Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Doctor-Mopar on October 18, 2004, 13:13:51
-
Rakst á þennan á Djúpavogi þegar ég var á ferðinni um austurland
-
Hér eru fleiri myndir
-
Það er ömurlegt að sjá þetta.
Eina CUDA landsins.
Þarna stendur hún úti í öllum veðrum og GROTNAR niður.
Hreinasta hörmung.
Kveðja,
Eggert Kristjánsson.
6602581
-
þetta er 1971 ´Cuda upphaflega 340 og 4 gíra, búinn að standa þarna óhreyfð í fjölda ára, og heimildir herma að sé ekki fyrir nokkurn möguleika til sölu! :x
Mynd af samskonar bíl:
(http://i3.ebayimg.com/01/i/02/a3/2d/2e_3.JPG)
-
Þessi bíll er alveg fubar,löngu ónýtur,meir að segja er sódómuhræið heillegra.
-
Hva er nokkuð annað en að dropa 318 motor oní Plyman yrði fínn :twisted: svona í dreifbýlinu+ sólgleraugu 8)
kv.Gísli
-
Ef mig :shock: misminnir ekki þá var þessi Cuda í Hafnarfirði sennilega í kringum ´80, Sigurjón frændi minn sem reyndar bjó í Garðabæ þá átti Cudu sem svipar mjög til þessarar. Hann klessti henni á ljósastaur á Strandgötunni rétt hjá Skiphól. Seinna keypti Hjörtur hana en hann bjó í Kinnunum. Kannski einhver geti sagt hvort þetta sé sami bíll. :wink:
-
Skelfilegt að sjá þessar myndir. Alltof algengt að bílar séu látnir grotna niður þar til þeir eru nánast ónýtir og allan tíman eru dýrgripurinn aldrei falur.
-
Er það ekki hann Stjáni sem á þetta flak,Mig minnir að hann eigi 2 stk sem eru alltaf á leið í uppgerð enn þetta tekur tíma hjá sumum :?
-
Til þess að bjarga svona Gull-Silfur-Bronz-Molum verður líka að borga
pening fyrir þá,alltof algengt að menn nízkist alltof lengi að týna aur
úr veskinu. :cry:
Síðan á endanum fer eins og fer:HALELJÚA :(
KV.Gísli
-
Þetta er gamli bíllinn hans pabba,Hann eignaðist hann 73-74 og flaug honum út af reykjanesbrautinni og braut hann, það var gert við hann nánast strax,Pabbi eignaðist eftir það 1970 383 Magnum Cudu sem virðist bara hafa gufað upp eftir að hann seldi hana.
Pabbi minnist þess enn hvað honum þótti það gaman að geta tekið 1970-71 Mustanginn sem vinur hans átti og þótti svaka öflugur í spyrnu hvað eftir annað :D
Synd að sjá þennann bíl í dag :evil:
-
Sæll Agnar, áttu ekki mynd af 383 bílnum,getur verið að hann hafi verið orange með svörtu húddi.
það hefur nú aldrei verið erfitt að taka Mustang þótt maður sé á Mopar 8)
-
einhverstaðar á bólakafi í geymslunum hjá okkur leynist gömul mynd á gömlum glanspappír en enga á tölvutæku formi :(
383 bíllinn var að ég held rauður og svartur með svörtum viniltopp og svartri innréttingu, ég veit að sá bíll var sjálfskiptur (sá guli beinsk.)
báðir bílarnir báru númerið Ö728
-
Ef grannt er skoðað á myndinni þá eru víst frambrettin enn á Djúpavogs cudunni, þau eru bora soldið mikið ryðguð :lol:
-
Sæll Aggi
Varðandi 383 1970 Cuduna þá gufaði hún ekki upp ég átti hana síðastur manna og jarðaði hana með sæmd eftir að hafa notað úr henni líffærin.
-
Sæll Tóti
Gott að vita loks hvað varð af honum, maður var farinn að halda að það væri einhvað leyndó í gangi með ann :lol: það virtist sem enginn hafði nokkurn tímann heyrt um þennann bíl,
Lumarðu kannski á myndum af honum
Og já , hvenær var hann jarðaður
-
Á að halda minningarathöfn ?
Hver mun messa ?
Eru blóm afþökkuð ?
