Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Cobra04 on June 08, 2017, 19:07:43

Title: Innflutningur á tjónabíl frá USA
Post by: Cobra04 on June 08, 2017, 19:07:43
Góðan og blessaðan

Þekkir einhver hvernig tollur/vörugjöld eru á tjónuðum bílum sem eru innfluttir frá USA. Sá bíll sem ég hef áhuga fellur undir 65% vörugjöld + vsk af virði bílsinns.
Eru vörugjöldin reiknuð af verði bílsins sem hann er keyptur á úti eða af almennu markaðsvirði vestanhafs ? Hefur tollurinn um það að segja ef bíll er t.d. keyptur á 5000 dollara eða 25.000 dollara ef þú hefur alla pappíra ofl með þér ? Skipta þeir sér af ef bíll er undir X virði bílsinns ef þeim finnst svo ?

Væri áhugavert að heyra frá einhverjum sem þekkja þessi mál vel.

kv
Title: Re: Innflutningur á tjónabíl frá USA
Post by: 1965 Chevy II on June 08, 2017, 22:52:35
Ég er nokkuð viss um að það sé ekki heimilt lengur að flytja bíla til landsins frá USA sem eru með salvage title, talaðu við Haffa hjá Frumherja í Hafnarfirði hann veit flest um þessi mál.
Title: Re: Innflutningur á tjónabíl frá USA
Post by: Cobra04 on June 12, 2017, 12:58:04
Takk fyrir svarið.

Kíki á þetta