nokkrar ferðir í sorpu meðal annars.
Svo byrjar sísonið með æfingu helgina laugardagin 12.5
Við höfum fengið talsvert af fyrirspurnum frá þeim sem hafa greitt gíróseðil upp á 5000kr en langar að fara í Gullið, þá er ekkert annað en að millifæra 10.000 kr. á reikning okkar með kennitölu meðlims í skýringu og við sendum þér gullkort um hæl. 0544-26-111199 KENNITALA 6609901199