-
:lol:
-
Trans Am segir að Sódómu hræið sé heillegra en þessi Cuda! Það er bara bull! Föðurbróðir minn geymir Sódómuhræið og það er verr farið heldur en þessi! Það er ónýtt! Þessi er bara lélegur og það mætti bjarga honum en ekki Sódómu hræinu! Það er virkilega ónýtt! Skil ekki hvað er verið að geyma það....alveg eins gott að henda því núna eins og að láta það liggja úti á túni!
-
Var að skoða gamlar myndir,gæti cudan á myndinni verið bíllinn á Djúpavogi. Myndinn er tekinn þegar bílunum var raðað upp á Flugvallarveginum fyrir fysta hópakstur Kvartmíluklúbsins.
-
Ég ætla ekki að neita því en það er tvennt sem að ég sé að er öðruvísi! Í fyrsta lagi: Þá er spoiler á bílnum á myndinni sem þú settir inn en ef grannt er skoðað þá sýnist mér á hinum myndunum (þar sem sést í skottlokið) að það er einhver grá rönd þar spurning hvort að það sé eitthvað eftir spoilerinn! í öðru lagi þá eru svartar rendur á húddinu á myndinni sem þú settir inn en það er ekki á bílnum sem er á Djúpavogi! En það getur auðvitað verið búið að sprauta húddið eða skipta um eða eitthvað en að öðru leyti þá virðist þetta vera nokkuð svipaðir bílar! Gæti verið sam i bíllinn en ég ætla ekkert að segja því að ég er ekki viss! :)
-
já gleymdi að minnast á eitt: Felgurnar eru alveg eins allavega! Það eykur líkurnar á að þetta sé sami bíllinn! :wink:
-
Þetta er ekki sá bíll. Þessi er öðruvísi á litinn og með ljótar rendur á húddinu
Pabbi átti bílinn sem er á Djúpavogi og hann var með spoiler á skottinu á sínum tíma.
Ég skal sýna kallinum þessa mynd við næsta tækifæri til að fá staðfestingu á því hvort ég hafi rétt fyrir mér með þetta.
-
ég skal ekki sverja fyrir það að þetta sé ekki sami bíll, en tel það þó líklegt, ef grannt er skoðað (fyrsta myndin á bls. 1) þá má sjá að líklega hefur einhverntíman verið spoiler á honum, annað dæmi eru fram felgurnar, þær eru eins, annað gott dæmi eru framdekkin með hvíta rönd á báðum myndum, spurning með litinn því þessi gamla mynd sem sett hefur verið inn af honum er líklega orðin talsvert upplituð og því ekki alveg að marka, það er líka möguleiki að bíllinn hafi verið sprautaður seinna svona gulur eins og hann er í dag með engum röndum á húddi, þó getur þetta líka verið sitthvor bíllinn!
-
Ok þá er kallinn búinn að leggja mat sitt á þetta og hann vill meina að þetta sé gamli bíllinn hans,sem sagt djúpavogs Cudan
Hann vill meira að segja fullyrða að það hafi aldrei verið aðrar svona Cudur til að rugla saman við. Sem sagt að þetta hafi verið eina gula 1971 Cudan á landinu.
Ég vil einnig benda mönnum á HÚDD SMELLURNAR, en þær eru varla orginal, og sá gamli man sko eftir þeim, þær þóttu svakalega töff :D
-
Varðandi mynd,þá gulna þessar gömlu myndir með aldrinnum. Hún er skönnuð og það getur stundum gefið misjafnan árangur. 'Eg man ekki hvaða ár hún var tekinn. Held að hópaksturinn hafi verið á stofnári KKlúbsins. 'Eg man að það var brent í bæinn til að skoða bílana og taka myndir meðan filmann entist. 'Eg vona að einhver mopar áhugamaður geti bjargað cudunni áður ennhenni verður hent í eitthverju tiltektar æði ,sem sorglega oft gerist.
-
ættli þetta sé nokkuð svona "gull" sem alls ekki sé falt, því hann sé alltaf á leiðini í uppgerð, er hann annars ekki búinn að standa þarna lengi. :?:
en hvað ættli séu mörg ár síðan hann var á götuni :roll:
-
var i frii i sumar og sa 71 bilinn hann er sa sami og a ødrum myndum her spoilerinn var vist inni og huddsmellurnar orginal en svo er vist annar 1972 plymouth cuda 340 4 gira einhverntima blar a lit ovist med astand en talsvert dapur vantar kram svo var talad um 3ju barracuduna a stadnum en meira veit eg ekki
kv joi
-
Þannig að bíllinn á þessum myndum sem að 57Chevy setti inn er sami bíllinn og á Djúpavogi eða hvað?
