Kvartmílan => Evrópskt => Topic started by: Gulag on July 30, 2010, 14:02:11

Title: Audi urquattro
Post by: Gulag on July 30, 2010, 14:02:11
datt í hug að einhverjir hefðu kannski gaman að sjá einn gamlan quattro í uppgerð..
þetta er 83 árgerð, stefnan er að vera með 5cyl 2,2 vélina með standalone og stóóórri túrbínu (stefnt á 450-500 hestöfl)
Svo er komið í hús widebody kit (Audi A2 kit) og fleira gums... þetta er verkefni sem er búið að taka hellings tíma, og á sjálfsagt eftir að taka slatta tíma í viðbót...  \:D/  bara gaman..

smá myndasyrpa

(http://www.johannsson.net/urqseq/1.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/2.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/3.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/4.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/5.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/6.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/7.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/8.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/9.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/10.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/11.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/12.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/13.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/14.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/15.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/16.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/17.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/18.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/19.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/20.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/21.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/22.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/23.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/24.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/25.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/26.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/27.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/28.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/29.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/30.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/31.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/32.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/33.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/34.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/35.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/36.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/37.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/38.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/39.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/40.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/41.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/42.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/43.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/44.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/45.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/46.jpg)

(http://www.johannsson.net/urqseq/47.jpg)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: 1965 Chevy II on July 30, 2010, 14:12:50
Flott verkefni =D> mér hafa alltaf þótt gömlu AUDI flottir og sérstaklega widebody bílarnir,endilega sýndu okkur fleirri myndir
þegar eitthvað nýtt gerist í þessu. 8-)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Ramcharger on July 30, 2010, 17:01:33
Þessir þóttu alveg magnaðir akstursbílar á sínum tíma :smt118
Title: Re: Audi urquattro
Post by: kiddi63 on July 30, 2010, 19:23:05
Þetta voru og eru væntanlega eru gjeggjaðir akstursbílar, ég fór einu sinni á svona bíl út á reykjanes, ísólfsskála og víðar í fljúgandi hálku og snjó, ég var ekki sá rólegasti undir stýri þá og keyrði eins og fáviti.
Ég var rosalega hissa hvað kvikindið var rosalega rásfast þrátt fyrir keyrsluna á mér og þótt það væri hálka, þannig að ég hélt að bíllinn væri á einhverjum snjó-rallydekkjum eða eitthvað svo að ég stoppaði til að skoða það.....nei nei hann var á sumardekkjum takk fyrir... snilldar bílar.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on July 30, 2010, 19:39:03
ég náði smá að leika mér á honum áður en ég hóf rifið, það var bara gaman,, það er hægt að læsa bæði afturdrifi og millikassa..manualt,, ekkert elektrónískt drasl þarna sko...  :D
Title: Re: Audi urquattro
Post by: kiddi63 on July 30, 2010, 20:53:20
Já ef ég man rétt þá er svona snúnings takki sem maður snýr til að læsa og það var svakalegur munur þegar það var "on"
Þetta eru alveg gjeggjaðir akstursbílar, ég er ekki hissa að þeir hafi verið number one í hm í rally á sínum tíma.

 :spol: .. brrr... have fun man.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on July 31, 2010, 14:49:28
það passar, stór takki i mælaborðinu, allt vaccum stýrt.. .
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Comet GT on August 18, 2010, 18:48:37
já það er alltaf gaman að sjá þessa bíla. ég átti svipaða árgerð af 200 Audi með öllu sama krami og er í þessum, quattroinu, 2.2turbo og stórum front mount intercooler og það sem að hann tussuvirkaði þótt hann hafi bara verið alveg ósnertur og ekin tæp 400.000 kílómetra. var í sandi með hann '06 og var rétt á eftir flunkunýum STI WRX subaru. og vinurinn hvað þetta lág við malbikið. fór eitt sinn suður á honum í desember með ónelgda kerru og í svona líka skíðahálku. Einu sinni (sem oftar) gleymdi maður sér aðeins og var kominn svona "aðeins" yfir löglegu mörkin í myrkri og vildi ekki betur til en svo að það stökk í veg fyrir mig þessi líka fína 90 gráðu beigja, og viti menn, það var bara sem að hann væri á teinum, alveg hreint lék sér að þessu.
En aftur að topicinu, innilega til hamingju með flott verkefni, þetta finnst mér persónulega töluvert flottara verkefni en mörg á þessari síðu... =D>
 
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Sigtryggur on August 18, 2010, 20:32:15
Það verður gaman að sjá hann tilbúinn Atli ! Þótti þessi bíll alltaf ferlega flottur og gaman að sjá að hann er til ennþá.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on August 18, 2010, 20:51:29
gaman að heyra svona strákar,  takk fyrir það !!!

tókum boddíið og snerum því um daginn, ein mynd af þeirri aðgerð, svo styttist í sandblásturinn..

reyndar, þið sem hafið reynslu af þessu, ég er að pæla í að láta sandblása botninn og það sem er ryð í, en ekki boddyhlutina sjálfa,
einhver heillaráð fyrir mig?

