Kvartmílan => Spyrnuspjall => Topic started by: Shafiroff on June 28, 2010, 20:40:05

Title: óvissa
Post by: Shafiroff on June 28, 2010, 20:40:05
Sælir félagar, Mig langar bara að vita hvort það eigi ekki að leyfa okkur að fylgjast með,sjá hvað er í gangi. Það kemur bara ekkert ,ekki stafur hvað er að gerast. kv AUÐUNN
Title: Re: óvissa
Post by: 1965 Chevy II on June 28, 2010, 21:06:25
Sæll Auðunn og aðrir félagar,við erum því miður ekki komnir með leyfi í hendurnar.

Það kemur tilkynning hér um leið og við vitum eitthvað.
Title: Re: óvissa
Post by: Shafiroff on June 28, 2010, 21:29:35
Erum við að fá einhverja hjálp í þessu ,þá á ég við ÍBH ÍSÍ og svo framvegis,maður veltir þessu náttúrulega fyrir sér bíllinn klár og við að fara af límingunum.
Title: Re: óvissa
Post by: SPRSNK on June 28, 2010, 21:49:58
Það flýgur í burtu sumarið  :-"

Title: Re: óvissa
Post by: 1965 Chevy II on June 28, 2010, 21:54:49
Já,við höfum allavega leyfi til æfinga sem verður nýtt ef leyfi fæst ekki.
Það er ekkert sem við getum gert annað en að láta málið fara sína réttu leið,það gat enginn séð þetta fyrir því það eina sem breyttist frá því að við
fengum leyfi síðast var að við takmörkuðum enn frekar hraðann á brautinni í kvartmílu við 9.39sec.

Title: Re: óvissa
Post by: 1000cc on June 28, 2010, 22:45:42
Sælir
En mín spurning er hvers vegna að starta íslandsmóti og vera ekki kominn með leyfi á allar keppninar í mótinu. Því að ég er allavega búinn að leggja út rúmann 400 þúsundkall sem ég hefði vel getað notað í annað. :evil:
Kv.Diddi
Title: Re: óvissa
Post by: SPRSNK on June 28, 2010, 23:33:18
Leyfismálin á að vinna á veturna - ekki þegar keppnistímabilið er hafið! :smt014
Endurnýjunardagsetning leyfis skyldi vera um áramót ekki 1. júní .......

Skv. keppnisdagatali ákvað ég sumarleyfi í ágúst til að geta tekið þátt í öllum Íslandsmótum sumarsins
Einn spólglaður og svekktur að sumarið er að fljúga hratt í burtu.  :smt022
Title: Re: óvissa
Post by: Elmar Þór on June 28, 2010, 23:43:42
Mér persónuleg finnst það að fyrsta verk nýrrar stjórnar hefði verið það að fá nýtt keppnisleyfi,( þar það sem það var fyrirliggjandi að það myndi renna út á miðju sumri) en ekki að fara í það að eyða orkunni og tíma í aðra hluti sem skipta minna máli, t.d nýtt flokkakerfi

Kveðja Elmar
Title: Re: óvissa
Post by: 1000cc on June 29, 2010, 16:59:18
Sæll ég skil bara ekki hvernig hægt er að auglýsa íslandsmót 
29 maí - 1 umferð íslandsmótsins
12 júní - 2 umferð íslandsmótsins
3 júlí - 3 umferð íslandsmótsins 
7 ágúst - 4 umferð íslandsmótsins

Og vera ekki með leyfi sem dekka íslandsmótið.Að fá leyfi fyrir einni keppni í einu er rugl, og fengist ekki leyfi á allar
keppninar, hefði ekki átt að reyna halda íslandsmót.

Kv.Diddi
Title: Re: óvissa
Post by: Harry þór on June 29, 2010, 18:28:45
Diddi það er varla sanngjarnt að fara skammast við stjórnina.

mbk Harry Þór