-
Það vill fyrrverandi eigandinn hann Pabbi minn allavegana meina
-
já ok ég trúi honum
-
þessar rendur á húddinu eru náttúrulega viðbjóður með öllu....
þó það sé ómögulegt þá gera þær hann næstum því ljótann
-
Já þetta eru sorglega ljótar rendur! Hvað hafa menn verið að hugsa? En það er þá komið á hreint að þetta er sami bíllinn og það er gott en á að henda þessu, gera þetta upp eða leyfa honum að ryðga í hlaðinu? Veit það einhver?
-
Já þetta eru sorglega ljótar rendur! Hvað hafa menn verið að hugsa? En það er þá komið á hreint að þetta er sami bíllinn og það er gott en á að henda þessu, gera þetta upp eða leyfa honum að ryðga í hlaðinu? Veit það einhver?
það sem þótti flott í den þykir kannski ekki flott í dag, samanber sílsapúst, mullet, fótanuddtæki ofl. Þessi bíll er búin að standa þarna í fjölda ára, sami eigandi frá ´81 að ég held, og er víst EKKI til sölu.
-
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&category=6409&item=4513767895&rd=1
þeir eru nú til verri :roll:
-
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&category=6409&item=4513767895&rd=1
þeir eru nú til verri :roll:
Ertu viss :shock: :shock: :shock: :shock:
-
bíllinn er á Djúpavogi er ekki svo illa farinn hann er veðraður lakk gamalt en það sem skiftir máli er að innréttingin er strá heil það sér ekki á henni allt gler er gott og sama á við um króm fyrir utan stuðara bíllin er merkilega lítið ryðgaður fyrir utan frammendann sem virkilega slæmur og þá helst hvalbakurinn toppurinn er farinn af stað eins og í þeim flestum en gólf, hurðir botn almennt óryðgað en farið að þynnast þar sem grjótbarningur var mestur en þegar þessum bíl var lagt var ekki búið að malbika austur fyrir Hellu. Ryðið í afturbrettunum það er vösunum fyrir aftan hjólskál var komið út þegar núverandi eigandi keypti bílinn 1977. Ryðsækni þessara bíla virðist vera miskift og hefur þar lítið að segja smíði þeirra heldur úr hvaða átt hver boddypartur kemur því ekki virðist vera jafngóður málmur í öllum þessum bílum og þá sérstaklega í kringum 70 t.d dæmis ryðga afturbrettinn frá panelinum undir afturrúðuni frá oft en panillin er óryðgaður en einfalt er beggja vegna við tinið og mjög sambærileg smíð og staðsetning en þetta er mjög algengt á 70 bílunum en mun jafnara á 72-73 árgerðinni
-
ég veit um feðga sem tæku hann um leið :wink:
-
Strákar mínir gleymið þessu rugli, þessi bíll verður aldrei til sölu og aldrei gerður upp, það eru margir búnir að bjóða eigandanum stórar fjárhæðir fyrir þessa ryðhrúgu.
Það er það sama með þennan eiganda sem og aðra sem eiga sjaldgæfa Mopar bíla, þeim finnst bara gaman að því að einhver vilji kaupa þetta af þeim, en í staðinn ryðgar þetta bara niður hjá þeim og verður aldrei gert upp.
Kosturinn við svona vitleysingja er að okkar bílar verða bara verðmeiri fyrir vikið.
Og taki þetta til sín þeir sem vilja :twisted:
-
Hey Tóti áttu ekki að vera góður,jólin ekki búin :)
kv.gisli sveinss
-
Ég veit félagi Gísli að þetta er illa sagt, en satt engu að síður. Hélt kanski að ef einhverjir myndu láta þetta umtal berast til viðkomandi, ja svona rétt til þess að ýta aðeins við þeim úr draumaheiminum. :D
Ég vildi nú kanski vekja athygli á því að með tilkomu internetsins hefur opnast til muna tækifæri þeirra sem vilja kaupa sér bíl erlendis frá og hætta að hugsa um þessar ruslakörfur hér heima, þegar upp er staðið er það langtum ódýrara að versla uppgerðan 25 þús dollara bíl og taka heim heldur en að puða við þetta í 5-10 ár og eyða í þetta 4 milljónum.
Trust me been there and done that.
-
sæll Tóti, er þetta ekki eina ´71 Cudan með 340, 4 gíra + pistol grip sem kom hingað til lands, voru þær fleiri sem komu hingað þannig? og á sami eigandi sem á þessa Cudu, á hann ekki einnig bláa ´72 Barracudu með 340? er vitað í hvernig ástandi sá bíll er?
