Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: 1965 Chevy II on October 24, 2004, 16:23:25
-
Frábært veður en nánast ekkert af bílum,Ingó setti besta tíma sem farinn hefur verið á brautinni á Street Radial dekkjum 12.39sec í talsverðu spóli.
Stígur setti personal best á 10.43 minnir mig.
Nóni drap Saab-inn annars var hann að taka flott á.
-
Smá leiðrétting.
ég for 2 ferðir á 12.28 , 2,1 60 fet og 116.28 MPH
sem er ok.
Ingó.
-
Góóður ég hef sennilega verið farinn þegar þú fórst 12.28 til lukku með tímann,hvað gerist á slikkum :shock:
-
Slær ekki 11,70-80 hjá Gulla 555 út 12,28 hjá formanninum Ingó ?
-
Hæ
Lítið veist þú Birgisson. Að sjálfsögðu er þetta betra hjá formanninum því hann er á 2 manna plast kappakstursbíl en ekki einhverjum fjölsk. sedan. Og fær þar af leiðandi sek forgjöf.
Nú nema þetta sé nýtt met í 12,99 flokki og og og.
Svo man ég að B. Finnbogason. fór 10,70 á götudekkjum og skoðuðum bílnum gas laus hér fyrir um 20 árum síðan. Hvað er annars að frétta af kallinum.??
Hilsen.
PS. getur þú nokkuð reddað þessum sandtímum til okkar sunnlendinga.?
-
Slær ekki 11,70-80 hjá Gulla 555 út 12,28 hjá formanninum Ingó ?
Einar þú veist að vettan er rwd en ekki 4wd eins og Loftpressan.
-
Fór Gulli ekki 10,80 eða eitthvað um það á æfingu í sumar á Street Radial dekkjum? Mig minnir það :D
-
Þetta er auðvitað rétt hjá Einari, og einnig að einhver 17 ára gamall 5 dyra fjölskylduSAAB keyrður 230.000 km (finnst hr. Vífilsson fór út í díteils) hafi farið 12.1 sek. á 115 mílum með prjóngrind og svo 12.6 sek. á 116 mílum án prjóngrindar hér á sunnudaginn.
Hér er svo video af þessu rönni fyrir þá sem ekki hafa séð það á síðunni minni http://www.icesaab.net
http://www.icesaab.net/pix/Runstytt3.WMV
-
Já ég sé það núna Ingó er ömurlegur og tímarnir á þessu plastdrasli líka.
-
Hæ,
Hvaða hvaða, 'a nú að fara segja gerfiefnabíl formannsins drasl,,,,
Það held ég að engum finnist. En eins og félagi Birgisson benti á, met, tja,
Er ekki nóg að formanninum sé eignað metið í OF. Þó Þórður sé búinn að eiga það síðan um mitt sumar í fyrra. Þó ekki séu "smíðuð" met handa honum líka.
En upp með metinginn í metum.
Og þetta með að sában sé ekin 230,000, ég hef enga trú á því. Hann hefur verið dreginn stórann hluta af þessu.
-
Vá og ég er varla búin að læra að setja bílinn í gang, 60fet 2,11 , og menn eru farnir í hár samann . Hvað gerist þegar ég læri á bílinn ( 60 fet 1.8-9 og tíminn 11,,??)
Ingó.
-
Neiiiii.
'eg fer sko ekki í "hár saman" við einn eða neinn.
Og Ingo til hamingju með að geta sett hann í gang.
-
Sælir !
Glæsilegur Z06 hjá kallinum þó ég hafi einungis séð hann hér á vefnum!
Til hamingju :D
Og koma svo, segðu okkur litlu !!!
Þú lofar 11,?? og menn tala um eitthvað aukagotterí.
Húddið er bólgnara en á orginal bíl ekki satt hummm :shock: þeir segja sumir í ammeríkunni að það sé víst pláss fyrir keflavindu þar á milli.
