Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Kiddi on May 31, 2016, 14:33:06

Title: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on May 31, 2016, 14:33:06
Nú kom ég upp á braut um daginn og lullaði nokkrar ferðir rétt áður en önnur heddpakningin gaf sig vegna aldurs, tæringar, almennu notkunarleysi og leiðindum hreint út sagt...



Í framhaldi af þessu öllu saman og eitthvað gott betur en það þá fór ég að velta þesssu hérna fyrir mér.....:



Hvað þarf maður að gera til að fá að keyra fram fyrir röð af tækjum upp á braut sem bíða eftir að fá að fara rönn ?!?!

Tæki sem eru í hringakstri í Kvartmílukeppni... ? Tæki sem eru kanski með 50cc ,,vél'' ??




Þarf ég að vera með..


1. Öflugustu vélina á svæðinu.........?

2. Gullmeðlimskort...........................?

3. Keyra hálfa braut og vera í OF.......?

4. Búa í 220 ?? ............................?

5. Vera á léttari bíl??.......................?

6. Klippa númerin af bílnum...............?

7. Ganga í klappstýruliðið hans Ingó....?

8. Kaupa kók og prins handa staffinu...?

9. Fjarlægja pústkerfið......................?

10. Láta vigta bílinn..........................?





 PS. Í von um að koma spjallborðinu á ,,life support''

M.b.kv.,
Kiddi.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: SMJ on May 31, 2016, 15:39:13
"Hvað þarf maður að gera til að fá að keyra fram fyrir röð af tækjum upp á braut sem bíða eftir að fá að fara rönn ?!?! "

Þessu er fljótsvarað, þú átt að gera nákvæmlega það sama og aðrir keppendur. Fara í röðina, sýna félögunum tillitssemi og almenna kurteisi og hafa gaman - svo einfalt er það.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on May 31, 2016, 19:59:59
Ég umorða fyrir þá sem fylgja mér ekki eftir..eða hafa ekki meðtekið orð keppnisstjóra undanfarin misseri...

,,OF bílar fá frípassa á röðina''


Hvar liggja mörkin spyr ég?
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: ÁmK Racing on June 01, 2016, 00:33:36
Mér finnst að það eigi að ræsa öll svona tæki beint úr pitt.Mér finnst rosalega leiðinlegt að þurfa að bíða og ég tala nú ekki um að drepa á.Það er ekkert gulltryggt að þetta hólkist í gang aftur.Hálfbraut /Heilbraut skiptir ekki öllu svona öflug tæki eiga koma keyrandi beint úr pitt.Kv Árni
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Davíð S. Ólafsson on June 01, 2016, 09:06:04
Já sæll 🙂

Hélt í fyrstu að þetta væri nú eitthvað djók en er nú alveg hjartanlega sammála SMJ.

Það mætti halda að þessar spurningar væru úr fundagerðarbók Systrafélagsins ✨ 

Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 01, 2016, 10:22:46
Mér finnst að það eigi að ræsa öll svona tæki beint úr pitt.Mér finnst rosalega leiðinlegt að þurfa að bíða og ég tala nú ekki um að drepa á.Það er ekkert gulltryggt að þetta hólkist í gang aftur.Hálfbraut /Heilbraut skiptir ekki öllu svona öflug tæki eiga koma keyrandi beint úr pitt.Kv Árni

Það er gott að einhver les rétt í pistilinn, takk fyrir gott innlegg.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 01, 2016, 11:04:41
Já sæll 🙂

Hélt í fyrstu að þetta væri nú eitthvað djók en er nú alveg hjartanlega sammála SMJ.

Það mætti halda að þessar spurningar væru úr fundagerðarbók Systrafélagsins ✨

Takk fyrir ekkert...
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 01, 2016, 12:53:14
Sæll Kiddi. Venjan hefur verið að OF tæki hafa fengið að rúlla fram fyrir og aðrir keppendur hafa sýnt okkur skilning og tillitssemi. Þetta hafa svo sem ekki verið mörg OF tæki undanfarið. Það hefur komið til þess að maður hefur þurft að drepa á og þá er það vegna þess að brautin er ekki klár.

Svarið er - Keppa í OF.

En prince og kók á línuna og málið er dautt.

HARRY ÞÓR
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kristján Skjóldal on June 02, 2016, 11:40:16
Skil hvert þú ert að fara.eins og allstaðar úti er röð og maður bíður eftir að komi að manni.en þar eru líka alltaf slétt svæði sem sagt ekki brekka að braut og því hægt að íta tækum að spól svæði.en það geingur ekki hér og þess vegna hafa of tæki farið fram fyrir til að geta sett helst bara einu sinni í gang.því eins og Árni talar um þá er nú ekkert sjálfsagt að þessar græjur geri það.en það er spurning hvort það sé ekki hægt að finna eitthvað betra kerfi á þessu og eins þú sagðir hvar eru mörkinn. kanski td tími sem græja nær ?
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Elmar Þór on June 02, 2016, 20:08:41
Þar sem ég hef farið erlendis þá hafa menn beðið spakir í röð, en þarf var líka öllum ýtt að burn outinu, sama hvort það var v8, 6 eða 4 cyl eða mótorhjól. En þar var flatt eins og Kristján bendir á.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: SMJ on June 03, 2016, 10:56:55
Ef keppnistæki eiga við ofhitnunarvandál að stríða, er sjálfsagt að sýna því skilning. En þá þurfa starfsmenn og keppendur að vita af því. En það kom ekki fram í upphafspóstinum.