-
afsakið fáfræði mína en hver er munurinn á ´Cuda og Barracuda er þetta ekki sami bíll, bara með mismunandi pakka? (innrétting oþh.)?
-
Þessi bláa Cuda kom með 340 og 4 gíra pistolgrip ,,,en 340 rokkurinn er löngu farinn,1981-1982 þá var blokkinn brunninn á milli slífa,ég veit ekki annað en hún hafi verið haugamatur(blokkin),mig minnir að númerið á Cudunni hafi verið R-4116,leiðréttið mig ef ég man þetta ekki rétt,en getur verið að Guðmundur Kjartans hafi flutt hann inn?
HR
-
Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita hve margar Cudur voru framleiddar 340 4ra gíra beinskiptar, þá voru það 1141 stk. sem gerir þetta nokkuð sjaldgæfan bíl. Td. Challenger sem tvíburarnir eru að gera upp er 440 sixpack 4ra gíra beinskiptur voru 793 stk. framleidd. Sem betur fer er sá bíll í góðum höndum.
Ég get ekki séð að það sé neitt meira varið í þessa 71 cudu hérna heima heldur en þessar sem til eru í AMERÍKU Í MIKLU BETRA STANDI.
Hemi 472, það er alveg rétt hjá þér að Cuda og Barracuda er sama skelin, og innréttingin er alveg eins í Cudu og Barracudu fyrir utan cuda merkin á hurðarspjöldunum. Hins vegar snýst Cudan meira um performance package sem sagt svipað og venjulegur Challenger á móti R/T Challenger, einnig vil ég benda á að það er miklu meiri munur þegar komið er í alvöru vélar einsog 440 og hemi, hvað varðar drifbúnað, styrkingar og fjöðrun.
Og svona í restina til að svekkja alvöru Mopar menn, þá ætlaði eigandi Cudanna fyrir austan að nota 72 skelina og klóna 71 dótið í hana vegna hve 71 skelin er illa farin. What a shame.
-
Jú það er annars rétt,ég átti þessa bláu ´72 Cudu í nokkra mánuði. Tók hana í skiptum fyrir annan frægan bíl. Var með ónýta kúpplingu og lak olíu út um allar trissur. Nánast gaf hana eftir 3 eða 4 mánaða streð. En þetta var mjög flottur og vel búinn bíll. 340 Pistol Grip var ekki leiðinlegur í akstri. R-4116 var á honum / henni eins og fleiri bílum sem ég átti á þessum tíma, m.a. landsfrægum Loncoln Coupe H-76 árgerð 1947 sem búið er að ljúga til um svo það fyllir heila símaskrá í fullri stærð ....
.... og svo er ég með 300 ára áætlun eins og vinurinn á Djúpavogi ... ég er að reyna að fá Bush til að selja mér orrustuskipið USS New Jersey. Á því eru 12 stk fallbyssur með 16 tommu hlaupvídd. Það gæti orðið gaman í Reykjavík á gamlárskvöld árið 2304 þegar ég verð búinn að rústberja og smyrja og byrja að hleypa á 68du kynslóð framsóknarmanna sem þá verða við völd ...
Happy new year!!
GKJ
-
Sæll Guðmundur, áttu nokkuð myndir af þessari bláu Cudu sem þú talar um og ef svo er þá væri gamann að sjá þær hér
Kveðja ´
Ólafur Haukdal
-
.... og svo er ég með 300 ára áætlun eins og vinurinn á Djúpavogi ... ég er að reyna að fá Bush til að selja mér orrustuskipið USS New Jersey. Á því eru 12 stk fallbyssur með 16 tommu hlaupvídd. Það gæti orðið gaman í Reykjavík á gamlárskvöld árið 2304 þegar ég verð búinn að rústberja og smyrja og byrja að hleypa á 68du kynslóð framsóknarmanna sem þá verða við völd ...
GKJ
Get ég einhvernveginn aðstoðað þig og lagt mitt af mörkum við eyðingu Framsóknarflokksins ? Raddirnar hafa lengi verið að segja mér að fara að pússa byssuna, þarna er hún kannski komin. :lol:
-
Jæja það hefur lengi staðið til að slógdraga Islandske Fremskidspartiet en ekkert orðið úr.