(http://www.johannsson.net/urqseq/48.jpg)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: kallispeed on August 24, 2010, 21:44:07
mikil vinna og gaman að sjá þennan í uppgerð , man vel eftir þessum , hann var mikið í kef á sínum :mrgreen: tíma bón-bræður áttu hann meðal annars og jón sonur vífills á ránni ....
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Sigtryggur on August 25, 2010, 12:29:21
reyndar, þið sem hafið reynslu af þessu, ég er að pæla í að láta sandblása botninn og það sem er ryð í, en ekki boddyhlutina sjálfa,
einhver heillaráð fyrir mig?
......
Ekki nema það Atli,að láta helst sandblásarann epoxy grunna bera fleti strax á eftir,ótrúlega fljótt að setjast á þetta aftur !
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Olafur_Orn on August 27, 2010, 00:07:20
Sigurjón.. ert náttlega ekki í lagi hahahaha

En mér líst mjög vel á þetta hjá ykkur drengir, Keep up the good work.
En áttu Cossie ekki alveg enþá?
Title: Re: Audi urquattro
Post by: jeepson on August 31, 2010, 22:51:52
Flott verkefni. En hvernig er það með þessa bíla. Eru þeir ekki frekar sjaldséðir hér á klakanum? Ég held svei mér þá að þetta sé fyrsti svona quattro bíllinn sem að ég sé með þessu boddýi hér á landi.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: kallispeed on September 01, 2010, 02:35:35
Flott verkefni. En hvernig er það með þessa bíla. Eru þeir ekki frekar sjaldséðir hér á klakanum? Ég held svei mér þá að þetta sé fyrsti svona quattro bíllinn sem að ég sé með þessu boddýi hér á landi.
sjaldgaefir jamm enn tad var eithvad af theim hér í gammel dage en tetta var ekki sá fyrsti samt ... man eftir 1 hvítum b4 tennan sem ég spyrnti vid á mílunni í gammel dage .. eda um 85 eda svo .. en audi eigandinn á honum var ekkert svo happy med ad tapa fyrir mér og spurdi heirdu ertu nokkud búinn ad tjúnna porscheinn thinn og setti hrykalega í augnabrýrnar . hehe en ég var á porsche 924 turbo ... en audi quattroinn  eru og voru flottir bílar ... :mrgreen:
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Comet GT on September 02, 2010, 21:17:08
ég man einnig eftir einum gulum eða gráum í svona lala standi sem að var lagt utan við adam og evu við held ég Hverfisgötuna í kringum sumarið 2005, hann er sá eini sem að ég man eftir að hafa séð
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on September 03, 2010, 08:50:07
þetta er sá eini sem er til hér á skerinu í dag eftir því sem ég best veit.
Það voru til 2 hvítir, 2 rauðir og einn sem óvíst er um lit, svo minn, ss. 6 stk.
1 rauði og 1 hvíti voru seldir erlendis eftir hrun, (fyrir feitan pening), það kviknaði í einum rauðum, en restina veit ég ekki um.
væri gaman ef maður fyndi þá.. ;)

Svo voru/eru til Audi Coupe,, sem er sama boddy, bara ekki með breiðu brettunum, og þar af leiðandi ekki urquattro, (orginal quattro) því þessi (minn) heitir bara Audi quattro, ekkert annað..

Menn hafa verið að sjá urquattro'a hérna út um allt, en þegar betur er að gáð er það alltaf annaðhvort coupe eða Audi S2.. það eru ekki allir sem sjá muninn eða þekkja..