Greinilega sýna keppendur í útlöndum öðrum keppendum þá virðingu að fara í röðina, sem er eðlilegt og sýnir félagslegan þroska.

Það er auðvitað mikil vanvirðing að gera lítið úr sínum félögum sem eru á aflminni keppnistækjum og á ekki heima í Kvartmíluklúbbnum eða á öðrum vetfangi.

Það mætti eflaust leysa þetta á marga vegu, en hér eru 2 tillögur:

A) Keppnisstjóri ræður því hvenær keppnistæki sem eiga til að ofhitna, koma upp á braut. Sem mér sýnist hafa verið gert með góðum árangri. En þetta gerir keppnishaldara kannski erfiðara fyrir hvað varðar uppröðun og skipulag.

B) Keppandi fer sjálfur (eða sendir aðstoðarmann) í röðina og biður næsta keppanda á eftir um að hleypa sér fram fyrir þegar kemur að honum. Með þessu eru allir "jafnir" enginn pirringur í röðinni yfir því að einhver komist fram fyrir í röðinni og keppandinn getur fylgst með hvenær komi að sér, keyrt beint í Burnout án þess að tvístarta eða bíða við húsið. Ég hef gert þetta sjálfur að virðingu við aðra keppendur. Þetta einfaldar líka störf keppnishaldara og keppnisstjóra.




Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 03, 2016, 11:47:20
Það er enganvegin hægt að líkja neinu af þessu við eitthvað sem er gert erlendis....   :lol: :lol: :lol:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Ingó on June 04, 2016, 09:05:18
Þetta er frekar augljóst að mínu mati.

Of tæki eru yfirleitt ekki með altanator og oft með litla kælingu. Þetta er án efa aðal ástæðan fyri því að þau hafa haft forgang svo lengi sem ég man.


( ég er ekki að skrifa fyrir hönd KK)
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 07, 2016, 22:29:17
Ég skil ekki allveg þessa OF einræðu...

Ég mæti kanski með öflugustu vélina, þyngsta bílinn og keyri fulla kvartmílu..og er svo skikkaður í röð með skellinöðrum á meðan fiðurvigtartæki rúlla framhjá og keyra svo hálfa braut..



PS. Svo er það rúsínan í pylsuendanum að taka svo ferð til að finna hversu illa brautin var preppuð þann daginn  :lol:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 07, 2016, 22:53:35
 :spol:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: 1965 Chevy II on June 08, 2016, 19:28:44
Hér er fjör  :lol:

3500lbs bíll í 9 sek á 1/4 hitnar líklega meira en draggi í 4-5 sek ferð á 1/8.

Er ekki bara málið að ræða við keppnistjórann útskýra sitt mál og kannski fá merkingu á bílinn um forgang?
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: SPRSNK on June 08, 2016, 20:05:24
Hér er fjör  :lol:

3500lbs bíll í 9 sek á 1/4 hitnar líklega meira en draggi í 4-5 sek ferð á 1/8.

Er ekki bara málið að ræða við keppnistjórann útskýra sitt mál og kannski fá merkingu á bílinn um forgang?

Algjörlega - getur ekki verið einfaldara.
Hafi reglur gilt um ákveðinn hóp tryllitækja er rétt að bæta i hópinn þeim sem þess óska og hafa ríka ástæðu til.
Samt er einnig rétt að hafa hemil á því hverjir fylli hópinn.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kristján Skjóldal on June 09, 2016, 00:18:25
en er þetta ekki götu bíll sem á að þola að bíða á td rauðu ljósi :?: :?:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 09, 2016, 10:13:24
en er þetta ekki götu bíll sem á að þola að bíða á td rauðu ljósi :?: :?:

Jú það er ekkert mál... Enda ekki verið að keyra á 250km hraða milli ljósa.  :lol: :lol:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 09, 2016, 10:14:06
Hér er fjör  :lol:

3500lbs bíll í 9 sek á 1/4 hitnar líklega meira en draggi í 4-5 sek ferð á 1/8.

Er ekki bara málið að ræða við keppnistjórann útskýra sitt mál og kannski fá merkingu á bílinn um forgang?

Algjörlega - getur ekki verið einfaldara.
Hafi reglur gilt um ákveðinn hóp tryllitækja er rétt að bæta i hópinn þeim sem þess óska og hafa ríka ástæðu til.
Samt er einnig rétt að hafa hemil á því hverjir fylli hópinn.

