Kvartmílan => Spyrnuspjall => Topic started by: ingvarp on January 19, 2011, 16:56:34

Title: Kvartmíludagatal 2011 ?
Post by: ingvarp on January 19, 2011, 16:56:34
Sælir félagar.

Fannst þetta vera rétti staðurinn fyrir þessa umræðu en ef ekki þá er ykkur guð velkomið að færa þráðinn.

Er einhver samvinna í gangi hjá KK og RCA ?

Eina sem ég var að spá er að það væri gott að reyna að vinna saman að keppnum svo fólk geti farið á og styrkt báðar keppnisgreinar (kvartmílu og drift) Ég er t.d í "vinnu" hjá félaga mínum að mynda hann á driftbrautinni í sumar, væri leiðinlegt ef ég kæmist ekkert á kvartmíluna því það er mitt aðal áhugamál með myndavélina.

Er einhver sem getur tjáð sig eitthvað um þetta mál ?

Með Bestu Kveðju

ingvarp  :-k
Title: Re: Kvartmíludagatal 2011 ?
Post by: 429Cobra on January 19, 2011, 20:00:21
Sælir félagar. :)

Sæll Ingvar.

Ég er löngu búinn að bjóða klúbbnum þetta og meira að segja senda þeim sýninshorn, en þeir ákváðu að gera þetta ekki að svo stöddu.

BA fékk hins vegar hjá mér dagatal og svo er ég að sjálfsögðu sjálfur með dagatal eins og fjögur síðustu ár.

Kv.
Hálfdán. :roll:
Title: Re: Kvartmíludagatal 2011 ?
Post by: 1965 Chevy II on January 19, 2011, 20:27:28
Ég held að Ingvar eigi nú við keppnisdagatal/dagsetningar á keppnum. Ingvar keppnisdagatalið okkar er á forsíðunni.
Title: Re: Kvartmíludagatal 2011 ?
Post by: 429Cobra on January 19, 2011, 20:43:19
Sælir félagar. :)

Sæll Frikki.

OK en þar sem hann er að tala um myndir þá fannst mér þetta segja sig sjálft!

En allavega þá er almanakið mitt með fullu keppnisalmanaki. :wink:

Kv.
Hálfdán. :roll:
Title: Re: Kvartmíludagatal 2011 ?
Post by: ingvarp on January 20, 2011, 00:14:23
já ég var að tala um dagsetningar á keppnum, finnst súrt að missa af keppnum því ég þarf að fylgja félaganum á driftið. En þeir eru ekki komnir með neitt dagatal svo það er spurning hvort þeir fari eftir þessum dagsetningum og velji aðrar helgar! ég vona það innilega :)

Langar virkilega að komast á sem flestar keppnir sumarsins í sem flestum greinum  :P