\Einzi
-
Já já, lærðu bara á bílinn það er víst betra (læra á = setja slikka undir hann) :D
Frikki, það má aldrei segja neitt hérna inni þá ertu hálfpartinn farinn að grenja eða þá þú hendir því út :lol: Þú verður nú aðeins að hemja þig strákur. Auðvitað verðum við að kvelja formanninn okkar með þessu, annað væri nú ekki hægt.
Bíllinn hreyfðist rosa vel og sándar flott og ekki orð um það meir. En að hugsa sér, hann getur þetta allt án túrbínu, hvað getur hann þá með tvær svona GT37 eða GT42 ha?????
Kv. Nóni
-
Frikki þegar þú varst að tala um tíma Formannsins þá var ekkert minnst á RWD FWD eða 4WD heldur bara radial og 12,28, þannig að....................
-
Já já, lærðu bara á bílinn það er víst betra (læra á = setja slikka undir hann) :D
Frikki, það má aldrei segja neitt hérna inni þá ertu hálfpartinn farinn að grenja eða þá þú hendir því út :lol: Þú verður nú aðeins að hemja þig strákur. Auðvitað verðum við að kvelja formanninn okkar með þessu, annað væri nú ekki hægt.
Bíllinn hreyfðist rosa vel og sándar flott og ekki orð um það meir. En að hugsa sér, hann getur þetta allt án túrbínu, hvað getur hann þá með tvær svona GT37 eða GT42 ha?????
Kv. Nóni
Það verður að hafa stjórn á þér og hinum lyklaborðsriddurunum sem dagsdaglega læðast með veggjum og segja aldrei neitt.....en svo komist þið á netið þá sígur böllurinn skyndilega niður á gólf og allt verður vitlaust.
Einar ég biðst forláts á ömurlega útskýrðum fréttaflutning mínum best að hætta þessu bara og fara út í skúr að grenja. :cry:
-
Ég tek forlátsbeiðnina til athugunar ......................
-
Sælir félagar.
Það er gott að ræða um árangur og met og nauðsynlegt að viðhalda keppni, ofurlitlum metingi og vilja til þess að gera betur og setja ný met. Það væri hins vegar til þæginda að metaskráin sem er á vefnum væri uppfærð og leiðrétt og sýndi á hverjum tíma gildandi met. Hvað varðar tíma Gulla á 555 Imprezunni (hvað sem öllum metur líður) þá eru þeir þessir: Í fyrra (2003) var keppt á Bridgestone loftbóludekkjum sem eru "street legal radial" og besti árangur var: 60 fet: 1,565 sek., 1/8 míla: 7,436 sek. á 91,6 mílu og 1/4 míla: 11,765 sek. á 111,7 mílum. Í sumar var keppt á "street legal radial" dekkjum. Besti árangur náðist í keppni í Englandi: 1/4 míla: 10,85 á 119 mílum. Þar var einnig keppt í hámarkshraða á braut sem var 1,25 míla. Þar náði Gulli 177,1 mílu eða 285 km. Á Íslandi var besti árangur í sumar þessi: 60 fet: 1,757 sek., 1/8 míla: 7,090 á 102,5 mílum og 1/4 míla: 10,909 sek. á 130,44 mílum.
Þetta er þriðja árið sem við keppum í kvartmílu og á hverju ári hefur tekist að bæta tímann um eina sekúndu. Fyrsta árið náðist tíminn 12,846 sek á Subaru Imprezu 2,0 GT árg. 1999. Í fyrra náðist best 11,765 sek á Subaru Imprezu 2,0 WRX STi árg. 2003 og í ár á sama bíl 10,85 sek.
Við höfum sett ákv. stefnu og markmið fyrir næsta ár, munum nota sama bíl og halda okkur við 2,0 ltr. vél (eins og tvær mjólkurfernur) og ætlum ekki að fara í sjálfskiptingu; allavega ekki strax.
