Kvartmílan => Fréttir & Tilkynningar => Topic started by: Nóni on February 28, 2006, 23:30:57

Title: Breytingar á reglum í MC flokki vegna tæknilegra annmarka.
Post by: Nóni on February 28, 2006, 23:30:57
Hér á eftir kemur klausan um dekk úr reglunum um MC flokk eins og hún var. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er ekki hægt að fá 6 strigalaga diagonal dekk þannig að þetta ákvæði er fellt úr reglum.


Dekk:
Allir hjólbarðar verða að vera "DOT" merktir. Hámarks hæð hjólbarða má ekki vera meiri en 28". Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð. Slikkar bannaðir. Öll dekk sem merkt eru "Soft Compund" (götuslikkar) hvort sem það eru Radial eða Diagonal bönnuð. Öll diagonal dekk verða að vera minnst 6 strigalaga. Ofangreint gildir líka um framdekk.


Rauðu stafirnir er það sem er tekið út, svona lítur þá kaflinn um dekk út:


Dekk:
Allir hjólbarðar verða að vera "DOT" merktir. Hámarks hæð hjólbarða má ekki vera meiri en 28". Öll dekk þar sem merkingar framleiðanda hafa verið fjarlægðar bönnuð. Slikkar bannaðir. Öll dekk sem merkt eru "Soft Compund" (götuslikkar) hvort sem það eru Radial eða Diagonal bönnuð. Ofangreint gildir líka um framdekk.




Með kveðju, stjórn Kvartmíluklúbbsins.