það voru ekki framleiddir nema rúmlega 11.000 bílar frá árunum 1980 til 1991, eða um 1000 bílar á ári,, þannig að þeim fer ört fækkandi.. :)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Hjörtur J. on October 22, 2010, 06:19:12
1 rauði og 1 hvíti voru seldir erlendis eftir hrun, (fyrir feitan pening), það kviknaði í einum rauðum, en restina veit ég ekki um.
væri gaman ef maður fyndi þá.. Wink


Þessir rauðu turbo audi bílar virðast vera eitthvað eldfimari en aðrir það kviknaði í mínum gamla rauða S4 :-(
Title: Re: Audi urquattro
Post by: edsel on January 07, 2011, 23:45:58
man eftir audi 200 turbo '85 til sölu á akureyri fyrir svona sirka ári síðan, var ssj og fwd, ég of félagi minn prófuðum hann og prófuðum að gefa honum og það eina sem heyrðist var hljóðið í bínunni, ætla nú ekki að segja hvað við vorum komnir hratt en hann mátti eiga það að hann var EKKI latur, veit einhver hvað varð að þeim bíl? en on topic, til hamingju með quattro og gangi þér vel með uppgerðina 8-)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Big Below on January 08, 2013, 19:53:50
Jaeja hvad er ad fretta af tessum og hver er stadan i dag?
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on January 09, 2013, 10:26:36
það er búið að vera pása í þessum, síðasti vetur fór í annað verkefni, en..... ég er að fara að byrja á honum aftur, er með skelina alveg strípaða, og er enn að velta fyrir mér hvort ég eigi að sandblása eða bara pússa.. það er soldið ryð í botninum á honum..

fékk Audi V8, 4.2 vél, er að velta fyrir mér hvort ég eigi að setja hana í, eða gömlu 10 ventla 5 cyl vélina.. mikil heilabrot og erfitt að ákveða hvort ég vilji missa geðveikasta vélasánd sem til er.. 10ventla audi vél... :)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Ramcharger on January 10, 2013, 07:24:40
Sandblása, ekki spurn.
Og með val á vél, 10ventla 8-)

Hér er smá hljóðbrot.

Group B - Audi Quattro S1 - pure engine sound [HD] (http://www.youtube.com/watch?v=fKUtS4RN1Z4#ws)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on January 10, 2013, 07:45:02
ahh.. nothing like the sound of an 5cyl in the morning...   =D>
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Hr.Cummins on January 10, 2013, 11:03:09
BBM Motorsport Audi A8 4.2 FSI V8 Auspuff Sound Exhaust (http://www.youtube.com/watch?v=zXyC_WaiL6U#ws)

Þá finnst mér V8 purrið flottara... eflaust hægt að ná því dýpra..
Title: Re: Audi urquattro
Post by: diddi125 on January 10, 2013, 11:28:36
mér finnst nú v8 soundið fallegra en að passar bara ekki við þennan bíl
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Hr.Cummins on January 10, 2013, 13:46:58
V8 er klárlega skref uppávið frá þessum 5cyl steingerving...

Ég segi V8 í hann og smíða þannig púst að það soundi frekar rasp :)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: baldur on January 10, 2013, 14:42:54
V8 án turbo er downgrade frá 5 cyl með turbo. Hinsvegar er V8 með turbo ágætis hugmynd.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on January 10, 2013, 14:57:39
V8 með twin turbo er enn betri hugmynd...

 \:D/
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on January 10, 2013, 14:58:59
reyndar, v8 án turbo er ekki downgrade frá stock 10V 5 cyl turbo, svipuð þyngd á vélum, um 100 hestum meira í non turbo V8 en turbo i5.. og mun meira tork..
Title: Re: Audi urquattro
Post by: baldur on January 10, 2013, 15:39:35
reyndar, v8 án turbo er ekki downgrade frá stock 10V 5 cyl turbo, svipuð þyngd á vélum, um 100 hestum meira í non turbo V8 en turbo i5.. og mun meira tork..

Já ég var nú bara að tala um almennt, ekki stock 30 ára gamalt vs stock 20 árum yngri V8. 5 cylendra mótorinn er nú alveg leikandi 400 hestöfl ef það er skrúfuð á hann rétt túrbína.
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on January 10, 2013, 16:00:54
já.. það er rétt... :)
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Hr.Cummins on January 10, 2013, 18:44:05
V8 með twin turbo er enn betri hugmynd...

 \:D/

Hmmm, BMW M62B35TU er best í þetta :) hehehe
Title: Re: Audi urquattro
Post by: 66MUSTANG on August 11, 2014, 01:57:04
Er einhverjar fréttir af þessum Audi?
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Gulag on August 20, 2014, 12:17:50
 :oops:
alltof litlar.. hann fær alltaf annað sætið greyjið þegar maður er að vinna í skúrnum..
er reyndar að stefna á að koma honum á lappirnar í vetur, og jafnvel láta sprauta hann næsta sumar..
Title: Re: Audi urquattro
Post by: Alpina on November 02, 2014, 21:03:24
Þetta voru rosa græjur i den