Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 11, 2004, 21:57:36

Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 11, 2004, 21:57:36
Vegna óvenju mikilla hita á hálendi og þar af leiðandi mikilla flóða hefur 1. og 2. umferð íslandsmeistaramótsins í sandspyrnu verið frestað.

Við leggjum upp með hálfs mánaðar frest til að byrja með og vonum bara að sandarnir verði komnir upp þá!!

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.ba.is

Stjórn B.A.
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 26, 2004, 21:50:54
Þá er loksins komin nelgd tímasetning á sandinn. Það verða tvær keppnir laugrdaginn 11. september!

Sjá nánar á www.ba.is
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Elli Valur on August 31, 2004, 16:10:19
Glæsilegt þá er líka enduró keppni í rvík þannig að það verða ekki margir hjólakallar frá rvík
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on August 31, 2004, 21:22:02
Quote from: "Elli Valur"
Glæsilegt þá er líka enduró keppni í rvík þannig að það verða ekki margir hjólakallar frá rvík


Svona verður þetta víst að vera meðan ekki er sameiginlegt dagatal í mótorsporti hér á landi. Það geta alltaf komið upp árekstrar af þessu tagi, sér í lagi þegar fresta hefur þurft keppni sökum flóða.

Þumalputta reglan hjá okkur er hinsvegar sem fyrr, að setja okkar viðburði ekki upp þannig að þeir stangist á við dagsetningar hjá Kvartmíluklúbbnum.
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Raggi McRae on September 02, 2004, 00:12:26
Enduro og Torfæra sömuhelgi það er ekki að gera sig :roll: og það hellu torfæra
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on September 03, 2004, 16:06:52
Skráning er kominn í gang inn á www.ba.is

Skráningu lýkur miðvikudaginn 8 sept!!
Title: torfæra sömu helgi??
Post by: 75Kongurinn on September 08, 2004, 04:46:17
ég veit nebbbla um allavega einn torfærukall sem hafði hug á sandi...?
Title: Sandspyrna - umferð 1. og 2.
Post by: Bílaklúbbur Akureyrar on September 08, 2004, 10:44:34
Quote from: "Bílaklúbbur Akureyrar"
Skráning er kominn í gang inn á www.ba.is

Skráningu lýkur miðvikudaginn 8 sept!!


Þar sem auglýsing í Fréttablaðinu klikkaði um helgina og kom ekki fyrr en á mánudag, er búið að framlengja skráningu um einn sólarhring.

Skráningu lýkur því FIMMTUDAGINN 9. September kl. 22.00.-
Title: Sandur
Post by: Einar Birgisson on September 08, 2004, 17:11:53
Að gefnu tilefni þá ætla ég að minna keppendur á að vera mættir "fyrir" klukkan 10:00 til skoðunar.
Title: Sandur
Post by: Einar Birgisson on September 08, 2004, 22:25:19
Dagskrá fyrir keppendur:
Klukkan Atburður
09:30 Mæting keppenda og pittur opnaður
10:00 Mætingarfresti keppenda lýkur
10:00 Skoðun hefst
11:00 Fundur með keppendum
11:15 Tímataka
12:30 HÁDEGISHLÉ
13:00 Keppni númer 1 keyrð
14:30 Áætluð keppnislok á keppni nr. 1
15:00 Keppni númer 2 keyrð
16:30 Áætluð keppnislok á keppni nr. 2
16:30 Allt flokkur keyrður á meðan kærufrestur er
------ HLÉ  
21:30 Sjallinn opnaður
22:00 Video sýnt
22:30 Verðlaunaafhending
------ Ball