Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: siggik on February 01, 2005, 00:49:43
-
jæja góða kvöldið, núna var ég að eignast Chevy caprice classic ´79 305 vél, keyrð 160 eitthvað þús frá upphafi, mín spurning er hvað á ég að gera sambandi við afl ?
núna er ég ekki mjög vitur sambandi við v8 vélar, þar sem það er gríðarlegiir valmöguleikar.
ætti ég að fá mér 350 og þá þarf ég væntanlega að fá mér 350TH trans eða eitthvað svoleiðis ?
eða ætti ég að fá mér bara nýtt púst (er eitthvað ónýtt) , flækjur og hvað meira ... blöndung osfr ?
einhver ráð/tips eru vel þegin takk
ps. er hægt að fá Cragar SS felgur hérna á landi ?
-
Ég var líka að skoða svona bíl og langar að vita hvað þeir eru þungir?
-
ehh, veit ekki ;) skal pósta því um leið og ég veit það
edit: held að hann sé 1600-1900
-
Ég hef leitað útum allt en aldrei séð sömu töluna tvisvar, ég hef séð 1100, 1300, 1600, 1900, 2100, 2200 ekki mikið að marka það
-
engin með smá tips ? ;)
-
Farðu niður á bryggju og skelltu kagganum á vigt. Ergo málið leyst. Það er lítið að marka uppgefnar tölur þegar það eru 50 kg af ryðvörn neðan á bílnum og 150kg af olíu og sandi. Muna að taka sementspokan úr skottinu, hann er þarna úti í horni hjá Daihatsu bílnum
stigurh
-
:?: ... ok
btw, er einhver með ráð fyrir því að geymirinn hleður sig ekki :cry:
-
slök reim? ónýtur altinator ? eða bara geymirinn lélegur
-
hehe Vilmar þú ert ótrúlegur! Til að komast að því hvort að geymirinn sé ónýtur myndi ég hlaða hann með hleðslutæki ekki í bílnum og ef hann heldur ekki hleðslu í því myndi ég fá mér annan! Ég held að það þurfi að vera helvíti slök reim til að snúa ekki alternator...... :roll:
-
Vantar ekki bara afl til að snúa alternatornum? Þetta er nú bara 305 :lol:
Byrjaðu á því að athuga mælaborðsperuna fyrir hleðsluviðvörunina, margir alternatorar hlaða ekki ef að hún er sprungin eða ótengd :!:
-
takk fyrir svörin, reimin er nokkuð strekkt, og peran í mælaborðinu :? ég sé bara 1 rautt ljós sem logar og það er mynd af rafgeymi :D, get komið með honum í gang með startköpplum í hvert skipti en það dugar ekkert svaka, ætla að láta pabba fara með geyminn í vinnuna og hlaða hann ....
-
305 er enginn svaka powermaskína
Þetta eru 5 lítrar en einhvern veginn finnst mér þetta vera slappari 5,0 lítrar en ford 5,0. Leiðréttið mig ef ég er að fara með rangt mál
Þetta er sama block og 5,7 (350) þannig að það er lítið mál að skipta á milli hvort sem það er öll vélin eða partar á milli véla
-
sambandi með hleðsluna, þá eru allar líkur á því að altanatorinn sé bilaður, kolin búin í altanatornum eða eitthvað í þá áttina.
-
sælir,,, ef þetta er ac delco, þá er dióðu brú sem er gjörn á að fara, :cry: hún er bara skrúuð í en ekki lóðuð í held ég :? hún kostar 3.500 kr, :lol: nú svo er bara að hreinsa hann vel, og ný kol, og passa að anker hjól séu góð, :wink: PS svo nátúrulega allar tengingar kvBk 8)
-
hmmm brynjar þetta er svona delco stendur það allavega á altenatornum .... get ég ekki bara keypt einhvern nýjan eða endurbyggðan altenator ??
-
jú þú getur það öruglega, en það er betra að gera þennan upp, sem þú ert með, það þarf ekki að kosta svo mikið :wink: en svo getur tórinn verið það illa farinn að það borgi sig ekki að laga hann, farðu með tórinn á verkstæði sem sér hæfa sig í svona löguðu, og láttu þá mæla kvikindið :wink: kv,BK :P
-
hmmm brynjar þetta er svona delco stendur það allavega á altenatornum .... get ég ekki bara keypt einhvern nýjan eða endurbyggðan altenator ??
bara rífa kvikindið í sundur, pæla smá,laga og skrúa saman og ef hann virkar ekki þá er bara að endurtaka leikinn aftur og aftur þangað til þetta virkar þetta er eina leiðin til að haldast í þessu sporti nema þú eigir þeimun þykkari buddu og svo læriru fullt af þessu :roll:
-
hmmm brynjar þetta er svona delco stendur það allavega á altenatornum .... get ég ekki bara keypt einhvern nýjan eða endurbyggðan altenator ??
bara rífa kvikindið í sundur, pæla smá,laga og skrúa saman og ef hann virkar ekki þá er bara að endurtaka leikinn aftur og aftur þangað til þetta virkar þetta er eina leiðin til að haldast í þessu sporti nema þú eigir þeimun þykkari buddu og svo læriru fullt af þessu :roll:
AMEN þvílík sannindi
-
takk fyrir hjálpina strákar en þetta er sennilega startpungurinn :/ vonum það allavega
-
en hvernig er það, er með þessa 305 vél, og getur verið að ég láti hana í nýjan bíl, .... varað hugsa umað checka á Edelbrock RPM performance pakka, semsagt kaupa, hedd,blöndung og allt þetta í sona pakka, frá sennilega summit, ... eða ætti ég bara kaupa heila vél hérna heima til að kreista meira en 130hp útúr þessu ?
og svona er listinn gerður frá summit ...
Part # Item Price
EDL-1400
Edelbrock Performer Carburetors
$265.95
EDL-2101
Edelbrock Performer Intake Manifolds
$114.95
EDL-2102
Edelbrock Performer-Plus Cam and Lifter Kits
$117.88
EDL-4248
Edelbrock Elite Series Aluminum Valve Covers
$71.95
EDL-5802
Edelbrock Sure Seat Valve Springs
$41.95
EDL-5894
Edelbrock Sure Seat Valve Spring Kits
$79.95
EDL-60759
Edelbrock Performer/Performer RPM Street Cylinder Heads
$529.50
EDL-7800
Edelbrock Performer-Link True Rolling Timing Chain Sets
$45.95
EDL-7890
Edelbrock Accu-Drive Gear Drives
$159.95
EDL-8810
Edelbrock Victor Series Mechanical Water Pumps
$159.88
soldið ílla sett upp en þeið skiljið þetta, er eitthvað sem vantar eða ætti ekki að vera ?, öll input þegin þar sem ég hef ekkert verið að vesenast í þessu :? þetta er um 100 þús kall, síðan shipping og tollur væntanlega ..
ps. er ekki viss hvort að ég þurfi 2x cylender heads, þeas ég er ekki viss hvort þetta er bara 1 hedd eða par, getur einhver svarað því, því þá hækkar kostnaðurinn mu 500+ dollara :(
-
EDL-7800
Edelbrock Performer-Link True Rolling Timing Chain Sets
$45.95
EDL-7890
Edelbrock Accu-Drive Gear Drives
$159.95
Þú þarf bara annað af þessu
Ég mæli með keðjunni, þessari efri EDL-7800 en ekki gírinn
Ég er með gír hjá mér og það er bara pain.
Og þú þarft par af heddum = 1060$
En fyrst þú ætlar að fara að punga út 250000 kalli í topp á gripinn þá finnst mér að þú eigir að fá þér stimpla og hringi, þú færð stimpla fyrir 180-250 dollara
Sé enga ástæðu til að setja svona flottann pakka ofan á gamlan mótor
En fyrst þú ætlar að <---- Hvaðan kom þetta :?
-
það er nebbla málið, ég er bara skoða möguleikana :) er að skoða hvaða options ég hef ....
-
Ég myndi ekki setja þennan pening í 305. Frekar að redda þér 350 og gera sama við hann, þá ertu í góðum málum :)
-
Siggi ég veit um einn sem er að selja fullt að small block gramsi
Allt frá 327-388 cid
PM
-
þetta snýst allt um peninga, ég hef ekki mikið af þeim svo ég verð að plana þetta vel ;)
aggi, ég pma þig
-
Ég (Raggi) er með svona bíl sem er tveggja dyra og hann er 1780kg með bigblokk og engu bensíni eða manni,,, reindar með 9" ford hásingu
305 er drasl, nema til að keyra í hringi mjög hægt, sem er reyndar gott og blessað út af fyrir sig. Hún er með einhverju minsta bori sem þekkist í v8 vél og þar af leiðandi ekki hægt að snúa þessu neitt nema kanski með túrbínu :)
Ef ég á einhver heilræði þá eru þau sú að halda þig við þessa bíla, því þeir eru fucking sweet og að fara ekki að kaupa stakan hlut á eða í kringum eða í einhvern mótor sem þú ert svo kanski ekki sáttur við heldur kaupa heilan mótor með sem mestu af dótinu kláru á þannig að hlutirnir passi saman og virki.
-
big block er málið.... the bigger the better 8)