Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: siggik on February 05, 2005, 01:37:00

Title: púst hjálp
Post by: siggik on February 05, 2005, 01:37:00
Jæja, er að huga að pústi, varað hugsa um flowmaster, planið var að kaupa flowmaster kút/a og láta kokka upp afganginn hérna heima, þar sem flowmaster framleiðir ekki kerfi fyrir caprice, hvar væri best að láta gera það hérna heima ? og síðan mæltu þeir með H pipe fyrir dual exhaust, er það standard þegar þetta er sett upp, og þarf ég 1 kút eða tvo ?

EDIT: hafði planað að láta rörin koma út rétt fyrir framan aftur dekkinn og snúa örlítið niður.... með skemmtilegum króm stút og sennilega hafa flækjur við vélina ....

takk fyrir
Title: púst hjálp
Post by: Gizmo on February 05, 2005, 09:48:14
Þú þarft alltaf 2 kúta nema þú ætlir að hafa kerfið einfalt.  

H-Pipe (tenging milli hægri og vinstri helmings) á að gera gott sé hún sett nógu framarlega.

Það er flowmaster í mínum og stútarnir koma niður aftast undir stuðara.  Mér finnst hávaðinn vera alveg í það mesta fyrir minn smekk og er jafnvel að spá í að þagga örlítið niður í honum.  

Ef þú setur flowmaster kúta og flækjur með stútana fyrir framan afturdekk þá yrði ég hissa ef þú heyrðir í nokkru nema pústinu inni í bílnum.  Getur verið skemmtilegt til að byrja með en með tímanum geta menn farið að þreytast á því.

Ég myndi ráðleggja þér að tala við strákana í Pústþjónustu BJB ef þú ætlar að fá þér nýtt sérsmíðað púst.  Þeir eru að þessu alla daga og hafa allt það sem til þarf, þmt ágæta hljóðkúta.
Title: púst hjálp
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 05, 2005, 11:28:39
Ertu búinn að athuga með þessa.
http://www.gibsonperformance.com/
Title: púst hjálp
Post by: firebird400 on February 05, 2005, 17:13:23
Quote from: "Gizmo"
Þú þarft alltaf 2 kúta nema þú ætlir að hafa kerfið einfalt.  

H-Pipe (tenging milli hægri og vinstri helmings) á að gera gott sé hún sett nógu framarlega.

Það er flowmaster í mínum og stútarnir koma niður aftast undir stuðara.  Mér finnst hávaðinn vera alveg í það mesta fyrir minn smekk sama hjá mér og er jafnvel að spá í að þagga örlítið niður í honum.  

Ef þú setur flowmaster kúta og flækjur með stútana fyrir framan afturdekk þá yrði ég hissa ef þú heyrðir í nokkru nema pústinu inni í bílnum. Nákvæmlega Getur verið skemmtilegt til að byrja með en með tímanum geta menn farið að þreytast á því.

Ég myndi ráðleggja þér að tala við strákana í Pústþjónustu BJB ef þú ætlar að fá þér nýtt sérsmíðað púst.  Þeir eru að þessu alla daga og hafa allt það sem til þarf, þmt ágæta hljóðkúta.
Title: púst hjálp
Post by: siggik on February 05, 2005, 17:19:15
ha ?
Title: púst hjálp
Post by: firebird400 on February 05, 2005, 18:59:09
ni