Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Hr.Cummins on January 13, 2015, 10:03:32

Title: Keflavíkurvallar Chevelle-an ?
Post by: Hr.Cummins on January 13, 2015, 10:03:32
Hvernig fór svo... ???

Eru menn byrjaðir að skvera, fór mótor í gang á endanum ???

Muncie kassinn ónýtur ??

Er voðalega forvitinn...
Title: Re: Keflavíkurvallar Chevelle-an ?
Post by: Moli on January 13, 2015, 15:43:50
Mótorinn fór í gang, þetta var ekki Muncie kassi heldur Borg Warner ef ég man rétt, las út úr númerunum hjá Sigga. Boddyið var komið í málningu hjá Brynjari í Kópsson rétt fyrir jól.
Title: Re: Keflavíkurvallar Chevelle-an ?
Post by: Hr.Cummins on January 14, 2015, 02:59:38
Ég vona svo innilega að þetta verði allmennilegt...

Mér sárnaði mjög að sjá hann svona niðurgrotinn...

Hvernig var body shell eftir þetta hangs við flugvöllinn...

og

HVENÆR FÁUM VIÐ AÐ SJÁ MYNDIR :!: :?: :!: :?:
Title: Re: Keflavíkurvallar Chevelle-an ?
Post by: Moli on January 14, 2015, 07:23:27
Engar áhyggjur, bíllinn verður mjög góður. Það þurfti að sjóða í lítið gat í gólfinu, skipta um panelinn fyrir aftan afturgluggan og bæði afturbrettin, veit ekki til þess að það þurfti að skipta um meira.
Title: Re: Keflavíkurvallar Chevelle-an ?
Post by: Ramcharger on January 14, 2015, 10:32:36
Gott að lesa þetta =D>