Ég átti ekki myndavél á þessum árum enda eins gott þar sem sumt sem ungir menn aðhöfðust á þeim árum hefði ekki þolað "documentasion"
Þessi bráðfallega "grabber" bláa Cuda kom til Íslands vorið 1979 held ég. Eiginlega allt var fallegt við þennan grip. Innréttingin var svona effect blá og glerin blágræn að lit. Hann var ekki mikið keyrður en hafði eins og allir svona musklabilar paa Svensk ... þurft að þola mikið áreiti af hendi eigenda sinna.
Ég man líka vel hve okkur leist vel á þennan banana yellow 340 bíl þegar hann kom til landsins, sennilega vorið 1973 um svipað leyti og Shelbyinn ... SVo hvarf hann og er búinn að sitja þarna í lageringu eins og Kvernelands gnýblásari sem var síðast notaður í minni sveit í júli 1971 .....
Á alvarlegri nótum finnst mér það svo OK að láta það fylgja að menn sem telja sig bílaáhugamenn, bilefriker ... hafa eyðilagt 99% af sjaldgæfustu farartækjum sögunnar á meðan hinir sem fylla 1%sentið keyrðu þá bara og lögðu út í kant þegar seinasti varahluturinn var útrunninn ....
Ef Bush vill ekki selja mér New Jersey skal ég sætta mig við USS Missouri, en það hefur víst ekki verið gangsett eftir VJ day ..... Ég meins, heilar þjóðir hafa breytt utanríkisstefnu sinni við að frétta af einu þessara skipa lónandi við landhelgina. Hugsið ykkur Norðmenn .... allir í Smuguna !!
-
Á enginn myndir af þessari bláu Cudu?? Ef ég man rétt þá átti sá sem var að flytja inn 75 Corvettuna um daginn, einmitt bláa Cudu fyrir langa langa löngu. Hann bjó þá í Árbænum. Spurning hvort það er sami bíll. :shock:
-
Helvíti eru menn orðnir pólitískir svona á efri árum og sletta líka svona á erlendum tungum, fann hérna nokkur tóndæmi á sænsku svo þú getir æft þig Gummi. http://aftonbladet.se/ettor/webb/2322_normal.html
jóla og áramótakveðjur
Maggi
Mynd frá Turkeyrun nú í haust af sjaldgæfum mopar
-
Jesssss, þessi Mopar er óborganlegur, en eins og Agatha Christie sagði einhversstaðar, "it´s a dirty rotten shame"
Og þið vitið hver vann Flóabardagann 1991. The FRENCH did it!!!
-
Þessi er betri er það ekki. :lol:
-
Sælir félagar. :)
Og gleðilega hátíð.
Hér er mynd af Cuda 340 4. gíra sem var tekin vorið 1981.
Ég held örugglega að Haukur Helgason ökukennari með meiru hafi átt bílinn þarna.
-
Drengir., þetta er greinilega áður en kúa - og kindagirðingin var sett upp til að grípa bilaða kvartmílumenn sem skutlast út úr bílum sínum á 100MPH. Valur hefði sloppið með Cuduna hérna um árið er BARA hefði verið komin almennileg GADDAVÍRSGIRÐING
Djö, eins og þeir segja í Hollywood ....... You´ll never work in this town again.
Bætum við einum, ..... nei tveimur gaddavísrsstrengjum .....
-
já strákar það fer straumur um mann þegar maður sér þessa cudu aftur.
Ég átti þessa cudu á eftir Hauki ökukennara og þetta var meiriháttar bifreið.
Haukur hélt að vélin væri ónýt og prangaði cuduni inn á mig.
Það hafði farið heddpakkning og það blés á milli stimpla og smá rauf hafði myndast á milli stimpla, ég fékk Jón Bónda svokallaður til að rafsjóða í þetta og við urðum aldrei meira varir við þetta.
Ég seldi cuduna upp á Akranes en eftir nokkra mánuði var hann komin út í móa og stóð þar lengi. Í þá daga kunnu menn ekki að meta svona bíla.
Svo þegar ég verslaði Vettuna á eaby þá hafði ég það að leiðarljósi að ég ætlaði aldrei að selja hana ,strákurinn minn erfir hana eftir minn dag
Kveðja
Ólafur Haukdal
-
"þessi FORD er betri" nei mér finnst hann eiginlega mun verri
-
þetta held ég að sé ekki eina cudan á landinu það er ein í uppgerð inn í skúr í fannafoldinu. það eru tveir bræður sem að eru að gera upp cudu og challanger og verða þeir keppnisbílar báðir. virkilega flottir bílar og það er vönduð vinnan á þessu hjá þeim. held að þeir séu bílasmiðir.
