Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Siggi H on February 09, 2005, 01:17:13

Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 01:17:13
sæll moli. ég skannaði inn hérna eina mynd þar sem ég er loksins kominn með skanna. hélt að þér myndi kannski langa að fá hana. þessi mynd er af gamla bílnum hans pabba sem hann átti í dágóðan tíma. ég sá að þú varst með aðra mynd af honum en ekkert voðalega góða. þessi er kannski ekki sú besta en ég vona að þú getir notað hana. þessi mynd er tekin í neskaupstað af mömmu gömlu
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Binni GTA on February 09, 2005, 09:22:06
Djöfull fíla ég alltaf þessa litasamsetningu.....eitthvað svo MUSCLE við hana  8)

Hvernig bíll er þetta annars...Dodge ? :?
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Geir-H on February 09, 2005, 17:27:15
Er þetta ekki Duster...
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 18:44:47
þetta er duster
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: D440 on February 09, 2005, 21:42:40
Þetta var dart Sport 360 4gíra beinskiiptu
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Moli on February 09, 2005, 21:46:31
góður Siggi, komdu með fleiri myndir!  :wink:

er vitað hvað varð um gripinn?
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 22:44:08
nei er ekki alveg viss. en ég heyrði að hann stæði einhvern staðar hérna fyrir austan. ef einhver veit hvar þessi bíll er niðurkominn má hann láta mig vita. væri til í að eignast þennan bíl.
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 22:44:56
Quote from: "D440"
Þetta var dart Sport 360 4gíra beinskiiptu


jæja eða dart. svo langt síðan gamli átti hann. man ekkert hvaða tegund þetta var. hann er samt voðalega líkur duster.
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 22:58:31
hérna er ein önnur handa þér moli. þar sem þú átt bara bílasölu mynd af þessum. snorri félagi minn átti þennan í langan tíma. hann er reyndar komin með svart ljótt húdd núna.
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 23:06:45
hérna eru 2 aðrar handa þér moli. þetta er chevrolet malibu 1980 eða 1981 módelið. ætlaði að kaupa hann á tímabili. það er aðeins 1 eigandi af þessum frá upphafi og ekki til ryð í þessum bíl. hann kom orginal með 350cc og hann er sjálfskiptur, orginal vélin hún er enþá í og vélin og bodyið ekin aðeins 120þús km frá upphafi. því miður fann ég ekki betri myndir af honum. ég tók þær sjálfar. malibu í toppástandi. þessi bíll er staðsettur á eskifirði og hefur verið þar alla sína tíð.
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: sJaguar on February 09, 2005, 23:31:00
Quote from: "ChevyZ-28"
hérna er ein önnur handa þér moli. þar sem þú átt bara bílasölu mynd af þessum. snorri félagi minn átti þennan í langan tíma. hann er reyndar komin með svart ljótt húdd núna.


Það er búið að mála það hvítt
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 09, 2005, 23:39:10
samt alveg jafn ljótt fyrir það. þessi bíll var alveg orginal fyrir utan flowmaster pústið. og þetta húdd fer honum bara engaveginn að mínu mati
Title: Moli - Bílavefur !
Post by: Siggi H on February 10, 2005, 00:31:11
hérna eru fleiri myndir moli fyrir síðuna þína af gamla malibuinum mínum sem er í uppgerð einsog stendur