Voðalega eru þið leiðinlegir að drepa niður gott þras...

Annars flott lending..
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: 1965 Chevy II on June 09, 2016, 22:42:47
en er þetta ekki götu bíll sem á að þola að bíða á td rauðu ljósi :?: :?:
(http://i68.tinypic.com/9addw9.jpg)
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 11, 2016, 00:15:33
Þetta er einfalt og hefur alltaf verið einfalt þar til að heddpakkningin fór. Tæki í OF og tæki sem ættu að vera í OF fá að fara framfyrir. Annað verður slæmt fyrir móralinn.
 
Keppnistjóri getur stýrt þessu.

Hþh.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 11, 2016, 13:37:05
Þetta er einfalt og hefur alltaf verið einfalt þar til að heddpakkningin fór. Tæki í OF og tæki sem ættu að vera í OF fá að fara framfyrir. Annað verður slæmt fyrir móralinn.
 
Keppnistjóri getur stýrt þessu.

Hþh.

??

Ættu að vera í OF ... Hahaha

Ég man ekki betur en að OF, GF og jafnvel SE fóru alltaf framfyrir fyrir nokkrum árum.

Ég veit ekki hvort þú eða keppnisstjóri voru félagsmenn á þeim tíma...



Ps.. Væri gaman að vita meðalhestaflafjölda í OF.  900 ?? 🤔 😄😄
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 11, 2016, 14:39:53
það hefur ekki verið keyrður neinn flokkur undanfarin ár nema OF sem hefur þurft á forgangi að halda.  En þeir sem hafa slæðst uppá braut til að prófa hafa fengið að fara framfyrir. Á meðan að ekki er keyrsluhæfur flokkur fyrir mjög flott tæki eins og Ara og Rudolf , Árna Már og núna Frikka og margir flr ættu þeir bara að skella sér í OF, það var það sem ég meinti. það getur ekki verið gaman að eiga þessi flottu bíla og geta ekki keppt vegna þess að ekki er flokkur fyrir þá, á meðan er OF málið.
Vonandi er að myndast hópur bíla sem vill keyra 1/4 og það er bara flott , brautin býður uppá það. Fyrir mig er 1/8 bara flott og allt það sem þetta sport byður uppá er komið fram að mínu mati.



hþh
ps. Kiddi þú varst ekki fæddur/hvað þá hugmynd þegar ég gékk í klúbbinn.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 11, 2016, 18:01:22
Ekki fékk ég forgang.. Ég fékk skammir þegar ég sóttist eftir forgang.

Það er reitingur af mannskap sem hefur engan áhuga á þessum fáránlega flokk. Á ég að skrá mig og keyra á móti funnycar og ég á skoðuðum drag radial bíl á pump gas !!!??? 😂😂😂😂 Nei takk og þá sér í lagi eftir síðasta reglumakk dragstersmanna.


Ps. Veit fullvel að þú ert gamall gráni.. Varst þú einn af stofnendunum kanski? Hlýtur að vera....

Ps ps. Hlustaðu á næstu kynslóð... Við erum framtíðin 😋
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 11, 2016, 22:30:08
Kiddi minn það eru fullt af flokkum fyrir þig og ég taldi þig ekki upp sem vænlegum keppenda í OF enda yfir okkur viðvaninga hafinn á þinum pump gas bíl. Hvað rempingur er þetta í þér drengur ? það er ekki eins og þú hafir verið að gera rósir uppá braut á þínum pump gas bíl.
Komdu bara að keppa og ég er vissum að allir vilja hleypa þér fram fyrir röðina. Það er mjög auðvelt að sitja við borðið og tala um fallbyssur og alka dragga og mæta svo annað slagið og þá er allt ómögulegt, röð og ílla preppuð braut.
http://www.wallaceracing.com/Calculators.htm þessi linkur gæti bara verið málið fyrir þig, þarna getur þú reiknað hestöfl og alls konar og þarft ekkert að vera spyrja okkur um einhver meðaltöl á hp.

Hþh.
Ps. Guð blessi Ísland
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 12, 2016, 00:12:40
Ég er að veita aðhald. Eitthvað sem aldrei hefur verið vinsælt en er þarft.
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Harry þór on June 12, 2016, 01:12:46
Nei Kiddi þetta er hroki eða heimska nema hvort tveggja sé.

Hþh
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 12, 2016, 08:02:30
Nei Kiddi þetta er hroki eða heimska nema hvort tveggja sé.

Hþh

Takk fyrir ekkert...

Gangi þér vel í OF.. En ekki of vel !
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kristján Skjóldal on June 12, 2016, 11:20:28
jæja Kiddi hvað er að :lol: :lol: :lol:
Title: Re: Staðbundið 220 röfl....
Post by: Kiddi on June 12, 2016, 14:46:22
Allt í góðu hjá mér...

Menn þola ekki aðhaldið virðist vera.