-
þetta held ég að sé ekki eina cudan á landinu það er ein í uppgerð inn í skúr í fannafoldinu. það eru tveir bræður sem að eru að gera upp cudu og challanger og verða þeir keppnisbílar báðir. virkilega flottir bílar og það er vönduð vinnan á þessu hjá þeim. held að þeir séu bílasmiðir.
myndir af Cudunni þeirra
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=9516
...og svo Challenger
http://www.hn.is/thokri/Mopar.htm
annars held ég að eftirfarandi bílar séu þeir einu af Barracuda 70-74 sem eftir eru á landinu,
endilega leiðréttið mig ef ég er að rugla eitthvað!
1. 1970 Barracuda Rauð Jón Geir Eysteinss. (í uppgerð)
2. 1970 Barracuda Rauð Hjörtur (illa farinn)
3. 1970 Cuda 383 Gulur veit ekki nafn á eiganda en nr. á honum er R-706
4. 1970 Barracuda Gulur Þórhallur og Eggert (í uppgerð)
5. 1971 Barracuda Brún Gulli Emils (illa farinn)
6. 1971 Cuda 340 Gul Kristján (mjög illa farinn)
7. 1972 Cuda 340 Ljósblár Kristján (mjög illa farinn)
R-706
(http://www.kvartmila.is/spjall/files/dscf0037.jpg)
-
nr 2 og 3 á listanum er sami bíllinn klónaður úr mörgum
-
Helvíti eru menn orðnir pólitískir svona á efri árum og sletta líka svona á erlendum tungum, fann hérna nokkur tóndæmi á sænsku svo þú getir æft þig Gummi. http://aftonbladet.se/ettor/webb/2322_normal.html
jóla og áramótakveðjur
Maggi
Mynd frá Turkeyrun nú í haust af sjaldgæfum mopar
þetta er plymouth daytona
kv.Haffi
myndin kom ekki
-
Þetta er ALLS EKKI Plymouth Daytona (það er ekki til)
Við fyrstu sýn þá virðist þetta vera eitthvað í þá áttina, Dodge Daytona (sem er breyttur Charger) eða Plymouth Superbird (sem er breyttur RoadRunner) en mér sýnist þetta nú vera Dodge Coronet eða Plymouth Belverdre með "mixuðum" framenda. Þetta hefur nú ekki oft verið gert (ekki svo ég viti til allavegana)
Hér getiði séð mynd af Dart með Daytona nefi og stéli
http://www.moparts.org/moparts/picture/bird/index.html
-
Ert þú nokkuð að spá í að fara að breyta þínum svona? 8)
(http://www.moparts.org/moparts/picture/bird/bird2.jpg)
-
Þó að ég sé nú athyglissjúkur og allt það þá veistu..... Nei ég held bara alls ekki :D
-
Jú það er annars rétt,ég átti þessa bláu ´72 Cudu í nokkra mánuði. Tók hana í skiptum fyrir annan frægan bíl. Var með ónýta kúpplingu og lak olíu út um allar trissur. Nánast gaf hana eftir 3 eða 4 mánaða streð. En þetta var mjög flottur og vel búinn bíll. 340 Pistol Grip var ekki leiðinlegur í akstri. R-4116 var á honum / henni eins og fleiri bílum sem ég átti á þessum tíma, m.a. landsfrægum Loncoln Coupe H-76 árgerð 1947 sem búið er að ljúga til um svo það fyllir heila símaskrá í fullri stærð ....
.... og svo er ég með 300 ára áætlun eins og vinurinn á Djúpavogi ... ég er að reyna að fá Bush til að selja mér orrustuskipið USS New Jersey. Á því eru 12 stk fallbyssur með 16 tommu hlaupvídd. Það gæti orðið gaman í Reykjavík á gamlárskvöld árið 2304 þegar ég verð búinn að rústberja og smyrja og byrja að hleypa á 68du kynslóð framsóknarmanna sem þá verða við völd ...
Happy new year!!
GKJ
Loncoln ?,hvernig bíll er það ?.Hverju er búið að ljúga um þennan bíl ?
-
hmmm já "Loncoln" mig grunar að þar sem að "i" er við hliðina á "o" á lyklaborðinu þá hafi Guðmundur Kjartansson óvart stimplað inn "Loncoln" í stað "Lincoln" ég held að það standist alveg :wink: