Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Olli on November 09, 2004, 17:09:20
-
Sælir
Ég keyrði fram hjá húsi nokkru í hrauntungi í kópavogi áðan, eftir að hafa fengið ábendingu frá vinnufélaga um Mustang sem er búinn að standa þar talsvert lengi að mér skilst... Þetta er svartur 67 coupe að mér sýnist... og stendur bara í niðurlútur fyrir framan skúrinn... skilst að það sé ofan í honum 390 mótor.
Veit einhver eitthvað um þennann bíl og jafnvel hvort að gripurinn sé falur ?
Já og annað... ekki vitið þið nokkuð um afdrif bláa 67 coupe bílsins sem stóð við hlíðarveg 28 í góðann tíma fyrir ca. 1 og !/2 ári síðan ?
-
sæll Olli, þessi bíll sem þú ert að tala um er ´65 módel original með 390 og 4 gíra, inni í bílskúrnum er ´68 módel af mustang fastback hann er hins vegar original með 302 og sjálfskiptur. Ég hef heyrt að nota eigi kramið úr ´65 bílnum í fastback bílinn, en eins og hjá mörgum gengur uppgerðin frekar hægt. Inni í þessum sama skúr á einnig að vera ´66 coupe sem verið er að gera upp á sama hraða.
1968 Fastback
(http://www.mustang.is/sadshots/images/sadshot_1_450.jpg)
1965 Coupe
(http://www.internet.is/bilavefur/sad_shots/1965_kop.jpg)
(http://www.internet.is/bilavefur/sad_shots/65_mustang_grar.JPG)
Síðan fór þessi blái í uppgerð eitthvað út á land fyrir c.a 2 árum.
(http://www.internet.is/bilavefur/sad_shots/68_mustang_kop.jpg)
-
Sælir.
Mustang kemur ekki með 390 fyrr en 67! Og fastback-inn í skúrnum er 67 árg. Hann leit út svona í denn
(http://www.mustang.is/album_1/67-68/images/album1_03.jpg)
Þessi blái sem Moli setti inn er svo 68árg og hefur verið í ýmiskonar útlitum í gegnum ævina. t.d svona!
-
já mér fannst þetta eitthvað skrítið að ´66 Mustang hafi verið með 390, fletti upp í bók og það kom í ljós að ´67 var fyrsta árið með 390 takk fyrir að leiðrétta það Anton, en sagan segir að hann sé allavega með 390 sem stendur.
-
Fastbackinn er að ég held original 6 cyl.´65 bíllinn hinsvegar 289.
Sigtryggur h