Vonandi tekst okkur öllum að hafa gaman að þessu sporti okkar og viðhalda nausynlegri samkeppni og vilja til þess að gera alltaf aðeins betur en áður hefur verið gert.
Með kveðju,
Halldór Jónsson
Team 555

Vel að orði komist hjá þér ,,félagi og til sóma svona skemmtileg og einlæg svör,,,,,Með allt á hreinu :mrgreen: :mrgreen:
-
Flott hjá þér að fara út í skúr Frikki vegna þess að ég hlakka mikið til að sjá þig og bílinn á brautinni næsta sumar, vona að þú eyðir meiri tíma í skúrnum en framan við skjáinn :D (hóst 1422 hóst hóst... póstar).
Sæll Halldór og gaman að þú skulir pósta öðru hverju hérna og hjálpa okkur að kristna þessa sjúgandi villutrúarmenn. En hvers vegna voruð þið með verri 60 feta tíma en í fyrra og hvaða bensín voruð þið með í sumar eftir að þið komuð heim?

Ég kem nú ekki miklu í verk........... hágrátandi.
-
1426 and counting...........
-
Flott hjá þér að fara út í skúr Frikki vegna þess að ég hlakka mikið til að sjá þig og bílinn á brautinni næsta sumar, vona að þú eyðir meiri tíma í skúrnum en framan við skjáinn :D (hóst 1422 hóst hóst... póstar).
Sæll Halldór og gaman að þú skulir pósta öðru hverju hérna og hjálpa okkur að kristna þessa sjúgandi villutrúarmenn. En hvers vegna voruð þið með verri 60 feta tíma en í fyrra og hvaða bensín voruð þið með í sumar eftir að þið komuð heim?
Sæll Nóni. Það sem ræður mestu varðandi lakari tíma á 60 fetum er meira spól þrátt fyrir gripmeiri dekk og öðru vísi "power band". Náðum best í sumar 1,659 sek sem er 0,094 sek lakara en í fyrra. Þegar verið er að keppa og æfa á mismunandi brautum og við mismunandi hitastig, þarf töluverðan tíma til að finna og læra réttar stillingar á hverjum stað með tilliti til veðurs og hitastigs. Með meiri æfingu og frekari tilraunum með loftþrýsing í dekkjum hefði líklega mátt ná 1,4x sek á 60 fetum, 6,7x sek. á 1/8 mílu og 10,5x sek. á 1/4 mílunni hér á Íslandi. Íslenska loftið virðist henta mun betur og gefa betri árangur. Þar ræður súrefnis- og rakainnihald og hitastig mestu.

Það er satt að loftslagið er betra til flestra hluta hér nema ef vera skildi til sólbaða á kvartmíludögum :D En hvaða bensín voruð þið með?
-
Bensínið sem við notum er samskonar og notað er til keppni m.a. í rally og uppfyllir kröfur FIA og er samþykkt af þeim.
Halldór Jónsson
Team 555
-
Og hvað er svoleiðis kallað, varla 95 regular :D
-
Takk fyrir það Halldór, ég reiknaði nú heldur ekki með að þið væruð með neitt ólöglegt eiturlyf á tanknum. Ég var frekar að fiska eftir oktantölu og orkuinnihaldi.
Kær kveðja, Nóni
-
Ég var ekkert að velta því fyrir mér Nóni; enda myndi fiskast illa á þeim veiðum. Ég er ekki alveg viss um oktantöluna; held hún sé 102 RON en veit ekki hvað mörg MON, en það er MON gildið sem skiptir öllu máli. Þetta eldsneyti er líka frekar súrefnisríkt. Til samanburðar þá er V-Power 99+; líklega 100-101 RON oktan. Þá ályktun dreg ég af mismuninum á V-Power og Shell Optimax en Optimax er 98,4 RON. Munurinn á V-Power og Optimax jafngilti 3-4° í stillingu á kveikju.
Kveðja,
Halldór Jónsson
Team 555