Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: ElliDúdú on December 23, 2004, 02:53:04

Title: Ventlapælingar í 302
Post by: ElliDúdú on December 23, 2004, 02:53:04
Sælir.

Eru gormarnir á sog- og útbl.ventlum mismunandi stífir í 302?

Og ég fékk líka þéttingar kallaðar "valve stem seals" með í pakkningasettinu sem ég keypti, en málið er að ég tók engar svona þéttingar úr. Þetta eru átta stykki af hvorri sort (já, jafnvmargar ventlunum :) )  Eru þetta ventlaþéttingar? Ég tók samt bara svona fyrrverandi mjúkar gúmmíhettur af ventlunum, engar þéttingar líkar þessum. Svo fékk ég svona mjúkar gúmmíhettur líka með í pakkanum. Eiga þá hetturnar að koma yfir þessar þéttingar, eða hvernig er þetta? Hér er mynd af helvítunum:

(http://memimage.cardomain.net/member_images/11/web/491000-491999/491526_11.jpg)
Title: tyggigúmm
Post by: ElliDúdú on December 26, 2004, 06:49:52
já ég komast að þessu varðandi gormana, en varðandi hitt þá klíni ég bara tyggjói í þetta, það reynist alltaf vel  :D  :wink:
Nei, ég set þetta saman eins og þetta var(skipti bara um það sem var fyrir), þetta gekk allavega þá.  8)